Læknablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 53
U M R Æ Ð A
0 G
F R É T T I R
A K R A N E S
Þórir Bergmundsson,
Bjöm Gunnarsson
og Rún Halldórsdóttir.
var sambærilegur á við það sem best gerist. Hvað
fæðingaþjónustuna varðar er mjög mikil áhersla
lögð á fyrirvaralausan aðgang að skurðþjónustu.
Lægra þjónustustig er ekki ásættanlegt og ekki
við hæfi að bjóða konum minna öryggi en
best þekkist hér á landi. Sjúkraflutningur til
kvennadeildar Landspítala tekur að minnsta
kosti eina klukkustund frá ákvörðun um inngrip
að komu á spítalann og sá tími er einfaldlega of
langur. Fæðingar með aðstoð ljósmæðra eingöngu
munu að líkindum verða færri en annars. Talið
er að á kragasjúkrahúsunum svokölluðu verði
áfram hægt að sinna svokölluðum lágáhættu
fæðingum. Engin fæðing er hins vegar örugg
fyrr en henni hefur lokið farsællega og vegna
undantekninganna er ekki hægt að taka neina
áhættu. Hér á Akranesi tókum við læknar mjög
óstinnt upp ummæli Bjöms Zoéga forstjóra
Landspítalans í Læknablaðinu í janúar er hann
sagði: „...þrátt fyrir fæðingardeildir og skurðstofur
með sólarhringsvakt allt í kringum Reykjavík þá dettur
engum annað í hug en senda sjúklinginn hingað ef
eitthvað bjátar á. Þessar sólarhringsvaktir veita falskt
öryggi og var reyndar aldrei ætlað neitt öryggishlutverk
heldur var þetta launauppbót til starfsmanna í formi
stöðugra bakvakta.”
Þessum ummælum Björns Zoéga mótmæltu
læknar á Akranesi kröftuglega með birtingu
greinar í Læknablaðinu, Morgunblaðinu og
Skessuhorni og sögðu þeir fjórir læknar, Björn
Gunnarsson, Edward Kiernan, Fritz H. Berndsen,
Rún Halldórsdóttir og Sigríður Þ. Valtýsdóttir,
er rituðu undir greinina að það væri „...ekki
stórmannlegt að gera lítið úr vinnu annarra. Við
trúum því að læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk um
allt land vinni jafnvel fyrir kaupinu sínu og starfsfólk
Landspítala."
„Staðreynd er að hlutfallslega fleiri sjúkdóms-
tilvikum er sinnt hér en annars staðar í kraganum
áður en til þess kemur að vísa sjúklingum til
Landspítala. Það sýna meðal annars staðtölur frá
slysa- og bráðasviði," segir Þórir.
Eftirsótt fæðingadeild
„Við viljum að sjálfsögðu eiga gott samstarf við
Landspítala og í flestum tilfellum er það mjög
gott," segir Rún Halldórsdóttir svæfingalæknir.
„Manni finnst skynsamlegra að hugsa þessa
starfsemi sem eina heild í stað þess að sé stríð á
milli sjúkrahúsa, því hér er góð stofnun með góða
aðstöðu."
Þau segja ástæðulaust að rekja einstök mál eða
svara yfirlýsingum einstakra yfirmanna deilda.
Stundum verði þó ekki annað lesið úr þeim orðum
en að helst vildu þeir sömu menn hvergi hafa
sérfræðilæknisþjónustu nema á Landspítala.
„Það gleymist stundum að hér eru starfandi
sérfræðingar með nákvæmlega sömu menntun,
kunnáttu og þjálfun og sérfræðingar Landspítala,"
segir Bjöm Gunnarsson svæfingalæknir.
„Við eigum mjög góða samvinnu við ákveðnar
deildir og svið spítalans og kunnum mjög vel
að meta það. Samvinna við rannsóknasviðið
er mjög góð. Rannsóknagögn okkar á sviði
blóðrannsókna og myndgreiningar eru vistuð á
LÆKNAblaðið 2010/96 201