Læknablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 3
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
Ný heimasíða
blaðsins
Stýrikerfi heimasíðu blaðsins var orðið úr
sér gengið, leitin á síðunni mjög gölluð og
engin leið að bæta hana nema með nýju
kerfi. Samhliða stýrikerfisuppfærslu var
ákveðið að fríska uppá útlitið svo það héld-
ist í hendur við nýmæli í innræti. Gagarín
sem unnið hefur lengi að tæknilausnum,
margmiðlun og forritun á sérlausnum eins
og fyrir Læknablaðið hannaði heimasíðuna
upphaflega og útbjó nú nýja síðu sem að
þeirra áliti heldur í við nútímann. Stýrikerfið
er Eplica2 frá Hugsmiðjunni. - Það er bjart-
ara yfir nýju síðunni og þar inni er nú allt
efni blaðsins ásamt fylgiritum frá árinu
2000.
www. laeknabladid. Is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogí
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Þjóðfundur lækna
Læknar þurfa að koma að umræðu um niðurskurð og því boða Læknafélag Reykjavíkur og íslands
til fundar miðvikudaginn 10. mars að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Á fundinum gefst læknum kostur
á að ræða forgangsröðun og framtíðarsýn í heilbrigðismálum. Stjórnir LÍ og LR munu kynna
niðurstöður fundarins fyrir heilbrigðisyfirvöldum, stjórnmálamönnum og embættismönnum.
Það er ósk læknafélaganna að niðurstöðurnar verði mikilvægt innlegg í ákvarðanatöku yfirvalda.
Einnig er óskandi að þær kalli fram áframhaldandi umræðu meðal lækna, sem miði að því að þróa
heilbrigðisþjónustu á íslandi áfram til heilla fyrir land og þjóð.
250 læknum, völdum af handahófi úr félagatali LÍ, hefur verið sent boð um að taka þátt í fundinum.
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Á veraldarvefnum eru ótal Ijósmyndir í umferö af hinni
ungu leikkonu, Oliviu Wilde. Fyrst og fremst er um að
ræða kynningarefni í tengslum við þær kvikmyndir sem
hún hefur leikið í auk uppstilltra mynda fyrir blöð og
tímarit. Listamaðurinn Kristleifur
Björnsson (f. 1973) hnaut um
eina þeirra og notar nú sem grunn
að þeirri seríu verka sem hér um
ræðir, Olivia, 2010. Myndin er
eins dæmigerð og hugsast getur.
Leikkonan er með nánast samhverft
andlit sem uppfyllir almenn gildi um
fegurð og horfir beint í myndavélina.
Hliðarbirta, nærbolur og tælandi
augnaráð eru síðan sígildar
stílfæringar til að ná fram blekkingu
um nánd svefnherbergisins.
Ljósmyndarinn er ónefndur eins og
títt er um myndefni á netinu, myndin
dúkkar þar upp og Kristleifur nælir
sér í hana. Hann leggur gagnsæjan
pappír yfir útprentaða Ijósmyndina,
tyllir með límbandi og tekurtil við
að renna lauslega með blýanti yfir andlit og hörund
leikkonunnar. Honum er í mun að teikna hvorki né apa
eftir, heldur draga myndina í gegn án persónulegs
handbrags. Hann lætur sér ekki nægja að gera þetta einu
sinni heldur endurtekur ferlið hundrað sinnum, prentar
út sömu myndina og dregur hana í gegn um þunnan
pappír. Þannig kemur til kasta hinna mótsagnakenndu
eiginleika endurtekningarinnar. Verkið er sett fram
sem röð sambærilegra mynda og fer fjöldi þeirra eftir
aðstæðum en þá gefst kostur á að bera saman líkindi og
frávik frá einni til annarrar. Aðdráttarafl
Ijósmyndarinnar er undirstrikað en
jafnframt drepið á dreif um leið og
listamaðurinn fer höndum um hana í
einrúmi aftur og aftur, tímunum saman,
þar sem hann ýmist dregur fyrirmyndina
fram eða bregður á hana hulu.
Kristleifur hefur ítrekað unnið með
Ijósmyndir af laglegum leikkonum sem
hann hefur fundið á netinu. (nokkrum
tilfellum prentar hann myndirnar út
í smá bútum á fjölda A4 blaða sem
hann límir saman og mótar flennistórar
myndir sem ná frá gólfi og upp í loft.
Hann velur sérstaklega myndir sem
bera með sér sömu stílfæringu, þar sem
fyrirsætan bregður sér í hlutverk ætlað
áhorfandanum einum - eins og hann
hafi jafnvel sjálfur smellt af mynd á góðri
samverustund. Kristleifur leikur sér að því að auðkenna
þessar myndir með heitinu My Girls, eða stelpurnar
mínar, og tekur þær þannig á orðinu, ef svo má segja.
Markús Þór Andrésson
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi
Umhverfisvottuð prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðíð áskilur sér rétt til að
birta og geyma efni blaðsins á
rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með
neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2010/96 151