Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 44
Tímabær hugsun í heilbrigðiskerfinu Stjórnun sjúkrastofnana hefur verið mikið til umræðu undanfarin misseri. Ekki er laust við að mörgum lækninum þyki sem stjórnun hafi verið færð úr höndum þeirra til fólks sem hefur takmarkaða þekkingu á því starfi sem unnið er á deildum sjúkrahúsanna. Birgir Jakobsson er sérfræðingur í barnalækningum og hlaut sér- menntun sína í Svíþjóð þar sem hann hefur átt farsælan starfsferil í 30 ár, framan af sem læknir og sérfræðingur, en eftir 1990 færðist stjórnun æ meira yfir á hans hendur og eftir að hafa gegnt starfi sviðsstjóra á Huddinge-sjúkrahúsinu með góðum árangri um fjög- urra ára skeið var hann ráðinn sjúkrahússtjóri á St. Göran-sjúkra- húsið í Stokkhólmi sem nýtur þeirrar sérstöðu að vera stærsta einkasjúkrahús í Svíþjóð. Starf Birgis og breytingarnar sem hann innleiddi í rekstri stofnunarinnar vöktu slíka athygli að á síðasta ári var hann ráðinn sjúkrahússtjóri á Karolinska háskólasjúkra- húsinu í Stokkhólmi, annað af tveimur stærstu sjúkrahúsum Svíþjóðar. Birgi var boðið hingað í tilefni Læknadaga 2008 og flutti hann erindi við opnun þeirra, undir yfir- skriftinni Læknir í stjórnunarstöðu og hlutverk hans. Læknablaðið fékk Birgi til að ræða efni fyr- irlestursins og segja frá reynslu sinni af starfi við sjúkrahússtjórn. „Þegar ég hóf minn feril sem læknir þá stefndi ég á sérnám og rannsóknir og hafði alls engan áhuga á stjórnun. Þetta var í rauninni tilviljun hvernig ég leiddist út í þetta og satt að segja var ég dálítið tregur að gera þessa breytingu á starfi mínu," segir Birgir og rifjar upp að eftir tíu ára dvöl í Svíþjóð hafi hann starfað hér heima á Landakotsspítala í eitt ár, 1988-1989. „Þegar ég kom aftur út til Svíþjóðar hafði umræða um breytingar á rekstri deilda aukist mjög og á barnadeildinni á Huddinge-sjúkrahús- inu þar sem ég starfaði var fengið inn fólk utanfrá til að vinna að breytingunum og reyna að draga úr kostnaði. Við sem störfuðum á deildinni vorum fengin í lið með þeim og ég gerður að verkefn- isstjóra ásamt yfirlækni deildarinnar. Þarna vakn- aði í fyrsta skipti áhugi minn á stjórnun og síðan leiddi eitt af öðru og ég var skipaður yfirlæknir barnadeildarinnar og gegndi því starfi í fimm ár. Ég vann þó áfram við lækningar en stjórnun deild- arinnar tók þó talsverðan hluta af vinnutímanum. í framhaldi af þessu var ég beðinn um að taka að mér starf sviðsstjóra og þá stakk ég við fótum. Mér fannst að með því væri ég að yfirgefa sérgreinina mína og farinn að fást við hluti sem hefðu ekkert með barnalækningar að gera. Ég þráaðist því við Hávar { hálft ár en lét á endanum tilleiðast með þeirri Sigurjónsson hugsun að ég gæti þá alltaf farið aftur í barnalækn- ingarnar ef mér leiddist. Mér þótti svo starfið mjög skemmtilegt og gegndi því í fjögur ár þar til mér var boðið starf sjúkrahússtjóra á St. Göran-sjúkra- húsinu. Það var vorið 2003. Það er eina einkarekna bráðasjúkrahúsið í Svíþjóð og mér fannst mjög spennandi að taka við því verkefni." Vinnubrögðin hafa lítið breyst Starfþitt sem sviðstjóri Huddinge-sjúkrahússins hefur greinilega vakið athi/gli. Fyrir hvað var það? „Það er ekki vel gott að segja. Ég hafði auðvit- að velt mikið fyrir mér stjómun sjúkrastofnana og sett í gang vinnu við hagræðingu og end- urskipulag vinnu- og verkferla innan deilda sjúkrahússins. Ég kynnti mér líka talsvert breyt- ingastjórnun í öðrum starfsgreinum með það í huga hvort ekki væri hægt að nýta sér það í okkar starfsemi. Kerfisbundnar breytingar á þjónustunni undir minni stjórn hófust 1997 og leiðarljós þeirrar vinnu var að framkvæma breytingar með velferð sjúklinganna í fyrirrúmi. Þetta hefur þróast síðan og ég tók þessar aðferðir með mér yfir á St. Göran og reyndar fékk ég með mér einn af mínum nán- ustu samstarfsmönnum af Huddinge, þar tókst okkur að útfæra þessar hugmyndir að vemlegu leyti sem í rauninni gerbreytti starfseminni, sér- staklega á bráðamóttöku en líka á deildunum." Enn vakti starf Birgis athygli og hann var á síð- asta ári ráðinn sjúkrahússtjóri Karolinska háskóla- sjúkrahússins sem er margþætt stofnun, bráða- sjúkrahús, rannsóknastofnun og kennslu- og há- skólasjúkrahús. Að sögn Birgis einfaldar það ekki málin að sjúkrahúsið er rekið af Stokkhólmsléni en háskólahluti starfseminnar af ríkinu. „Hugmyndir stjórnar Karolinska með ráðningu minni var að hægt væri að nota aðferðir mínar við breytingar á St. Göran á Karolinska líka. Aðstæður þar eru reyndar mun flóknari þannig að breyt- ingastjórnun er margþættara og tímafrekara verk- efni en sannarlega spennandi." Þú talaðir um það í erindi þínu að vinnubrögð á sjúkrahúsum hefðu lítið breyst þó að tækninni hefði fleygtfram. Hvernig skýrirðu það? „Já, það er sannarlega skrýtið hvað vinnu- brögðin hafa lítið breyst. Ég fór í fyrsta sinn stofugang á Barnadeild Hringsins 1975 og í dag er stofugangur nákvæmlega eins, nema að í stað möppu halda læknarnir á fartölvu. Sumir eru bæði með möppu og fartölvu. Það sem hefur breyst er að starfsfólkinu hefur fjölgað og kunnáttunni og tækninni hefur sannarlega fleygt fram en allt hefur þetta gerst án þess að við spyrðum okkar þeirrar 136 LÆKNAblaðið 2007/93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.