Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2008, Page 24

Læknablaðið - 15.02.2008, Page 24
Margir með sykursýki af tegund 2 þyngjast þegar þeir hefja meðferð á insúlíni1 Levemir® (insulin detemir)-fyrirsykursýki aftegund2 Heimildir: 1. UKPDS Group (33). Lancet 1998;352:837-53 2. Philis-Tsimikas etal. ClinicalTherapeutics2006;28-(10): 1589-81.3. Hermansen et al. Diabetes Care 2006;29(6): 1269-74 4. Klein et al. Diabetes, Obesity and Metabolism. Published artide online: 14-Dec- 2006doi: 10.1111/j.1463-1326.2006.00685.x 5. Meneghini et al. Diabetes, Obesity and Metabolism. Published article online: 14- Nov-2006doi: 10.1111/j.1463-1326.2006.00674. Levemir®(insulin determir)100 E/ml Levemir 100 einingar/ml stungulyf, tær, litlaus, hlutlaus lausn. Eineining af detemírinsúlíni inniheldur 0,142 mg af salt- og vatnsfríu detemírinsúlíni. Ein eining af detemírinsúlíni samsvarar einni alþjóðlegri einingu (a.e.) af mannainsúlíni. Ábendingar: Til meðferðar á sykursýki. Skammtar: Levemir er langvirk insúlín- hliðstæða sem notað er sem grunninsúlín samhliða máltíðatengdu, stuttverkandi eða skjótvirku insúlini.í samsetningu með sykursýkislyfjum til inntöku er ráðlagt að hefja Levemir meðferð með 10 eininga skammti eða 0,10,2 einingum/kg einu sinni á sólarhring. Þegar Levemir er notað sem hluti af grunnmeðferð með insúlíni í stökum skömmtum (basal-bolus insulin) á að gefa Levemir einu sinni eða tvisvar sinnum á sólarhring í samræmi við þarfir sjúklingsins. Stilla skal skammta af Levemir eftir þörfum hvers sjúklings. Til að ná sem bestri blóðsykursstjórn hjá sjúklingum sem þurfa að nota lyfið tvisvar sinnum á sólarhring má gefa kvöldskammtinn að kvöldi eða fyrir svefn.Verkun og öryggi Levemir hefur ekki verið rannsakað hjá börnum yngri en 6 ára. Lyfjagjöf: Levemir er gefið undir húð með inndælingu á læri, kviðvegg eða upphandlegg. Eins og við á um mannainsúlín getur frásog detemírinsúlíns orðið hraðara og meira þegar það er gefið undir húð á kviði eða upphandlegg helduren á læri. Því ætti að skipta um stungustað innan sama stungusvæðis. Frábendingar: Ofnæmi fyrir detemírinsúlíni eða einhverju hjálpar- efnanna. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur: Ónógir skammtar eða meðferðarrof, sérstaklega ef um sykursýki af tegund 1 er að ræða, getur leitt til blóðsykurshækkunar og ketónblóðsýringar af völdum sykursýki. Hjá sjúklingum sem hafa bætt blóð- sykursstjórn til muna, t.d. með nákvæmri insúlínmeðferð, geta venjuleg viðvörunareinkenni um blóðsykursfall breyst frá því sem áður var og þarf að benda þeim á það. Venjuleg viðvörunareinkenni geta horfið hjá sjúklingum sem hafa lengi verið með sykursýki.Þegar breytt er í aðra insúlíntegund eða í insúlín frá öðrum framleiðanda, verður að gera það undir nákvæmu eftirliti læknis. Þegar breytt er um styrkleika, gerð (framleiðanda), tegund, uppruna (dýrainsúlín, mannainsúlín eða mannainsúlín- hliðstæðu) og/eða framleiðsluaðferð (DNA samrunaerfðatækni eða insúlín sem unnið er úr dýrum), getur þurft að breyta skammtinum. Sjúklingar sem nota Levemir geta þurft að breyta úr þeim skammti sem þeir notuðu af venjulegu insúlíni. Mælt er með því að fylgst sé náið með blóðsykri meðan á skiptumum stendur og fyrstu vikurnar þar á eftir. Forðast skal að blanda skjótvirku insúlíni saman við Levemir. Of lágur blóð-sykur getur dregið úr einbeitingarhæfni og viðbragðsflýti sjúklings. Það getur haft ákveðna hættu í för með sér þegar þessir eiginleikar skipta miklu máli (t.d. við akstur bifreiða eða stjórnun véla). Meðganga og brjóstagjöf: Engin klínísk reynsla er af notkun detemírinsúlíns á meðgöngu. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Vitað er að fjöldi lyfja hefur áhrif á efnaskipti glúkósu. Eftirtalin efni geta dregið úr insúlínþörf: Sykursýkislyf til inntöku, mono- aminoxidasahemlar (MAO-hemlar), ósértækir beta- blokkar, ACEhemlar (angiotensin converting enzyme inhibitors), salisýlöt og áfengi. Eftirtalin efni geta aukið insúlínþörf: Thiazid, sykursterar, skjald- kirtilshormón og beta-adrenvirk lyf, vaxtarhormón og danazol.Betablokkar geta dulið einkenni of lágs blóðsykurs og seinkað bata eftir blóðsykursfall. Octreotid/lanreotid geta bæði aukið og dregið úr insúlínþörf. Áfengi getur magnað og lengt blóðsykurslækkandi áhrif insúlíns. Aukaverkanir: Blóðsykursfall er algeng aukaverkun. Það getur komið fram ef insúlínskammtur er of hár miðað við insúlínþörf. Algengt er að fram komi viðbrögð á stungustað meðan á meðferð með Levemir stendur eða hjá 2% sjúklinga. Viðbrögðin eru m.a. roði, bólga og kláði á stungustað og eru venjulega tímabundin, þ.e. hverfa venjulega við áframhaldandi meðferð. Hlutfall sjúklinga sem fá meðferð og geta átt von á að fá aukaverkanir er talið vera 12%. Geymsluþol: 2 ár. Geymið í kæli (2°C-8°C) ekki nálægt frystihólfi. Má ekki frjósa.Eftir að pakkning hefur verið rofin má geyma lyfið í mest 6 vikur við stofuhita, ekki hærra hitastig en 30°C. Gerð íláts og innihald: 3 ml lausn í rörlykju (gler af tegund I) með stimpli (brómóbútýl) og tappa (brómóbútýl/pólýísópren) í áfylltum lyfjapenna (fjölskammta einnota lyfjapenni) (pólýprópýlen). Levemir Flexpen 5 x 3 ml verð: 9.412 kr. Levemir Rörlykjur 5 x 3 ml verð: 9.440 kr. Leiðbeiningar um notkun og meðhöndlun: í össkjunni er fylgiseðill með leiðbeiningum um notkun og meðferð lyfsins. Levemir á ekkiað nota ef það er ekki tært og litlaust. NovoFine S nálar eru sérstaklega hannaðar til notkunar með FlexPen og fjölnota pennum. Texti styttur, frekari upplýsingar í sérlyfjaskrá. Umboð og dreifing: Novo NordiskA/istorhf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ. Texti endurskoðaður24. apríl '07. Góð bloðsykursstjornun með Levemir®fyrir sykursýki af tegund 2 • Einu sinni á dag • Lítil eða engin þyngdar- aukning • Minnkar áhættuna á blóð sykursföllum nm/ a nnr/Hírl/ Novo Nordisk á íslandi Vistor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ Sími 5357000 novo@vistor.is Lev e mir® FlexPen* (insulin detemir)

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.