Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2008, Síða 35

Læknablaðið - 15.02.2008, Síða 35
FRÆÐIGREINAR KRABBALÍKISÆXLI Niðurstöður Alls greindust 64 sjúklingar með krabbalíki í lungum á þeim tíma sem rannsóknin náði til. Á sama tímabili greindust 3303 lungnakrabbamein á Islandi og voru krabbalíkisæxlin því 1,9% af illkynja lungnaæxlum á þessu tímabili. Samtals greindust 22 karlar og 42 konur (hlutfall kk/kvk 0,53, p<0,05) og var meðalaldur 49 ár (bil 16-86 ár) (tafla I). Aldursstaðlað nýgengi fyrir krabbalíki í lungum var 0,4/100.000 fyrir karla og 0,7/100.000 fyrir konur. Alls greindust tíu sjúklingar með afbrigðilega vefjagerð, allt konur. Meðalaldur hópsins með illkynja vefjagerð var 59,7 ár. Eftir því sem leið á tímabilið virtist nýgengi heldur aukast án þess þó að um marktækan mun væri að ræða á milli fimm ára tímabila. Alls höfðu 21 af 64 sjúklingum (32,8%) sögu um reykingar. Samtals 45 sjúklingar greindust vegna einkenna og voru algengustu einkennin takverkur, hósti og endurteknar lungnasýkingar (tafla II). Þrír sjúklingar höfðu krabbalíkisheil- kenni (carcinoid syndrome) og einn greindist með efri-holæðar heilkenni (vena cava superior synd- rome). Önnur einkenni eru sýnd í töflu II. Nítján sjúklingar (29,7%) greindust fyrir tilviljun (það er án einkenna), oftast á lungnamynd sem tekin var vegna uppvinnslu annarra sjúkdóma. Æxlin voru staðsett í hægra lunga hjá 33 sjúklingum (52%) og í vinstra lunga hjá 31 (48%), en 49 þessara æxla voru miðlægt og 15 utar í lunganu. Af 64 sjúklingum gengust 56 (88%) undir skurð- aðgerð þar sem æxlið var fjarlægt. Algengasta aðgerðin var blaðnám, eða hjá 46 sjúklingum, og voru 18 aðgerðanna hægra megin (5 í efra blaði, 5 í miðblaði, 8 í neðra blaði) og 17 vinstra megin (10 í efra blaði og 7 í neðra blaði). Hjá 11 sjúkling- um þurfti að fjarlægja tvö lungnablöð í hægra lunga (bilobectomy) og fjórir sjúklingar gengust undir lungnabrottnám (pneumonectomy) vegna miðlægra æxla, í öllum tilvikum vinstra megin. Hjá fjórum sjúklingum var eingöngu gerður fleyg- skurður (wedge resection) og hjá tveimur var æxlið numið á brott án nærliggjandi lungnavefjar (enucleation/lumpectomy), í báðum tilvikum snemma á rannsóknartímabilinu (1961 og 1971). Átta sjúklingar fóru ekki í aðgerð, þar af sjö sem ekki var treyst í aðgerð vegna lélegs líkamlegs ástands og einn sem fékk lyfjameðferð vegna meinvarpa í lifur. Heildartíðni fylgikvilla var 19,6%. Einn sjúk- lingur lést innan 30 daga frá aðgerð (skurð- dauði 1,7%) og var dánarorsök alvarleg önd- unarbilun (acute respiratory distress syndrome, ARDS). Aðrir fylgikvillar eftir aðgerð voru sýk- ing í skurðsári (n=2), dren sem festist í skurðsári (n=l), þindarlömun (n=l), viðvarandi loftleki í >7 Tafla II. Einkenni 45 sjúklinga sem greindust með krabbalíki á íslandi 1955-2005. Hver sjúklingurgetur haft fleiri einkenni samtímis. Nítján sjúkiingar sem greindust fyrir tilviljun (einkennalausir) eru ekki sýndir. n % (n=45) Takverkur 18 28,1 Hósti 17 26,6 Lungnasýkingar/lungnabólga 17 26,6 Blóðhósti (hemoptysis) 8 12,5 Mæði 3 4,7 Krabbalíkisheilkenni (carcinoid syndrome) 3 4,7 Holæöar-heilkenni (vena cava superior syndrome) 1 1,6 Tafla III. TNM-stigun 60 sjúklinga sem greindust með krabbalíki á íslandi 1955-2005. (Gefinn er upp fjöldi sjúklinga og prósentur í sviga). Veljafrasði Dæmigerö Afbrigðileg Samtals Stigl 45 (83,3%) 3(30) 48 (80) Stig II 0 2(20) 2 (3,3) Stig III 4(7,4%) 0 4(6,7) Stig IV 2 (3,7%) 4 (40) 6(10) Tafla IV. Sjúklingar með meinvörp í lungnaeitlum (Nl), miðmætiseitlum (N2) og fjarmeinvörp (stig IV) við greiningu krabbalíkis á íslandi 1955-2005. (Gefinn er upp fjöldi sjúklinga með meinvörp af heildarfjölda sjúklinga með viðkomandi vefjagerð og prósentur innan sviga). Vefjafræöi Dæmigerö Afbrigöileg Samtals Eitlar innan lunga (Nl) 3 (5,6) 0 (0) 3 (4,7) Miðmastiseitlar (N2) 4 (7,4) 1 (10) 5 (7,8) Lifur 3 (5,6) 2 (20) 5 (7,8) Heili 0 (0) 1 (10) 1 (1,6) daga hjá fimm sjúklingum. Einn sjúklingur þurfti að fara á hjarta- og lungnavél í aðgerðinni, en við töku æxlisins lokaði það fyrir hægri efri berkju og olli alvarlegum öndunarerfiðleikum. I töflu III er sýnd stigun æxlanna. Ekki var hægt að stiga fjögur tilfelli vegna þess að upplýsingar vantaði. Flestir greindust á stigi I, eða 48 sjúklingar (34 sjúklingar á stigi IA og 14 á stigi IB) og tveir á stigi IIB. Fjórir sjúklingar greindust með meinvörp í miðmætiseitlum (stig IIIA) og voru allir þessara sjúklinga með dæmigerða vefjagerð. Fjarmeinvörp greindust hjá öðrum sex sjúklingum (stig IV) og voru tveir þeirra með dæmigerða vefjagerð. Alls fundust meinvörp hjá tólf sjúklingum innan þriggja mánaða frá greiningu en tveir þeirra greindust með fleiri en eitt meinvarp. Átta sjúklinganna með meinvörp voru með dæmi- gerða vefjagerð og fjórir afbrigðilega vefjagerð. Samanburður á sjúklingum með þessar tvær vefja- gerðir er sýndur í töflu IV. Við eftirlit greindust aðrir tveir sjúklingar með meinvörp, annar ári frá aðgerð með afbrigðilega vefjagerð og meinvarp í miðmætiseitli og hinn fimm árum frá greiningu. Sá síðarnefndi var með dæmigerða vefjagerð og LÆKNAblaðið 2008/94 127
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.