Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 44
UMFJÖLLUN O G GREINAR Bráðalækningar á slysstað ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Viðar Magnússon er yfirlæknir bráða- þjónustu utan sjúkrahúsa á íslandi og um- sjónarlæknir sjúkraflutninga á höfuðborg- arsvæðinu. Hann hefur fjölþætta reynslu af bráðalækningum bæði á vettvangi og innan sjúkrahúsa. A málþingi um bráðalækningar á Læknadögum i janúar sagði hann frá reynslu sinni af þjálfun og störfum með þyrlusveitum í Bretlandi um eins árs skeið 2010-2011. Viðar starfaði á vegum breska hersins og Nató í Bosníu að loknu kandídatsári sínu 1997 og í framhaldi af því um tveggja ára skeið á lyfjadeild og bráða- deild Landspítala, en samhliða því á neyðarbílnum og þyrlum Landhelgisgæslunnar. „Ég lauk einnig meistaranámi í rekstrar- fræðum (MBA) og starfaði í eitt ár eftir það sem rekstrarráðgjafi hjá McKinsey & Co. í Kaupmanna- höfn en fannst ég ekki vera þar á alveg réttri hillu og hvarf aftur til læknisstarfa á bráðadeildinni þar til ég fór í sérnám í svæfinga- og gjörgæslulækningum í Osló árin 2006-2010. Ég fór þaðan til Englands og starfaði í eitt ár við bráðalækningar utan spítala í þyrlusveit í Surrey og í London." Brjóstholsaðgerð á götunni Bresku þyrlusveitirnar sem Viðar starfaði með ganga undir skammstöfuninni HEMS (Helicopter Emergency Medical Service) og fyrsta spurningin snýst einfaldlega um hvað í því sé fólgið. „Þetta er bráðateymi sem sérhæfir sig í meðferð alvarlegra slysa og er gert út af örkinni með þyrlu til að komast sem fyrst á slysstað. Hugmyndin með þessu teymi er að sjúklingurinn geti á næstu stóru bráðadeild (major trcmma centré) sem eru fjórar í London. Við byrjum strax að meðhöndla sjúklinginn á slysstað, stundum er hann fastur í flaki bifreiðar og ekki hægt að hreyfa hann fyrr en hann hefur fengið verkjastillingu eða jafnvel svæfingu. Þá gerir teymið líka bráðar aðgerðir sem ekki geta beðið, eins og spelkun mjaðmagrindarbrota og ísetningu brjóstholskera (thorax dren). Sveitin er ekki síst fræg fyrir það að gera bráðar brjóstholsaðgerðir úti á götu, en þær eru gerðar vegna hjartastopps af völdum stunguáverka á brjóstkassa. Þetta er dramatískasta inngrip sem ég hef tekið þátt í að framkvæma úti á götu." Einstaklega vel skipulagt Aðspurður um árangur af starfi HEMS-sveitarinnar segir Viðar að erfitt sé að gera góðar sam- anburðarrannsóknir í þessum sjúklingahópi en nýleg grein um árangur brjóstholsaðgerðanna sýnir að sé þetta gert innan 5-10 mínútna frá því að sjúklingurinn fer í hjartastopp eftir stungu- eða skotáverka á brjóstið þar sem um er að ræða blæðingu inn í goll- urshúsið er hægt að bjarga yfir 15%.' „Hér erum við að tala um sjúklinga sem samkvæmt skil- merkjum amerísku skurðlækna- samtakanna væru úrskurðaðir látnir á staðnum. Sömu skilmerki innan bráðadeildar kalla á lífg- unarviðbrögð með öllum ráðum og það er í rauninni markmiðið sem traumateymi HEMS hefur sett sér. Að færa bráðaþjónustuna af bráðadeildinni út á götuna. Arangurinn af þessu þykir það góður að menn eru orðnir ákveðnari við að framkvæma fengið sérhæfða slysameðferð strax á vett- vangi í stað þess að bíða eftir að komast inn á bráðadeild sjúkrahúss. Þyrlan sér til þess að við komumst fljótt á staðinn og í London er hún algjör nauðsyn vegna þess hve umferðin er oft þung og hæg en í Surrey nýttist hún við að komast hratt yfir lengri vegalengdir, svipað og hér heima. Það er svo háð staðsetningu slyss- ins og flutningstíma og hverjir áverkarnir eru, hvort þyrlan er nýtt til að fljúga með sjúklinginn á Royal London sjúkrahúsið eða hvort hann er fluttur með sjúkrabíl „Besta pjálfun sem ég heffengið nokkurs staðar," segir Viðar Magnússon um þjálfun hjá bráðateymi þyrlusveitnr í London. Ljósmynd: HEMS 176 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.