Læknablaðið - 15.07.2007, Blaðsíða 49
Heilsugæslulækni vantar á Húsavík
Heilbrigöisstofnun Þingeyinga lýsir eftir lækni til starfa á heilsugæsluna á Húsavík frá september n.k. í eitt ár, með
möguleika á framlengingu.
Stofnunin rekur sjúkradeild og öldrunardeild á Húsavík og heilsugæslustöð á Húsavík, Laugum, Mývatnssveit,
Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn. Um er að ræða fjölbreytt starf við almenna heilsugæslu og heimilislækningar og
einnig starf á deildum sjúkrahússins. Þannig gefst kostur á að fylgja sjúklingum vel eftir með flest vandamál.
Á Húsavík eru starfræktar göngudeildir fyrir sykursjúka og offeita, auk þess sem þar eru framkvæmd hjartaþolspróf.
Þar starfa 3 heimilislæknar, einn sérfræðingur í meltingarsjúkdómum og einn skurðlæknir, og er samstarfið og
samvinnan með ágætum og góður andi á stofnuninni.
Óskað er eftir áhugasömum lækni sem ertilbúinn til starfa utan höfuðborgarsvæðisins, með öllum þeim kostum sem
því fylgja. Hugsanlegt er að þróa stöðuna í námsstöðu í heimilislækningum.
Á Húsavík er framhaldsskóli, grunnskóli, tveir leikskólar, tónlistarskóli, auk allrar almennrar þjónustu. Þar er öflugt
félags- og menningarlíf, aðstæður til uppeldis barna hinar ákjósanlegustu.
Áhugasamir hafi samband við Unnstein Júlíusson, yfirlækni heilsugæslunnar í síma 860 7748, unnsteinnjul@heilthing.is
eða Jón Helga Björnsson, framkvæmdastjóra í síma 464 0500 eða 893-3778, framkvaemdastjori@heilthing.is
Deildarlæknir
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga auglýsir eftir deildarlækni sem er tilbúinn til að vinna við stofnunina á Húsavík í heilt
ár, með möguleika á framlengingu.
Stofnunin rekur sjúkradeild og öldrunardeild á Húsavík og heilsugæslustöðvar á Húsavík, Laugum og Mývatnssveit.
Um er að ræða fjölbreytt starf við almenna heilsugæslu og heimilislækningar og einnig starf á deildum sjúkrahúss-
ins. Þannig gefst kostur á að fylgja sjúklingum vel eftir með flest vandamál en stærstur hluti starfsins á sjúkradeild
fellur undir almennar lyf- og skurðlækningar. Göngudeildir sykursjúkra og offeitra eru starfræktar, og hjartaþolpróf er
á staðnum.
Á Húsavík eru 4 stöður heimilislækna, en auk þess starfar þar einn lyflæknir og einn skurðlæknir, auk hlutastöðu
kvensjúkdómalæknis og er samstarfið og samvinnan með ágætum og góður andi á stofnuninni.
Hér er því afbragðs tækifæri fyrir áhugasaman lækni sem er tilbúinn til starfa utan höfuðborgarsvæðisins, með öllum
þeim kostum sem því fylgja. Hugsanlegt er að þróa stöðuna í námsstöðu í heimilislækningum.
Upphaf starfstíma er samkomulagsatriði, því fyrr, því betra.
Á Húsavík erframhaldsskóli, grunnskóli, tveir leikskólar, tónlistarskóli, auk allrar almennrar þjónustu. Þar er öflugt
félags- og menningarlíf, aðstæðurtil uppeldis barna hinar ákjósanlegustu.
Áhugasamir hafi samband við Unnstein Júlíusson, yfirlækni heilsugæslunnar í síma 860 7748,
unnsteinnjul@heilthing.is eða Ásgeir Böðvarsson framkvæmdastjóra lækninga í síma 464 0500,asgeir@heilthing.is.
Læknablaðið 2007/93 573