Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 58
Ritstjórn er sífellt á höttunum eftir því að halda Læknablaðinu lifandi og láta það ekki festast í farinu. Liður í því er að fá fleiri raddir kolleganna til að hljóma. í þessu skyni hefur blaðið kallað eftir pistlum frá formönn- um sérgreinafélaga og undirdeilda Læknafélags íslands og Reykjavíkur þar sem þeir reifi það sem efst er á baugi í þeirra félagi. Hlutverk barnalækna í heilsugæslu Björn Hjáimarsson Formaður Félags íslenskra barnalækna bjorn.hjalmarsson@heilsugaeslan.is www.barnalaeknar.is Barnalæknar starfa í heilsugæslu, á einka- stofum, á barnadeildum sjúkrahúsa og á greiningarstofnunum. Þessum hlutverkum er gjarnan skipt í 1., 2. og 3. stigs þjónustu. Sú spurning sem hér er velt upp er hvort barnalæknar eigi erindi í 1. stigs þjón- ustunni, það er að segja á heilsugæslu- stöðvum. Til þess að svara því þarf að velta fyrir sér hvert viðbótarvægi þeirra eigi að vera og hvaða viðfangsefni og vandamál tengd börnum heimilislæknar og hjúkrunar- fræðingar þurfi aðstoðar með. Fræðilega mætti spyrja hvaða viðfangsefni og vandamál barnalæknar væru betur fallnir til að sinna en heimilislæknar. Einnig þarf að spyrja hvort skynsemi sé í teymisvinnu heimilislækna, hjúkrunarfræðinga og barnalækna eða hvort verið sé að dreifa ábyrgð óþarflega. Til þess að svara slíkum spurningum þarf að gera skipulega könn- un á því hverjar óskir og þarfir foreldra eru, barnanna sjálfra, heilbrigðisstarfs- manna og stjórnvalda. Ég tel að allir þessir aðilar óski eftir aðkomu barnalækna að frumheilsugæslu barna. Það er líka stefna þeirra heilsugæslustöðva sem framsækn- astar eru að hafa barnalækni. Færa má félagsleg rök fyrir því að börn séu sérstakur hópur skjólstæðinga heilsu- gæslunnar. Þau eru háð innsæi og þekk- ingu foreldra sinna. Þau geta ekki valið sér lækni sjálf. Þau mynda ekki þrýstihópa. Þau geta ekki varið sig ef þjónustan er ófullnægjandi. Þau eru viðkvæm vegna þroskastöðu sinnar og skilningsleysi á því sem fram fer. Þau hafa mikla þörf fyrir nærgætni, hlýju og skilning. Fagleg rök fyrir því að barnalæknar komi að frumheilsugæslu er að sérþekk- ingar er þörf á helstu heilsuvám barna eins og einhverfurófsröskunum, astma, athyglisbresti og ofvirkni, vandamálum tengdum létt- og fyrirburum, kvíða og þunglyndi í börnum og unglingum, með- fæddum hjartagöllum og sjaldgæfum sjúkdómum sem bundnir eru bernskunni. Hér skiptir máli að greina frávik á frum- stigum, bregðast markvisst við þeim eða vísa í sérhæfðari þjónustu. Lagaleg rök fyrir aðkomu barnalækna að frumheilsugæslu má finna í lögum um réttindi sjúklinga nr. 74 / 1997: „ ... sjúk- lingur á rétt á fullkomnustu heilbrigðis- þjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita." (3. grein). Síðar í lögunum kemur fram að „Umhverfi og aðbúnaður sjúkra barna á heilbrigðisstofnunum skal hæfa aldri þeirra, þroska og ástandi." (27. grein) I báðum þessum greinum felst sterk krafa um sérhæfingu starfsfólks sem kemur að þjónustu við börn á heilbrigðisstofnunum. Siðferðileg rök fyrir aðkomu barna- lækna að heilsugæslu barna má finna í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem samþykktur var á allsherjarþingi 1989 og undirritaður fyrir Islands hönd ári síðar. Hann öðlaðist gildi á íslandi 1992 og unnið er að löggildingu hans. Hann felur í sér réttindi mjög víðtæks eðlis. I Barna- sáttmálanum er lögð áherslu á að börn sem hópur þarfnast sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu. í honum felst viðurkenning á því að börn eru sjálfstæðir einstaklingar með eigin réttindi (sjálfstæð réttindi) sem eru óháð réttindum hinna fullorðnu. Sáttmálinn á að tryggja vel- ferð barna á sviði heilbrigðis-, mennta- og félagsmála. Það er mín skoðun að öll börn hafi meðfædda tign, það er að segja hæfileika til að elska. Þau hafa í öðru lagi með- fædda reisn, það er hæfileika til að sigrast á daglegum viðfangsefnum án þess að sú lausn komi niður á öðrum (fremja dáðir) og finna merkingu. í þriðja lagi hafa þau meðfædda göfgi eða hæfileika til að fyrir- gefa og skynja fegurð. Það er hlutverk for- eldra, kennara, heilbrigðisstarfsmanna og yfirvalda að skapa börnum það samfélag sem stendur vörð um þessi þrjú grunn- gildi mennskunnar. Vanræksla gagnvart þörfum barna og ofbeldi gegn þeim (and- legt, líkamlegt og kynferðislegt) skerðir getu þeirra til að elska, fremja dáðir, finna merkingu og til að fyrirgefa. Hlutverk barnalæknis í heilsugæslu er að sinna markvissu forvarnarstarfi. Huga þarf að geðvernd foreldra og stuðningi við þá í krefjandi uppeldishlutverki. Þá þarf að greina þroskafrávik, veikindi og áhættuhópa til þess að unnt sé að beita snemmtækri íhiutun. Góður barnalæknir setur heimilislæknum og hjúkrunar- fræðingum gott fordæmi í vinnu með börn og eflir þá í allri vinnu með þau. Undan- farin 10 ár hef ég starfað í samvinnu við heimilislækna, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga á heilsugæslustöðvum og get því fullyrt að slík teymisvinna er gagnleg, gefandi og skemmtileg. Þess vegna er bagalegt til þess að vita hversu erfiðlega gengur að manna stöður barnalækna á heilsugæslustöðvum. Það var ógæfuspor að leggja niður Miðstöð heilsuverndar barna. Hún hafði forystuhlutverk í heilsuvernd barna á landsvísu. Því er mikilvægt að hún verði endurreist sem allra fyrst. í öðru lagi þarf að skipa yfirlækni barnalækninga innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til þess að sinna innra skipulagi og stuðla að því að starfsumhverfi, réttindi og launakjör barnalækna í heilsugæslu verði sambæri- leg þeim sem heimilislæknar njóta. Efla þarf faglegt samráð barnalækna í heilsu- gæslu við heimilislækna, barnalækna á stofum, greiningarstofnunum og barna- deildum. Gera þarf samstarfssamninga við þriðja stigs stofnanir um símenntun barnalækna í heilsugæslu. Það eru verðug verkefni á 20. afmælisári Barnasáttmálans á íslandi. 190 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.