Læknablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 64
STOÐUAUGLYSINGAR
SJÚKRATRYGGINGAR (SLANDS
LAUGAVEGI 114-118
1 50 REYKJAVlK
Sjúkratryggingar íslands
Tryggingalæknir
Sjúkratryggingar íslands óska eftir að ráða lækni/lækna á Tryggingasvið stofnunarinnar.
Til greina kemur að ráða einn lækni í allt að 100% starf eða tvo í um það bil 50% starf.
Um erað ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem einkum erfjallað um réttindi sjúkratryggðra í
heilbrigðiskerfinu. Það lýtur aðallega að sjúkratryggingum, slysatryggingum og sjúklingatryggingu.
Helstu verkefni:
• Mat á bótaskyldu vegna slysatrygginga og sjúklingatryggingar
• Mat á þörf fyrir læknismeðferð erlendis
• Eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum sem m.a. byggir á hugmyndafræði gagnreyndrar heilsufræði
• Leiðbeiningarog ráðgjöftil starfsfólks varðandi læknisfræðilega þætti
Hæfniskröfur:
• Sérfræðiviðurkenning,ýmsar sérgreinar koma til greina
• Starfsreynsla sem sérfræðingur æskileg
• Frumkvæði, áhugi og metnaður i starfi og hæfni til að starfa sjálfstætt sem og í hópi
• Jákvætt viðmót og samskiptahæfileikar
Nánari upplýsingar um starfið veita Ingibjörg K.Þorsteinsdóttir sviðsstjóriTryggingasviðs og Magnús Páll Albertsson
tryggingalæknir ísíma 515 0000. Umsóknarfresturertil 22.mars2010.
Umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá má senda starfsmannaþjónustu Sjúkratrygginga íslands, Laugavegi 114-118,150
Reykjavík, í pósti eða rafrænt á starf@sjukra.is.Öllum umsóknum verður svarað þegarákvörðun um ráðningu iiggur fyrir.
Sjúkratryggingar (slands annast framkvæmd sjúkratrygginga ásamt því að semja um og greiða fyrir heilbrigðisþjónustu.
Markmið stofnunarinnar eru að gæta réttinda sjúkratryggðra, tryggja aðstoð til verndar heilbrigði óháð efnahag og að
stuðla að hagkvæmni og hámarksgæðum í heilbrigðisþjónustu. Hjá stofnuninni starfar öflugur og reyndur hópur fólks við
margþætta þjónustu.Starfsumhverfið erfjölskylduvænt og starfsandi góður.
Nánari upplýsingar um stofnunina eru á www.sjukra.is.
212 LÆKNAblaðið 2010/96