Læknablaðið - 15.03.2012, Side 44
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Bráðalækningar á slysstað
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Viðar Magnússon er yfirlæknir bráða-
þjónustu utan sjúkrahúsa á íslandi og um-
sjónarlæknir sjúkraflutninga á höfuðborg-
arsvæðinu. Hann hefur fjölþætta reynslu
af bráðalækningum bæði á vettvangi
og innan sjúkrahúsa. A málþingi um
bráðalækningar á Læknadögum i janúar
sagði hann frá reynslu sinni af þjálfun og
störfum með þyrlusveitum í Bretlandi um
eins árs skeið 2010-2011.
Viðar starfaði á vegum breska hersins
og Nató í Bosníu að loknu kandídatsári
sínu 1997 og í framhaldi af því um tveggja
ára skeið á lyfjadeild og bráða-
deild Landspítala, en samhliða
því á neyðarbílnum og þyrlum
Landhelgisgæslunnar. „Ég lauk
einnig meistaranámi í rekstrar-
fræðum (MBA) og starfaði í eitt ár
eftir það sem rekstrarráðgjafi hjá
McKinsey & Co. í Kaupmanna-
höfn en fannst ég ekki vera þar
á alveg réttri hillu og hvarf aftur
til læknisstarfa á bráðadeildinni
þar til ég fór í sérnám í svæfinga-
og gjörgæslulækningum í Osló
árin 2006-2010. Ég fór þaðan til
Englands og starfaði í eitt ár við
bráðalækningar utan spítala í
þyrlusveit í Surrey og í London."
Brjóstholsaðgerð á götunni
Bresku þyrlusveitirnar sem
Viðar starfaði með ganga
undir skammstöfuninni HEMS
(Helicopter Emergency Medical
Service) og fyrsta spurningin
snýst einfaldlega um hvað í því
sé fólgið.
„Þetta er bráðateymi sem
sérhæfir sig í meðferð alvarlegra
slysa og er gert út af örkinni með
þyrlu til að komast sem fyrst á
slysstað. Hugmyndin með þessu
teymi er að sjúklingurinn geti
á næstu stóru bráðadeild (major trcmma
centré) sem eru fjórar í London. Við byrjum
strax að meðhöndla sjúklinginn á slysstað,
stundum er hann fastur í flaki bifreiðar
og ekki hægt að hreyfa hann fyrr en hann
hefur fengið verkjastillingu eða jafnvel
svæfingu. Þá gerir teymið líka bráðar
aðgerðir sem ekki geta beðið, eins og
spelkun mjaðmagrindarbrota og ísetningu
brjóstholskera (thorax dren). Sveitin er
ekki síst fræg fyrir það að gera bráðar
brjóstholsaðgerðir úti á götu, en þær eru
gerðar vegna hjartastopps af völdum
stunguáverka á brjóstkassa. Þetta
er dramatískasta inngrip sem ég
hef tekið þátt í að framkvæma úti
á götu."
Einstaklega vel skipulagt
Aðspurður um árangur af starfi
HEMS-sveitarinnar segir Viðar
að erfitt sé að gera góðar sam-
anburðarrannsóknir í þessum
sjúklingahópi en nýleg grein um
árangur brjóstholsaðgerðanna
sýnir að sé þetta gert innan 5-10
mínútna frá því að sjúklingurinn
fer í hjartastopp eftir stungu- eða
skotáverka á brjóstið þar sem um
er að ræða blæðingu inn í goll-
urshúsið er hægt að bjarga yfir
15%.' „Hér erum við að tala um
sjúklinga sem samkvæmt skil-
merkjum amerísku skurðlækna-
samtakanna væru úrskurðaðir
látnir á staðnum. Sömu skilmerki
innan bráðadeildar kalla á lífg-
unarviðbrögð með öllum ráðum
og það er í rauninni markmiðið
sem traumateymi HEMS hefur
sett sér. Að færa bráðaþjónustuna
af bráðadeildinni út á götuna.
Arangurinn af þessu þykir
það góður að menn eru orðnir
ákveðnari við að framkvæma
fengið sérhæfða slysameðferð strax á vett-
vangi í stað þess að bíða eftir að komast
inn á bráðadeild sjúkrahúss. Þyrlan sér
til þess að við komumst fljótt á staðinn
og í London er hún algjör nauðsyn vegna
þess hve umferðin er oft þung og hæg en
í Surrey nýttist hún við að komast hratt
yfir lengri vegalengdir, svipað og hér
heima. Það er svo háð staðsetningu slyss-
ins og flutningstíma og hverjir áverkarnir
eru, hvort þyrlan er nýtt til að fljúga með
sjúklinginn á Royal London sjúkrahúsið
eða hvort hann er fluttur með sjúkrabíl
„Besta pjálfun sem ég heffengið nokkurs staðar," segir Viðar Magnússon um þjálfun
hjá bráðateymi þyrlusveitnr í London. Ljósmynd: HEMS
176 LÆKNAblaðið 2012/98