Læknablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 3
Glóðvolgur (slendingur fæddur á Landspítala 23.febrúar 2012, skuldar ekkert ogfær ef til vill fæöirigarstyrk.
Breytingar á reglum um fæðingarstyrk
Á fundi stjórnar Fjölskyldu- og styrktarsjóðs lækna (FOSL) hinn 1. febrúar síðastliðinn voru samþykktar
breytingar á reglum sjóðsins um fæðingarstyrki.
Breytingin felst í því að ef báðir foreldrar barns eru læknar fá þeir framvegis báðir fæðingarstyrk,
annað foreldrið fær fullan styrk, hitt foreldrið fær hálfan styrk. Áður voru reglur þannig að aðeins
var veittur einn styrkur með hverju barni. Fullur fæðingarstyrkur vegna eins barns nemur nú 350.000
krónum, eða 525.000 krónum ef báðir foreldrar eru læknar. Þá er ennfremur gerð sú breyting að sækja
þarf um fæðingarstyrk innan árs frá fæðingu barns.
Eingöngu læknar sem starfa og þiggja laun á íslandi eiga rétt á að fá greiddan fæðingarstyrk úr
sjóðnum. Sjá nánar reglur FOSL á heimasíðu Læknafélags íslands, www.lis.is. Aðrar breytingar voru
ekki gerðar á reglunum, en stjórnin vinnur að heildarendurskoðun þeirra.
Stjórn FOSL skipa þau Dóra Lúðvíksdóttir, formaður, Hjalti Már Þórisson og Ólafur Þór Gunnarsson.
Varamaður er Rannveig Pálsdóttir.
^^^HLISTAMAÐUR MANAÐaRINS
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
w ww. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaðurog Ijós-
myndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
10.900,- m. vsk.
Lausasala
1090,- m. vsk.
Bára Kristinsdóttir (f. 1960) hefur undanfarin ár unnið
fjölbreyttar Ijósmyndaseríur sem margar hafa sést á
sýningum. Hún hefur markvisst þróað
listræna Ijósmyndun sína frá þvi hún
lærði fagið I Svíþjóð á níunda áratugnum
og fluttist til (slands að nýju I upphafi
þess tíunda. Hún hefur verið virkur félagi
í hinu unga Félagi íslenskra samtímaljós-
myndara sem var meðal annars sýnilegt
á Listahátíð í Reykjavík í fyrra og stóð
fyrir Ljósmyndadögum nú í febrúar sem
leið. (nýlegum verkum, Stillu, skrásetti
Bára nærumhverfi borgarinnar skömmu
eftir hrun og náði að myndgera ráðaleys-
ið og spennuna sem ríkti I samfélaginu.
Nokkru fyrr fangaði hún annars konar
andrúmsloft dulúðar og framandleika I
seríunni Heitir reitir sem tekin var í göml-
um og nýjum gróðurhúsum. Bára safnar
nú efni I nýja myndaröð sem byggist
á vinnuheitinu „Get ég gert eitthvað fyrirþig?" (2012).
Þar leitast hún við að tjá íslandi ást sína og þakklæti fyrir
allt það sem landið hefur gefið henni I gegnum árin. Eins
og í fyrrnefndum seríum eru myndirnar mannlausar þótt
ummerki manna sé víða að sjá. Hún ferðast um á öllum
árstíma og fangar umhverfið I sinni hversdagslegu mynd,
en ekki þá upphöfnu ægifegurð sem
stundum einkennir sýn okkar á landið.
Myndirnar eru fremur af því landi sem
okkur hættir til að yfirsjást og taka
sem sjálfsögðum hlut. Verkin bera ekki
með sér bláeyga von um skilyrðislausa
umhverfisvernd en efla vitundina
um hið sérstaka sambýli manns og
náttúru hér á landi. Bára myndar I
slyddu og þoku, uppi á heiðum og inni
I miðri borg. Hið óárennilega einskis-
mannsland sem sjá má á forslðumynd
Læknablaðsins þar sem njólar og
hríslur vaxa I algerri órækt er ekki eins
langt undan og mann gæti grunað.
Myndin er tekin nærri Valsvelli hjá
Flugvallarvegi í Reykjavík og linsunni
beint að Landspítalanum sem sést í
skammdegissólinni I fjarska. Eins og svo oft búa látlausar
myndir Báru yfir einhverjum spennandi snúningi sem
kemur á óvart.
Markús Þór Andrésson
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaöið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2012/98 135