Læknablaðið - 15.09.2009, Qupperneq 57
U M R Æ Ð U R
O G FRÉTTIR
ÓPÍATA-LYF
Mynd 3. þessari 120 milljón króna hækkun, tramadól fer úr
rúmlega 60 milljónum 2006 í rúmlega 90, fentanýl
úr tæplega 50 í um 90 milljónir og oxýcódón úr
rúmum 18 í tæpar 28 milljónir árið 2008. Með sama
áframhaldi verður 500 milljóna múrinn rofinn
2009. Dæmi um hækkun lyfjaverðs í þessum
flokki er að Contalgin hefur hækkað um 100%
frá desember 2007 til desember 2008 samkvæmt
upplýsingum Lyfjastofnunar.
Hvað er í gangi? Er ég einn um að hafa áhyggjur
af þessari makalausu þróun sem stendur að mínu
mati á læknisfræðilegum brauðfótum?
Heimildir
1. Portenoy RK, Foley KM. Chronic use of opioid analgesic in
non-maíignant pain: report of 38 cases. Pain 1986; 25: 171-
86.
2. Angst MS, Clark JD. Opioid-induced hyperalgesia: a
qualitative systematic review. Anesthesiology 2006; 104: 570-
87.
3. Mitra S. Opioid-induced hyperalgesia: pathophysiology and
clinical implications. J Opioid Man 2008; 4:123-30.
4. Ballantyne JC, Mao J. Opioid therapy for chronic pain. N Engl
J Med 2003; 349:1 943-53.
5. McQuay H. Opioids in chronic non-malignant pain: There's
too little information on which drugs are effective and when
(Editorial). BMJ 2001; 322:1134-5.
6. Kalso E, Edwards JE, Moore RA, McQuay HJ.Opioids in
chronic non-cancer pain: systematic review of efficacy and
safety. Pain 2004; 112: 372-80.
7. www.ampainsoc.org/advocacy/opioids.htm
8. www.painmed.org/pdf/opioid_consent_form.pdf
9. www.legeforeningen.no/asset/42591/l/Retningslinjer+sme
rtebehandling+DNLF.pdf.pdf
10. Jónsson JS, Olason M. Verkjalyf á villigötum? Morgunblaðið,
22. febrúar 2003.
11. Clausen TG, Eriksen J, Borgbjerg FM. Legal opioid
consumption in Denmark 1981-1993. Eur J Clin Pharmacol
1995; 48: 321-5.
12. Eriksen J, Jensen MK, Sjogren P, Ekholm O, Rasmussen NK.
Epidemiology of chronic non-malignant pain in Denmark.
Pain 2003; 106: 221-8.
13. nomesco-eng.nom-nos.dk/filer/publikationer/medicines%
20consumption.pdf
14. www.laegemiddelstyrelsen.dk/
15. www.lyfjastofnun.is/Tolfraedi/Lyfjanotkun_og_velta
/2008/
16. Upplýsingar frá Landlæknisembættinu.
Mynd mánaðarins
Ólafur Þ. Jónsson
svæfingalæknir olibara@mi.is
Þessi mynd er af heila og taugaskurðlæknunum Kristni Guðmundssyni
og Bjarna Hannessyni. Þeir hófu störf á Borgarspítalanum samtímis árið
1971 að loknu sérfræðinámi vestanhafs: Bjarni við Dartmouth Medical
School Affiliated Hospitals, í Hanover, New Hampshire, og Kristinn við
Mayo Graduate School of Medicine, í Rochester, Minnesota.
Þeir voru árum saman einu heilaskurðlæknarnir á landinu. Mikið
annríki var hjá þeim, vinnudagur oft langur og vaktabyrði mikil. Fyrstu
árin tengdust þeir skurðlækningadeildinni en árið 1982 var stofnuð
sérstök heila- og taugaskurðlækningadeild og voru þeir báðir ráðnir
yfirlæknar.
Áður en Kristinn og Bjarni komu til starfa voru flestir sjúklingar
sem þurftu aðgerðir á heila sendir á heilaskurðdeild Ríkisspítalans í
Kaupmannahöfn. Tveir læknar hér á landi höfðu þó stundað afmörkuð
svið heilaskurðlækninga meðfram öðrum störfum: Bjarni Oddsson
(1907-1953) og Bjarni Jónsson (1909-1999) en sá síðarnefndi hafði kynnt
sér meðferð höfuðslysa og annaðist þau frá 1957-1971 er þeir Bjarni og
Kristinn hófu störf.
Tilefni myndar þeirrar sem hér birtist og var að eitt dagblaðanna
heiðraði þá fyrir vel unnin störf með „(h)rós í lmappagatið".
Kristinn Guðmuncissoit og Bjarni Hannesson, heila- og taugaskurðlæknar.
Myndfrá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Ijósmyndari ópekktur, merkt ALB 003-
024-7-2. Hún birtist væntanlega í Alþýðublaðinu í nóvember 1975. Birt með
leyfi safnsins.
LÆKNAblaðið 2009/95 605