Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 72

Læknablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 72
AstraZenecai; Hver forðatafla inniheldur: Quetiapinum INN fúmarat, samsvarandi Quetiapinum INN 50mg, 200 mg, 300mg og 400 mg. Ábendingar: Seroquel Prolong er ætlað til meðferðar við geöklofa. Seroquel Prolong hindrar bakslag hjá geðklofasjúklingum sem eru í stöðugu ástandi og fengiö hafa viöhaldsmeöferö með Seroquel Prolong. Seroquel Prolong er ætlaö til meöferöar við miðlungsalvarlegri til mjög alvarlegri geðhæð þegar um geðhvarfasjúkdóm er að ræða. Seroquel Prolong er ætlað til meðferðar við alvarlegum geðlægðarlotum í geðhvarfasjúkdómi (bipolar disorder). Seroquel Prolong er ekki ætlað til að fyrirbyggja endurtekin geðhæðar- eða geðlægðarköst. Skammtar og lyfjagjöf: Seroquel Prolong á að gefa einu sinni á sólarhring, án matar. Töflurnar á aö gleypa heilar, hvorki má skipta þeim, tyggja þær nó mylja. Fullorðnir: Til meðferðar við geðklofa og miölungsalvarlegum til mjög alvarlegum geðhæðarlotum þegar um geðhvarfasjúkdóm er aö ræða. Seroquel Prolong á að gefa að minnsta kosti einni klukkustundu fyrir máltfð. Dagsskammtur við upphaf meðferðar er 300 mg á fyrsta degi og 600 mg á öðrum degi. Ráölagöur dagsskammtur er 600 mg, hins vegar má auka skammtinn í 800 mg á dag ef það er klínískt róttlætanlegt. Breyta skal skammtinum innan virka skammtabilsins 400 - 800 mg/sólarhring, háð klínískri svörun og þoli sjúklings. í viðhaldsmeðferð við geðklofa er ekki þörf á að stilla skammta. Til meðferðar á geðlægðarlotum þegar um geðhvarfasjúkdóm er aö ræða. Gefa á Seroquel Prolong að kvöldi, fyrir svefn. Heildardagsskammtur fyrir fyrstu fjóra daga meöferöar er 50 mg (dagur 1), 100 mg (dagur 2), 200 mg (dagur 3) og 300 mg (dagur 4). Ráölagður sólarhringsskammtur er 300 mg. Auka má skammtinn í 600 mg á sólarhring, háð svörun sjúklings viö lyfinu. Sýnt var fram á áhrif gegn geðlægö við 300 mg og 600 mg sólarhringsskammta, hins vegar sáust engin viðbótaráhrif hjá þeim sem fengu 600 mg á sólarhring umfram þá sem fengu 300 mg á sólarhring við skammtímameöferö. Meðferð á geðlægöarlotum í geðhvarfasjúkdómi á að vera í höndum lækna með reynslu af meðferð geðhvarfasjúkdóms. Skipt úr Seroquel filmuhúðuðum töflum: Hjá sjúklingum sem fá meöferö með fleiri en einum skammti daglega af Seroquel filmuhúöuðum töflum má skipta yfir I meðferö meö jafngildum skömmtum af Seroquel Prolong einu sinni á dag til að einfalda skömmtun. Nauösynlegt getur verið að stilla skammta einstaklingsbundið. Aldraðlr: Eins og viö á um önnur geðrofslyf, skal gæta varúöar við notkun Seroquel Prolong handa öldruöum, sórstaklega í upphafi meöferðar. Verið getur að breyta þurfi skömmtum Seroquel Prolong hægar og lækningalegur dagsskammtur getur verið minni en hjá yngri sjúklingum. Úthreinsun quetiapins úr plasma var að meöaltali 30-50% hægari hjá öldruðum en hjá yngri sjúklingum. Hefja á meöferö hjá öldruðum með 50 mg/sólarhring. Auka má skammtinn um 50 mg/ sólarhring þar til viöunandi skammti er náð, háð klínískri svörun og þoli viökomandi sjúklings. Verkun og öryggi hafa ekki veriö metin hjá sjúklingum eldri en 65 ára með geðlægðarlotur þegar um geöhvarfasjúkdóm er að ræða. Börn og unglingar: Ekki hefur veriö lagt mat á öryggi og verkun Seroquel Prolong hjá börnum og unglingum. Skert nýrnastarfseml: Ekki er nauösynlegt að breyta skammti hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi. Skert lifrarstarfseml: Quetiapin umbrotnar að miklu leyti í lifur. Því skal gæta varúöar við notkun Seroquel Prolong hjá sjúklingum sem vitaö er að eru með skerta lifrarstarfsemi, sórstaklega í upphafi meöferöar. Upphafsskammtur ætti að vera 50 mg/sólarhring hjá sjúklingum sem vitað er að eru með skerta lifrarstarfsemi. Skammtinn má auka daglega um 50 mg/sólarhring þar til viöunandi skammti er náð, háð klfnfskri svörun og þoli viðkomandi sjúklings. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverjum hjálparefnanna. Samhliða notkun cýtókróm P450 3A4 hemla, eins og HlV-próteasa hemla, azól sveppalyfja, erytromycins, claritromycins og nefazodons er frábending. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Svefnhöfgi (somnolcnce): Meöferö með quetiapini hefur verið tengd við svefnhöfga og tengd einkenni, eins og sljóleika . í klínfskum rannsóknum á meöferö sjúklinga með geðlægð vegna geöhvarfasjúkdóms, hófust þessi einkenni venjulega á fyrstu þremur dögum meðferðar og voru aðallega væg eða í meðallagi alvarleg. Sjúklingar með geðlægö vegna geðhvarfasjúkdóms sem finna fyrir miklum svefnhöfga geta þurft á tföara eftirliti að halda í aö minnsta kosti 2 vikur frá upphafi svefnhöfga eða þar til einkennin ganga til baka og hafa verður í huga hvort hætta á meöferö. Hjarta og æðakerfi: Seroquel Prolong á að nota með varúð hjá sjúklingum með þekktan hjarta- og æðasjúkdóm, sjúkdóm í heilaæðum eða aðra sjúkdóma þegar hætta er á lágþrýstingi. Quetiapin getur valdið réttstöðu- þrýstingsfalli sórstaklega f upphafi þegar verið er að auka skammta smám saman, því skal hafa f huga að minnka skammta eða auka skammta hægar ef þetta gerist. Hafa skal hægari skammtaaukningu í huga hjá sjúklingum með undirliggjandi hjarta- og æöasjúkdóma. Flog (selzures): í klínískum samanburðarrannsóknum var enginn munur á tíðni floga hjá sjúklingum sem fengu quetiapin eða lyfleysu. Eins og á við um önnur geörofslyf, er mælt með að gæta varúðar við meðferð hjá sjúklingum með sögu um flog. Utanstrýtueinkennl: Aukin tíðni utanstrýtueinkenna kom fram við notkun quetiapins í samanburöi við lyfleysu í klínískum samanburðarrannsóknum hjá sjúklingum sem fengu meöferð við alvarlegum geðlægðarlotum í geöhvarfasjúkdómi. Síðkomln hreyfltruflun (tardlve dysklnesla): Ef vart veröur einkenna um síökomna hreyfitruflun ætti að íhuga að hætta notkun Seroquel Prolong eða minnka skammta. Illkynja sefunarheilkennl (Neuroleptic Malignant Syndrome): lllkynja sefunarheilkenni hefur verið tengt við meöierð meö geðrofslyfjum, þ.m.t. quetiapin. Klfnfsk einkenni eru t.d. ofurhiti, breytt andlegt ástand, vöövastífni, óstöðugleiki í ósjálfráða taugakerfinu og hækkun á kreatín fosfókínasa. í slíkum tilvikum skal hætta notkun Seroquel Prolong og veita viðeigandi lyfjameðferð. Alvarleg daufkyrnlngafæð: Sjaldan hefur verið greint frá alvarlegri daufkyrningafæð (fjöldi daufkyrninga <0,5 X 109/1) í klínískum rannsóknum á quetiapini. Flest tilvik alvarlegrar daufkyrningafæðar komu fram innan nokkurra mánaöa eftir upphaf meðferöar með quetiapini. Engin augljós tengsl voru við skammta. Reynsla eftir markaðssetningu hefur leitt f Ijós að hvítfrumnafæö og/eða daufkyrningafæð hefur gengið til baka eftir að meöferð með quetiapini var hætt. Hugsanlegir áhættuþættir fyrir daufkyrningafæð eru meðal annars undirliggjandi lágur fjöldi hvítra blóðkorna og saga um daufkyrningafæð af völdum lyfja. Hætta á meðferð með quetiapini hjá sjúklingum með fjölda daufkyrninga <1.0 X 109/1. Fylgjast á með merkjum og einkennum um sýkingu hjá sjúklingum sem og fjölda daufkyrninga (þar til fjöldi þeirra fer yfir 1,5 X 109/1). Mllliverkanir: Þegar quetiapin er notað samhliða öflugum lifrarensímahvötum s.s. carbamazepini eöa fenýtófni lækkar plasmaþéttni quetiapins verulega og getur það haft áhrif á verkun quetiapin meöferðar. Aðeins ætti að hefja meðferö með Seroquel Prolong hjá sjúklingum sem nota lifrarensímhvata ef læknirinn metur að ávinningur Seroquel Prolong meðferöar vegi þyngra en áhættan af því að hætta notkun lifrarensímhvatans. Það er mikilvægt að allar breytingar á notkun ensímhvatans gerist hægt og ef nauösyn krefur nota annað lyf sem ekki hvetur lifrarensím (t.d. natríumvalproat). Blóðsykurshækkun: Blóðsykurshækkun eða versnun á sykursýki hefur komiö fram meðan á meðferð með quetiapini stendur. Mælt er með viöeigandi klínísku eftirliti hjá sykursjúkum og hjá sjúklingum sem eru í hættu á að fá sykursýki. Lípið: Greint hefur veriö frá hækkun þríglýseríða og kólesteróls f klfnfskum rannsóknum á quetiapini. Meðhöndla skal hækkun lípíða eins og á við klínískt. Lenging á QT: í klínískum rannsóknum og við notkun í samræmi við SPC hefur quetiapin ekki veriö tengt þrálátri aukningu á algildum (absolute) QT bilum. Hins vegar hefur lenging á QT komiö fram við ofskömmtun. Eins og við á um önnur geðrofslyf skal gæta varúðar þegar quetiapin er ávísað handa sjúklingum með hjarta- og æðasjúkdóm eða fjölskyldusögu um lengingu á QT. Einnig skal gæta varúðar þegar quetiapin er ávísað með lyfjum sem þekkt er að auka QTc bilið og samhliða sefandi lyfjum (neuroleptics), sórstaklega hjá öldruöum, sjúklingum með meðfætt heilkenni langs QT, hjartabilun (congestive heart failure), hjartastækkun, blóðkalfumlækkun eða blóðmagnesfumlækkun. Fráhvarf: Bráðum fráhvarfseinkennum eins og svefnleysi, ógleði, höfuðverk, niðurgangi, uppköstum, sundli og óróleika hefur verið lýst þegar meðferð meö quetiapini hefur verið hætt skyndilega. Mælt er með að dregiö só smám saman úr skömmtum á einni til tveimur vikum þegar meðferð er hætt. Aldraðir sjúklingar með geðrof tengd elliglöpum: Notkun Seroquel Prolong til meðferðar hjá sjúklingum með geðrof tengd elliglöpum er ekki viöurkennd. Með sumum óheföbundnum geðrofslyfjum hefur sést um 3-föld aukning áhættu hvaö varðar aukaverkanir á heilaæðar (cerebrovascular) í slembuöum samanburðarrannsóknum með lyfleysu hjá þýöi með elliglöp. Ekki er þekkt af hverju þessi aukna áhætta stafar. Ekki er hægt að útiloka aukna áhættu fyrir önnur geðrofslyf eða önnur sjúklingaþýði. Gæta skal varúðar við notkun Seroquel Prolong hjá sjúklingum þegar áhættuþættir heilablóðfalls eru til staðar. I safngreiningu á óhefðbundnum geðrofslyfjum hefur verið greint frá aukinni hættu á dauða hjá öldruðum sjúklingum með geðrof tengd elliglöpum samanboriö við lyfleysu. Þó var dánartíöni sjúklinga í tveimur 10-vikna samanburöarrannsóknum með lyfleysu og quetiapini hjá sama sjúklingaþýði (n=710, meðalaldur 83 ár, á bilinu 56-99 ára) 5,5% á móti 3,2% fyrir lyfleysuhópinn. Ýmsar orsakir voru fyrir dauða sjúklinganna í þessum rannsóknum en þær voru í samræmi við það sem búast má við fyrir þýðið. Þessar niöurstööur staðfesta ekki aö orsakasamband sé á milli quetiapin meðferðar og dauðsfalla hjá öldruðum sjúklingum með elliglöp. Mjólkursykur (laktósa): Seroquel Prolong töflur innihalda mjólkursykur (laktósa). Sjúklingar með galaktósaóþol, laktasaþurrð eða glúkósa-galaktósa vanfrásog, sem eru sjaldgæfir arfgengir kvillar, skulu ekki taka lyfiö. Viðbótarupplýsingar: Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um notkun quetiapins samhliða divalproex eða litíum við bráðum, miðlungsalvarlegum til mjög alvarlegum geðhæðarköstum; hins vegar þoldist samsetningin vel. Niöurstöður sýndu viðbótaráhrif á þriðju viku. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Þar sem áhrif quetiapins beinast að mestu að miðtaugakerfinu ber að gæta varúöar við samhliða notkun Seroquel Prolong og annarra lyfja sem verka á miötaugakerfiö sem og alkóhóls. Cýtókróm P450 (CYP) 3A4 er það ensím sem að mestu leyti sér um cýtókróm P450 miöluö umbrot quetiapins. Samhliða notkun quetiapins (25 mg) og ketoconazols, CYP 3A4 hemils, í rannsókn á milliverkunum hjá heilbrigðum sjálfboöaliöum, olli 5- til 8-faldri aukningu á AUC quetiapins. Með þetta til hliðsjónar er samhliða notkun quetiapins og CYP3A4 hemla frábending. Auk þess er ekki mælt með töku quetiapins með greipaldinsafa. í fjölskammta rannsókn á sjúklingum til aö meta lyfjahvörf quetiapins fyrir og meðan á meðferð með carbamazepini (þekktum lifrarensímhvata) stóð yfir kom fram að carbamazepin eykur úthreinsun quetiapins marktækt. Þessi aukning á úthreinsun minnkaði almenna útsetningu fyrir quetiapini (mælt sem AUC) að meðaltali í um 13% af því sem var þegar quetiapin er notað eitt sér; þó að meiri áhrif hafi komið fram hjá sumum sjúklingum. Afleiðing þessarar milliverkunar getur verið minni plasmaþéttni sem getur haft áhrif á verkun Seroquel Prolong meðferðarinnar. Samhliða notkun quetiapins og fenýtóíns (annar frymisagnarensímhvati) jók úthreinsun quetiapins um þaö bil 450%. Aöeins ætti að hefja meöferö með Seroquel Prolong hjá sjúklingum sem nota lifrarensímhvata ef læknirinn metur að ávinningur Seroquel Prolong meðferðar vegi þyngra en áhættan af því að hætta notkun lifarensímhvatans. Það er mikilvægt að allar breytingar á notkun lifrarensfmhvatans gerist hægt og ef nauösyn krefur nota annað lyf sem ekki hvetur lifrarensím í staðinn (t.d. natríumvalpróat). Lyfjahvörf quetiapins breyttust ekki marktækt við samhliöa notkun þunglyndislyfjanna imipramins (þekktur CYP 2D6 hemill) eða fluoxetins (þekktur CYP 3A4 og CYP 2D6 hemill). Geðrofslyfin risperidon og haloperidol höfðu ekki marktæk áhrif á lyfjahvörf quetiapins við samhliða notkun. Samhliða notkun quetiapins og thioridazins olli um 70% aukningu á úthreinsun quetiapins. Lyfjahvörf quetiapins breyttust ekki við samhliða notkun með cimetidini. Lyfjahvörf litíums breyttust ekki við samhliöa notkun með quetiapini. Við samhliða notkun natríumvalproats og quetiapins breyttust lyfjahvörf þeirra ekki að þvf marki að það heföi klíníska þýöingu. Ekki hafa veriö gerðar formlegar rannsóknir á milliverkunum við algeng lyf við hjarta- og æðasjúkdómum. Gæta skal varúðar þegar quetiapin er notaö samhliða lyfjum sem þekkt eru að valda ójafnvægi blóðsalta eða auka QTc biliö. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir quetiapins sem greint hefur verið frá eru svefnhöfgi, sundl, munnþurrkur, vægt þróttleysi, hægðatregða, hraður hjartsláttur, réttstöðuþrýstingsfall og meltingartruflanir. Eins og á við um önnur geðrofslyf hefur þyngdaraukning, yfirlið, illkynja sefunarheilkenni, hvítfrumnafæð, daufkyrningafæð og bjúgur á útlimum tengst notkun quetiapins. Tíðni aukaverkana í tengslum við meöferö með quetiapini, er talin upp hór að neöan f samræmi við þá uppsetningu sem Council for International Organizations of Medical Sciences (CIOMS III Working Group; 1995) mælir með. Blóð oa eitlar: Alaenaar: Hvítfrumnafæð. Sjaldgæfar: Eósínfíklager. Ekki þekkt: Daufkymingafæð. Ómæmiskerfi: Sjaldgæfar: Ofnæmi. Koma örsjaldan fyrir: Bráöaofnæmi. Efnaskipti og næring: Koma örsjaldan fyrir: Sykursýki. Taugakerfi: Mjög algengar: Sundl, svefnhöfgi, höfuðverkur. Algengar: Yfirlið, utanstrýtueinkenni. Sjaldgæfar: Krampar, fótaóeirð, tormæli. Koma örsjaldan fyrir: Síðkomin hreyfitruflun (tardive dyskinesiat. Hjarta: Algengar: Hraðtaktur. Augu: Algengar: Þokusýn. Æðar: Algengar: Réttstöðuþrýstingsfall. Öndunarfæri. brjósthol oú miðmæti: Algengar: Nefslímubólga. Meltingarfæri: Mjög algengar: Munnþurrkur. Algengar: Hægðatregða, meltingartruflanir. Sjaldgæfar: Kyngingartregða. Lifur og gall: Mjög sjaldgæfar: Gula. Koma örsjaldan fyrir: Lifrarbólga. Húð oa undirhúð: Koma örsjaldan fyrir: Ofsabjúgur, Stevens-Johnson heilkenni. Æxlunarfæri og brjóst: Mjög sjaldgæfar: Standpína (priapism). Almennar aukaverkanir og ástand tengt ikomuleið: Mjög algengar: Fráhvarfseinkenni. Algengar: Vægt þróttleysi, bjúgur á útlimum. Mjög sjaldgæfar: lllkynja sefunarheilkenni. Rannsóknamiðurstöður: Miöa algengar: Hækkun á gildum þríglýseríða í sermi. Hækkun á heildarkólesteróli (aðallega LDL kólesteróli). Algengar: Þyngdaraukning, hækkun á transamínösum (ALT, AST) í sermi, fækkun daufkyrninga, blóðsykur hækkar yfir eðlileg mörk. Sjaidgæfar: Hækkun á gamma-GT gildum. Greint hefur veriö frá tilfellum um lengingu á QT, sleglasláttarglöp (ventricular arrhythmia), skyndilegum óútskýrðum dauða, hjartastoppi og torsades de pointes við notkun sefandi lyfja sem eru talin tengjast þessum lyfjaflokki. í skammtíma samanburöarrannsóknum með lyfleysu, á geðklofa og geðhæð í geðhvarfasjúkdómi, var samanlögð tíðni utanstrýtueinkenna svipuð og með lyfleysu (geðklofi: 7,8% fyrir quetiapin og 8% fyrir lyfleysu; geðhæð í geðhvarfasjúkdómi: 11,2% fyrir quetiapin og 11,4% fyrir lyfleysu). í skammtíma samanburðarrannsóknum með lyfleysu, á geðlægð í geðhvarfasjúkdómi, var samanlögð tíðni utanstrýtueinkenna 8,9% fyrir quetiapin samanborið við 3,8% fyrir lyfleysu, þrátt fyrir að tíðni einstakra aukaverkana (t.d. hvíldaróþol (akathisia), utanstrýtukvilla, skjálfta, hreyfingatregðu, truflaðrar vöðvaspennu, óróleika, ósjálfráðra vöðvasamdrátta, skynhreyfiofvirkni, og vöðvastífni) hafi almennt veriö lág og ekki farið yfir 4% í neinum meðferðarhópanna. í langtímarannsóknum á geðklofa og geðhvarfasjúkdómi var samanlögð tíðni utanstrýtueinkenna sem krafðist meðferðar, svipuð fyrir quetiapin og lyfleysu. Quetiapin meðferð hefur tengst lítilli skammtaháðri lækkun á skjaldkirtilshormónum, sórstaklega á heildar T4 og óbundnu T4. Lækkunin á heildar T4 og óbundnu T4 náði hámarki á fyrstu 2-4 vikum Seroquel meðferðar, en við langvarandi notkun varð ekki frekari lækkun. Þegar meðferö með Seroquel var hætt, gengu áhrifin á heildar T4 og óbundið T4 til baka í nær öllum tilvikum, óháö því hversu lengi meðferðin hafði staðið. Minni lækkun á heildar T3 og óvirks (reverse) T3 sáust eingöngu við stærri skammta. Magn TBG var óbreytt og yfirleitt kom ekki fram gagnkvæm aukning á TSH og engin vísbending um að quetiapin valdi vanstarfsemi skjaldkirtils sem hafi klíníska þý< Desember 2008. Sjá nánar í Sérlyfjaskrá á vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is Pakkningar og verð: Seroquel Prolong foröatöflur 50 mg, 100 stk.: kr. 20.603; 200 mg, 100 stk.: kr. 34.664; 300 mg, 10 stk.: kr. 6.981; 300 mg, 100 stk.: kr. 58.277; 400 mg, 100 stk.: kr. 67.048;. Febrúar 2010. Afgreiðslutilhögun: R. Greiösluþátttaka:* Markaðsleyfishafi: AstraZeneca A/S, Albertslund, Danmörk. Umboðsaðili á íslandi: Vistor hf„ Garðabæ. lingu. SEInu 8innl a dag - - Seroquel Prolong< 1 forfatöflur W quetiapine S3mg,ZCmg,3Xm8l«0/rg SEROQUELPROLONG foröatöflur, AstraZeneca, N 05 A H 04 SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS - Styttur texti 220 LÆKNAblaðiö 2010/96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.