Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2008, Qupperneq 47

Læknablaðið - 15.02.2008, Qupperneq 47
UMRÆÐ'UR O G F R É T T I R 1 L Æ K N A R A Ð S T J Ó R N A 191 „Alveg tvímælalaust. Ég er fullur aðdáunar á því fólki sem tekst að fóta sig sem stjórnendur í heilbrigðiskerfinu án reynslu af starfi innan þess. Sjúkra- og heilbrigðisstofnanir eru svo flóknar og margbrotnar að það er að mínu mati algjörlega nauðsynlegt að hafa reynslu af starfi innan þeirra til að skilja hvemig fólk hugsar og hvernig starfsemin fléttast saman. Mér hefur fundist af- skaplega mikilsvert að hafa reynslu og þekkingu á því hvernig svo fjölbreytt og ólík starfsemi fléttast saman. Þar er ég að tala um lækningarnar, rami- sóknirnar og háskólakennsluna og vita að þetta verður að virka saman til að fá sem mest út úr öllum þáttum starfseminnar." Birgir segir tvennt vera mikilvægt í að fá ein- staklinga í ólíkum greinum innan sjúkrahússins til að starfa sem best saman. „Línur um verksvið og valdsvið þurfa að vera skýrar og einfaldar. Um leið þarf að undirstrika að góður árangur byggist á samstarfi og samvinnu. Góð samvinna er lyk- illinn að góðri þjónustu við sjúklingana. Skýrt og einfalt skipurit er nauðsynlegt en um leið er mikilvægt að gera sér grein fyrir að skipurit segir ekki til um hvernig fólk vinnur saman. Þegar ég kom á Karolinska þá var eitt hið fyrsta sem ég tók eftir hversu óskýrt og flókið skipuritið var. Fólk vissi ekki almennilega hver réð hverju eða hvar ákvarðanirnar væru teknar. Hvað má ég gera sem stjórnandi? var algeng spurning." Læknastéttin hæsti þröskuldurinn Hvar hefurðu orðið fyrir mestri fyrirstöðu við innleið- ingu breytinganna sem þú hefur staðiðfyrir? „Ef ég á að vera alveg ærlegur þá er læknastétt- in hæsti þröskuldurinn. Læknar eru oft tregir til að taka upp nýjungar í vinnubrögðum, sérstaklega gagnvart öðrum starfsgreinum, en þeir eru mjög snöggir að taka upp nýjar tæknilausnir og ný lyf. Þegar hins vegar er um að ræða hvernig starfs- greinarnar eiga og þurfa að vinna saman þá hefur mér sýnst að læknarnir séu mjög áfram um að varðveita sjálfstæði sitt; með öðrum orðum geta gert það sem þeir vilja þegar þeir vilja. Geta komið og farið að vild. Þetta er mjög erfitt að eiga við þegar um er ræða breytingar sem beinast að hag- ræðingu og aukinni framleiðni þar sem stöðlun vinnu- og verkferla er lykilatriðið. Það gengur ekki að tíu manns sitji og bíði eftir einum lækni sem svo kemur jafnvel ekki þann daginn. Það er óþolandi. Læknirinn kemur kannski alltof seint og tími annarra starfsmanna fer að meira eða minna leyti í þarflausar útskýringar á fjarveru hans. Þetta er því miður alltof algengt en nú er ég auðvitað að tala um það umhverfi sem ég þekki best í Svíþjóð. Ég veit ekki hvort þetta á við um íslenska kerfið." Hvernig hefur þér tekist að breyta þessu? „Það sjá þetta auðvitað allir þegar nánar er skoðað en oft sést þetta ekki og mörgum er akkur í því. Það er hins vegar ekkert hægt að komast hjá því að taka á þessu og þegar ég fel mínum stjóm- endum að framkvæma ákveðin verk á ákveðnum tíma geri ég þeim ljóst að því verði fylgt eftir og gengið úr skugga um að verkið hafi verið fram- kvæmt samkvæmt áætlun. Við viljum líka fylgjast með hvernig hlutirnir eru gerðir, okkur nægir ekki að vita að þeir hafi verið gerðir. Ef uppfylla á kröf- ur um öryggi sjúklinga og gæði þjónustunnar þá þarf að tryggja að verkin hafi verið framkvæmd á réttan hátt og á réttum tíma." Sparar þetta peninga? „Það er er í rauninni ekki markmiðið heldur að bæta þjónustuna, gæðin og öryggið. Reynsla mín og annarra hefur sýnt að með aukinni framleiðni gerum við meira án þess að auka kostnaðinn. Það er ávinningurinn. Það er auðvitað mjög vel þekkt úr öðrum greinum og löngu tímabært að koma þeirri hugsun að í heilbrigðiskerfinu." Læknadagar 2008 Þrátt fyrir að Læknadagar 2008 væru komnir í fullan gang hafði Arna Guðmundsdóttir formaður Fræðslustofnunar lækna nóg að gera. LÆKNAblaðið 2008/94 139
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.