Læknablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 19
FRÆÐIGREINAR
SYKURSÝKI 2
sérstöku mælitæki (Biothesiometer frá Biomedical
Instrument Company Ohio, USA) en mæligildið
þar er einingin Volt. Sársaukaskyn var metið við
stórutá á fjærhluta ristar með einnota pinnum
sem hafa annars vegar hvassan odd en hins vegar
bitlausan (Neurotip® frá Owen Mumford, Oxford,
Englandi (16)) og metið hvort þátttakandi gat greint
milli þeirra. Hitaskyn var metið á sama svæði með
annars vegar köldum málmhlut og hins vegar
volgum hlut strax á eftir en þátttakandi var beð-
inn að segja til um hvor var kaldari. Þrýstingsskyn
var metið á 6 stöðum á hvorri il með Semmes-
Weinstein einþátta plastprjóni sem bognar við lOg
álag (lOg monofilament: Neuropen® frá Owen
Mumford, Oxford, Englandi (16)) samkvæmt
klínískum leiðbeiningum frá Nýja-Sjálandi (17) en
í stuttu máli nægir skyntap á einum stað til þess
að prófið teljist óeðlilegt. Snertiskyn var metið á
hefðbundinn hátt með því að bómullarhnoðra var
strokið létt yfir fjærhluta ristar meðan þátttakandi
hafði lokuð augu. Viðkomandi var beðinn um að
segja „já" fyndi hann fyrir einhverri snertingu og
skynið því metið óeðlilegt ef ekkert var gefið til
kynna þótt bómullarhnoðra væri strokið yfir rist
í tvígang.
Allir svöruðu stöðluðum spurningum um
einkenni samkvæmt svonefndri taugaeinkenna-
vog (TEV eða Neuropathy Symptom Score), eins
og lýst var af Young (12) (tafla Ila). Einkennavogin
skilgreinir 3-4 stig sem væg einkenni, 5-6 sem með-
alsvæsin einkenni og 7-9 stig sem svæsin einkenni.
Sömuleiðis voru nokkur ofangreindra teikna vegin
saman í svokallaða taugateiknavog (TTV) sem er
stigunarkerfi (Neuropathy Disability Score) eftir
aðferð Youngs (12) (tafla Ilb). Samkvæmt TTV
eru 3-5 stig talin væg teikn, 6-8 meðalsvæsin og
9-10 svæsin teikn um taugakvilla. Við úrvinnslu
var taugakvilli skilgreindur (12) sem annaðhvort
meðalsvæsin teikn eingöngu (þá >6 stig) eða væg
teikn ásamt meðalsvæsnum einkennum (TTV >3
+ TEV >5).
Tölfræði og leyfi
Við samanburð á sykursjúkum og viðmiðum var
Mann-Whitney U próf notað fyrir samfelldar
breytur. Fyrir niðurstöður tjáðar sem hlutföll voru
95% öryggismörk (95% CI) reiknuð en kí-kvaðr-
at leiðrétt fyrir fá tilfelli (V-kvaðrat) notað við
útreikninga á p-gildum. Við fylgnireikninga var
Spearman fylgni notuð. Marktækni sett við p gildi
<0,05. Úrvinnsla fór fram með forritinu Statistica,
útgáfu 7.1.
Rannsóknin var eins og áður kom fram viðbót
við NIDDM-rannsóknina (15) en tilkynning um
þessa vinnslu var send Persónuvemd og við-
bótarleyfi fengið frá Vísindasiðanefnd (01-072).
Tafla lla. Taugaeinkennavog (mest 9 stig samtals).
Lýsing Stig
Lýsing einkenna Bruni, dofi, náladofi / þreyta, sinadrættir, verkir 2/1
Staðsetning einkenna Fætur / kálfar / önnur 2/1/0
Hvenær einkenni verst Nótt / nótt og dagur / dagur 2/1/0
Hefur vaknað vegna einkenna Já / nei 1/0
Hvað linar einkenni Ganga / standa / sitja eða liggja 2/1/0
Tafla llb. Taugateiknavog (mest 10 stig samtats fyrir báða fætur).
Eölilegt Óeðlilegt
Tónkvfsl á stórutá (128Hz) 0 1
Hitaskyn 0 1
Sársaukaskyn 0 1
Ökklaviðbragð 0 1 eða 2'
*Ekkert ökklaviöbragö gefur 2 stig en finnist viöbragö eftir styrkingu fæst 1 stig
Þátttakendur skrifuðu undir upplýst samþykki.
Rannsóknin var styrkt af Nýsköpunarsjóði náms-
manna og Vísindasjóði Landspítala.
Niðurstöður
Einkenni
í heild höfðu 48% þátttakenda einhver einkenni
frá fótum sem voru 56,1% (95% CI: 41,0-70,1)
sjúklinga með SS2 en 38,2% (95% CI: 23,9-55,0)
viðmiða. Þessi munur var ekki marktækur töl-
fræðilega. Nær helmingur, eða 46,4% (95% CI:
32,1-61,3) SS2 sjúklinga, reyndist við eftirgrennslan
hafa einhver einkenni taugakvilla sem var heldur
hærra en hjá viðmiðunarhópi þar sem hlutfallið
var 35,3% (95% CI: 21,5-52,1). Algengasta einkenn-
ið var sinadráttur sem 36,6% (95% CI: 23,6-51,9)
SS2 sjúklinga gengust við miðað við 29,4% (95%
CI: 16,8-46,2) viðmiðunarhóps. Bruni, dofi eða
náladofi kom fyrir hjá 14,6% (95% CI: 6,9-28,4)
SS2 hópsins en 8,8% (95% CI: 3,0-23,0) viðmiða.
Verkir í fótum (ótengdir áreynslu) voru til staðar
hjá 12,2% (95% CI: 5,3-25,6) sjúklinga með SS2 en
einungis 2,9% (95% CI: 0,5-14,9) viðmiða. Þegar
einkennin voru tekin saman höfðu sykursjúkir
í 39,0% (95% CI: 25,7-54,3) tilfella meðalsvæsin
eða svæsin einkenni (TEV >5 stig) en 26,5% (95%
CI: 14,6-43,1) samanburðarhóps en dreifing TEV
var ekki marktækt frábrugðin í hópunum (tafla
Illa). Hvað varðar einkenni um útæðasjúkdóm
(claudicatio intermittens) gengust 29,3% (95% CI:
25,5-59,3) af SS2 hópnum við einkennum en ein-
ungis 8,8% (95% CI: 3,4-24,9) viðmiða sem reynd-
ist marktækur munur (p<0,03).
Teikn
Allir þátttakendur höfðu einhver óeðlileg teikn við
þá nákvæmu skoðun sem framkvæmd var og einn
LÆKNAblaðið 2008/94 1 1