Læknablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 61
U M R Æ Ð U R
O G FRÉTTIR
SJÚKRASKRÁ
okkar hálfu. Hugsanlega hefðum við átt að skil-
greina betur einstaka hópa áður en bréfið var sent
út. Það var greinilegt að þetta kom flatt upp á
suma og ég hugsa að flestir þeirra séu einyrkjamir
í hópi sérfræðinga, þeir sem ekki hafa skipulagt
skráningarkerfi einsog stærri stofurnar þar sem
fleiri sérfræðingar em saman um rekstur. Við
þurfum því að finna leið til að mæta mismunandi
aðstæðum allra en um leið uppfylla lagaskylduna
sem á okkur hvílir."
Sigurður bætir við að viðræður við Trygg-
ingastofnun hafi verið teknar upp aftur og það
hafi komið fram greinileg ósk á fundi LR að
hafa þetta skráningarkerfi sem einfaldast. „Við
viljum auðvitað hafa þetta eins einfalt og kostur
er og koma í veg fyrir tvíverknað. Samstarf við
Tryggingastofnun um þessa upplýsingaöflun
myndi eflaust gera það. Við eigum í rauninni
þegar fyrirmynd að slíkri skráningu þar sem er
lyfjagagnagrunnurinn. Þar fær Tryggingastofnun
þær upplýsingar sem hún þarf á að halda og við
okkar."
Á fundinum kom fram að sérfræðingar horfa
til þess að þetta taki upp dýrmætan tíma þeirra
og vilja að þessi viðbótarskráning sé metin á þeim
forsendum. „Menn spyrja auðvitað hver eigi að
borga þetta og við getum lítið annað en vísað til
samninga sérfræðinga við ríkið. Það má sann-
arlega segja að það sé hluti af verki læknis að skrá
niður hvað var gert í hverju tilviki. William Mosler
sagði fyrir hundrað árum að það sem ekki er skráð
hefur ekki verið gert og það á enn við í dag."
Niðurstaða fundarins var að sögn Sigurðar á
jákvæðum nótum og reynt yrði að koma til móts
við óskir sérfræðinganna um að einfalda skrán-
inguna eftir því kostur er. „Við tökum okkur þann
tíma sem þarf til að gera þetta almennilega en þó
þarf þetta að komast í gagnið innan árs. Lögin hafa
þegar tekið gildi og á döfinni er ný ríkisstofnun,
Sjúklingatrygging, sem á að annast kaup á allri
heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins af öllum
sem veita hana, hvort sem það eru sjúkrahús,
heilsugæsla eða sjálfstætt starfandi sérfræðingar.
Ef þessi stofnun á að gegna hlutverki sínu verður
hún að hafa aðgang að þessum upplýsingum frá
öllum aðilum heilbrigðisþjónustunnar. Það er
alveg ljóst."
Framkvæmdastjóri lækninga
Starf framkvæmdastjóra lækninga viö Heilbrigöisstofnunina Blönduósi er iaust til umsóknar. Um fullt starf er að ræöa og veitist staðan frá 1. apríl
2008. Leitað er eftir umsækjendum með reynslu af stjórnunarstörfum og sérfræðiviðurkenningu í heimilislækningum eða annarri sérmenntun sem
gagnast í starfi. Áhersla er lögð á hæfni í samskiptum, sveigjanleika, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð. Laun eru skv. kjarasamningi Læknafélags
íslands og fjármálaráðherra.
Umsóknum, sem skila ber á þar til gerðum eyðublöðum, fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu-, vísinda- og
stjórnunarstörfum. Umsóknargögnum ber að skila til Valbjörns Steingrímssonar, forstjóra, sem jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið í síma
455 4120 eða 892 1786 eða með tölvupósti á netfangið valbjorn@hsb.is Jafnframt er bent á heimasíðu stofnunarinnar www.hsb.is
Um mat á hæfi umsækjanda fer m.a. eftir lögum nr. 40, 27. mars 2007 gr. 35 um stöðunefnd sem byggir m.a. á innsendum umsóknargögnum en
einnig viðtölum við umsækjendur.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningar í störf. Umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi þjónar aðallega íbúum Austur-Húnavatnssýslu. Að jafnaði eru um 80 manns á launaskrá hverju sinni hjá stofnuninni.
Lögð er áhersla á uppbyggingu, skipulag og þróun til móts við nýja tíma. Starfsemin skiptist í almenna heilsugæslu með rekstri heilsugæslustöðva
á Blönduósi og á Skagaströnd, rekstri sjúkra- og hjúkrunarrýma samtals 36 rúm og 10 rýma dvalardeildar. Auk þess sinnir stofnunin læknisþjónustu
á Dvalarheimilinu Sæborgu á Skagaströnd.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Flúðabakka 2, 540 Blönduós
Sími 455 4100 - Fax 455 4136
www.hsb.is
LÆKNAblaðið 2008/94 1 53