Læknablaðið - 15.07.2007, Qupperneq 33
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GEÐLÆKNINGAR
Páll Matthíasson var
meðal frummœlanda á
málþingi í tilefni aflOO ára
afmœli Kleppsspítala.
að þjónustunni og halda fólki gangandi utan stofn-
ananna. Möguleikinn á innlögn þarf þó alltaf að
vera til staðar svo ekki er hægt að leggja stofn-
anirnar niður. Pað er í rauninni enginn ágreiningur
um þetta því nánast allir íslenskir geðlæknar hafa
stundað framhaldsnám í Bretlandi, Skandinavíu
eða Bandaríkjunum og þekkja vel til samfélags-
lækninga og íslenskir iðjuþjálfar hafa flestir lært í
Danmörku sem stendur mjög framarlega á þessu
sviði. Þekkingin er því til staðar og þetta er það
sem samtök notenda og aðstandenda hafa verið
að óska eftir í talsverðan tíma en kannski skortir
herslumuninn á hinn pólitíska skilning og það er
ástæða þess að ég lagði áherslu á það í erindi mínu
að allir sem málið varðar hittist og ræði saman.”
Páll tók einmitt sérstaklega fram í erindi sínu að
við það borð sé ætíð pláss og einfaldast að sækja
nýjan stól fyrir þá sem vilji taka þátt í umræðunni.
„Spítalaþjónustan er í mjög góðu horfi að mörgu
leyti. Að auki stöndum við jafnfætis því besta sem
þekkist í meðhöndlun vægari geðsjúkdóma og
stofunet geðlækna, sálfræðinga og fleiri aðila sem
byggist á því að sjúklingar séu færir um að mæta
á ákveðinn stað á ákveðnum tíma og borga fyrir
tímann sinnir þessum hópi mjög vel. Þetta kerfi er
í mjög góðu horfi.
Varðandi þyngri geðsjúkdóma þar sem sjúk-
lingar geta ekki staðið undir þessum kröfum og
meðhöndlunin kallar á þverfaglega nálgun margra
fagaðila og snýst um að hjálpa þessum einstakling-
um að fóta sig í samfélaginu stöndum við okkur
ekki eins vel. Þar gætum við gert betur og það
hlýtur að vera forgangsverkefni á næstu árum.”
Heilsa og
sjúkdómar í
kynjaspegli
Það fræðasvið sem snýst um að greina áhrif kyns
á heilsu, hvort sem er vegna líffræðilegs munar
eða félagslegra aðstæðna, er í örum vexti. Hafa
nú þegar verið haldin þrjú alþjóðleg þing um
“Gender-specific Medicine” eða kyngreinda
læknisfræði.Til að vekja athygli á þessum fræðum
stóð Félag kvenna í læknastétt á Islandi fyrir mál-
þingi um efnið á Læknadögum 2007. Ekki skortir
áhuga íslenskra lækna á að fræðast nánar og hitt-
ist þessi fríði hópur á þingi í Róm á þingi undir yf-
irskriftinni “Gender specific medicine and aging,
the endocrine impact.”
Á myndinni eru,frá vinstri Lilja Sigrún Jónsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir, htgibjörg
Georgsdóttir, Björgvin Bjamason, Kristjana Kjartansdóttir, Friðný Jóhannesdóttir, Pálmi
V. Jónsson, Margrét Georgsdóttir, Elín Ólafsdóttir og Katrín Fjeldsted. Fjórir íslenskir
lœknar til viðbótar voru þátttakendur en fjarverandi við myndatökuna.
Læknablaðið 2007/93 557