Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 56

Læknablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 56
OxyNorm Dispcrsa N02AA05 (Stytt samantekt á eiginleikum lyfs) Lyfjaform: Munndreifitafla. Heiti virkra innihaldsefna: Oxýkódon hýdróklóríð, 5 mg, 10 mg eða 20 mg.Abendingar: Miklir eða mjög miklir verkir. Skammtar og lyfjagjöf: 77/ inntöku: OxyNorm Dispersa er aðallega ætlað til að stilla einstaklingsbundinn upphafsskammt meðferðar sem síðan er haldið áffam með forðalyijaformum og til meðferðar eftir þörfum á bráðaverkjum. Skammtinn á að laga að því hversu miklir verkimir eru og hve næmur hver sjúklingur er. Sé ekki um að ræða hentuga skammta eru einnig fáanlegir aðrir styrkleikar og lyfjaform þessa lyfs. Hafi ekki verið gefin fyrirmæli um annað á að gefa OxyNorm Dispersa sem hér segir: Fullorðnir og unglingar (eldri en 12 ára): Venjulegur upphafsskammtur er 5 mg oxýkódon hýdróklóríð á 6 klukkustunda fresti. Síðan á að auka skammt varlega, á hverjum degi ef þurfa þykir, til þess að ná fram verkjastillingu. Réttur skammtur fyrir hvern sjúkling um sig er sá sem viðheldur nægilegri verkjastillingu og með ásættanlegum aukaverkunum. Ef lyfið er notað sem hjálparlyf bendir þörf á meira en tveimur „bráðaskömmtum" á dag venjulega til þess að stilla þurfi forðalyfsskammtinn upp á við. Sjúklingar sem þegar eru á ópíóíðmeðferð geta þurfl stærri upphafsskammta af OxyNorm Dispersa eftir því hver fyrri reynsla þeirra af ópíóíðum er. Börn (yngri en 12 ára): Notkun OxyNorm Dispersa er ekki ráðlögð hjá börnum yngri en 12 ára þar sem ekki eru til fullnægjandi gögn varðandi öryggi og virkni. Aldraóir sjúklingar: Yfirleitt þarf ekki að breyta skammti hjá öldruðum sem ekki eru með klínískt staðfesta skerðingu á lifrar- eða nýmastarfsemi. Sjúklingar i áhœttu: Hjá sjúklingum með nýmabilun er brotthvarf oxýkódons og umbrotsefiia þess takmarkað. Hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi endast verkjastillandi áhrifm Iengur og plasmaþéttni er hækkuó. Hjá sjúklingum sem hafa ekki áður fengið ópíóíða á ráðlagður upphafsskammtur því að vera helmingur þess skammts sem venjulega er ráðlagður fyrir fullorðna. Þetta á einnig við um sjúklinga með lága líkamsþyngd og sjúklinga þar sem Iyfjaumbrot ganga hægar fyrir sig. Engin reynsla er af lyfjagjöf við skilunaraðstæður. Aðferð við lyfjagjöf: OxyNorm Dispersa á að taka með 4-6 stunda millibili. Ef OxyNorm Dispersa er notað til skammtastillingar á að taka það samkvæmt fastri tímaáætlun (á 6 klukkustunda fresti). Munndreifitöfluna á að setja á tunguna þar sem hún er sogin þar til hún hefur sundrast algjörlega í munnvatninu áður en hún er gleypt. OxyNorm Dispersa má taka með mat eða milli mála. Notkunartimabil: OxyNorm Dispersa ætti ekki að gefa lengur en bráðnauðsynlegt þykir. Sé langtíma verkjameðferð nauðsynleg vegna eðlis og alvarleika veikinda ætti að viðhafa náið eftirlit til þess að ákvarða hvenær og að hve miklu leyti þörf er á frekari meðferð. Þegar sjúklingur þarf ekki lengur á ópíóíðmeðferð að halda er ráðlagt að minnka skammtinn smám saman til að koma í veg fyrir fráhvarfseinkenni. Frábendingar: Ofnæmi fyrir oxýkódon hýdróklóríði eða einhverju hjálparefnanna. Alvarleg öndunarbæling með súrefnisskorti í vefjum og/eða koltvísýringshækkun; alvarleg langvarandi lungnateppa, hægri hjartabilun (cor pulmonale), þannalömun, meðganga og brjóstagjöf. OxyNorm Dispersa má hvorki nota hjá sjúklingum með berkjuastma eða aðra sjúkdóma í öndunarfærum þar sem það getur haft í for með sér alvarlegt ofnæmi í öndunarfærum né hjá smábömum að 2 ára aldri þar sem OxyNorm Dispersa inniheldur síneól. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: OxyNorm Dispersa liefur ekki verið prófað hjá bömum yngri en 12 ára. Því hefur öryggi og verkun ekki verið staðfest og ekki er mælt með notkun OxyNorm Dispersa fyrir börn yngri en 12 ára. Gæta skal varúðar þegar meðhöndlaðir eru aldraðir eða veiklaðir sjúklingar; sjúklingar með alvarlega skerta lungna-, lifrar- eða nýrnastarfsemi; sjúklingar með fitulopa (myxedema), vanstarfsemi skjaldkirtils, Addisonsveiki (ónóg framleiðsla kortisóls í nýrnahettum), stækkaðan blöðruhálskirtil, eitrunargeðrof (t.d. áfengi), áfengissýki, titurvillu (delerium tremens), þekktan ópióíðávana, brisbólgu; gallsteinaveiki, hindrandi bólgusjúkdóma í þönnum, sjúklingar með aukinn innankúpuþrýsting og þeir sem eiga vanda til blóðþrýstingsfalls, flogaveiki eða hafa tilhneigingu til krampa, sjúklingar á meðferð með MAO-hemlum. Sé um að ræða þarmalömun eða grunur sé um sjúkdótninn skal stöðva inntöku OxyNorm Dispersa tafarlaust. Öndunarbæling er aðaláhættan við ofskömmtun ópíóíða og kemur helst fyrir hjá öldruðum eða veikluðum sjúklingum. Öndunarbælandi áhrif oxýkódons geta valdið því að koltvísýringur hleðst upp í blóði og síðar i heila-mænuvökva. Ópíóíðar geta valdið alvarlegum lágþrýstingi hjá viðkvæmum einstaklingum. Sjúklingurinn getur myndað þol fyrir virka efninu við langvarandi notkun og þurft stöðugt stærri skammta til þess að hafa stjóm á verkjum. Krossþol við aðra ópíóíða kemur venjulega fram. Langvarandi notkun OxyNorm Dispersa getur valdið líkamlegri ávanabindingu og fráhvarfseinkenni geta komið fram ef meðferð er hætt skyndilega. Þegar sjúklingur þarf ekki lengur á meðferð með oxýkódoni að lialda, getur verið ráðlegt að minnka skammt smám saman til þess að koma í veg fyrir fráhvarfseinkenni. Oxýkódon getur í raun valdið ávanabindingu, en ef það er notað samkvæmt leiðbeiningum hjá sjúklingum sem þjást af langvarandi verkjum, er hættan á líkamlegri og sálrænni ávanabindingu greinilega minni. Þó liggja ekki fyrir upplýsingar til að ákvarða rétta tíðni andlegrar ávanabindingar (fíknar) hjá sjúklingum með langvinna verki. Fara á sérlega gætilega í að nota OxyNorm Dispersa hjá sjúklingum með sögu um misnotkun áfengis og lyfja. OxyNorm Dispersa er einungis ætlað til inntöku. Misnotkun með innspýtingum í æð á innihaldsefnum töflunnar geta leitt til alvarlegra, hugsanlega banvænna atvika. Þetta lyf inniheldur súkrósa og aspartam. Sjúklingar með frúktósaóþol, glúkósa-galaktósa vanfrásog eða súkrósa-ísómaltasaþurrð, sem eru sjaldgæfir arfgengir kvillar, skulu ekki taka lyfið. Aspartam breytist í fenýlalanín. Getur verið skaðlegt þeim sem eru með fenýlketónmigu. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Lyf sem verka á miðtaugakerfið, svo sem róandi lyf, svefnlyf, fenótíazín, sefandi lyf, þunglyndislyf, andhistamín, uppsölulyf og aðrir ópíóíðar eða áfengi, geta eflt aukaverkanir, einkum öndunarbælingu. Lyf með andkólínvirkum áhrifum (t.d. geðlyf, andhistamín, uppsölulyf, Parkinsonslyf) geta aukið á andkólínvirkar aukaverkanir oxýkódons, eins og hægðatregðu, munnþurrk eða tmflanir á þvaglátum. Klíniskt marktæk lækkun eða hækkun á INR (Intemational Normalized Ratio) hefúr komið fram í einstaka tilfellum ef oxýkódon og kúmarín segavamarlyf em gefin samtímis. Címetidín getur hamlað umbrotum oxýkódons. Öflugir CYP 3A4 og 2D6 hemlar geta hafl áhrif á brotthvarf oxýkódons. Þó hafa forklínískar og klínískar rannsóknir gefið til kynna að hömlun á cýtókróm P450 3A4 og 2D6 hafi enga klíníska þýðingu. Ekki er vitað um áhrif annarra hemla á ísóensim cýtókrómkerfisins sem máli skipta á umbrotum oxýkódons. Gera á ráð fyrir hugsanlegum milliverkunum. Frjóscmi nteðganga og brjóstagjöf: OxyNorm Dispersa má ekki nota meðan á meðgöngu og brjóstagjöf stendur. Upplýsingar eru ófullkomnar um notkun oxýkódons hjá þunguðum konum. Oxýkódon fer yfir fylgju. Langvarandi notkun OxyNorm Dispersa á meðgöngu getur valdið fráhvarfseinkennum hjá nýburanum. Ef OxyNorm Dispersa er notað i fæðingu, getur fóstrið orðið fyrir öndunarbælingu. Oxýkódon berst í brjóstamjólk. Þéttnihlutfall efnisins í plasma miðað við mjólk mældist 3,4:1. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: OxyNorm Dispersa getur skert hæfni til aksturs og stjómunar véla. Líklegra er að það gerist í upphafi OxyNorm Dispersa meðferðar, eftir aukningu skammts eða ef breytt er um lyf, einnig ef OxyNorm Dispersa er notað ásamt áfengi eða öðmm efnum sem bæla miðtaugakerfið. Ekki er víst að þetta eigi við um sjúklinga í jatnvægi á viðeigandi skammti. Því á læknir að ákvarða hvort leyfilegt sé fyrir sjúkling að aka eða stjóma vélum. Aukaverkanir: Vegna lyljafræðilegra eiginleika getur oxýkódon valdið öndunarbælingu, sjáaldursþrengingu, berkjukrampa og krampa í sléttum vöðvum og getur bælt hóstaviðbragð. Þær aukaverkanir sem oftast var tilkynnt um eru ógleði (sérstaklega í upphafi meðferðar) og hægðatregða. Innan tíðniflokka em alvarlegustu aukaverkanimar taldar upp fýrst. Svkingar af völdum svkla og sníkiudvra: Af/ög sialdeœfar: Áblástur. Ónæmiskerfi: Sjaldgæfar: Ofnæmi. Koma örsjaldan fyrir. Ofnæmislost. Efnaskipti og næring: Algengar: Minnkuð matarlyst til lystarleysi. Mjög sjaldgæfar. Vökvatap, aukin matarlyst. Geðræn vandamál: Algengar: Skapsveiflur og persónuleikabreytingar (t.d. kvíði, þunglyndi, sæluvima), minnkuð virkni, eirðarleysi, skynhreyfiofvirkni (psychomotor hyperactivity), uppnám, taugaveiklun, svefnleysi, óeðlilegur þankagangur, mgl. Sjaldgœfar. Breytingar á skynjun (t.d. ofskynjanir, sjálfshvarf), minnkuð kynlöngun. Ávanabinding lyrir lyfinu getur komið fram. Taugakerfi: Mjög algengar: Slæving (svefndrungi til bældrar meðvitundar), sundl, höfuðverkur. Algengar: Yfirlið, náladofi. Sjaldgœfar: Einbeitingarleysi, mígreni, brenglað bragðskyn, aukin vöðvaspenna, skjálfti, ósjálfráðir vöðvakippir, snertiskynsminnkun, samhæfingartruflanir. Mjög sjaldgœfar: Krampaköst (einkum hjá fólki með flogaveiki eða tilhneigingu til krampa), minnisleysi. Koma örsjaldan fyrir. Talörðugleikar. Augu: Sjaldgœfar. Sjóntmflanir. Evm og völundarhús: Sjaldgœfar: Skert heym. Hiarta: Sjaldgæfar: Hraðtaktur. Mjög sjaldgæfar: Hjartsláttarónot. Æðar: Ateenear: Lágþrýstingur. Sjaldgæfar: Æðavíkkun. Öndunarfæri, briósthol og miðmæti: Algengar: Andnauð. Sjaldgœfar: Raddtruflanir, hósti. Meltingarfæri: Mjög algengar:Hægðatregða, uppköst, ógleði. Algengar: Kviðverkir, niðurgangur, munnþurrkur, liiksti, meltingartruflanir. Sjaldgæfar: Sár í munni, munnbólga, uppþemba. Mjög sjaldgœfar:Svartur saur, tannkvilli, gómblæðingar, kyngingartregða. Koma örsjaldan jyrir. Gamastífla. Lifur og gall: Sjaldgœfar: Gallsteinakveisa. Koma örsjaldan fyrir: Hækkun lifrarensíma. Húð og undirhúð: Mjög algengar.Kláði. Algengar: Ofnæmisviðbrögð/útbrot. Mjög sjaldgœfar: Húðþurrkur. Koma örsjaldan fyrir: Ofsakláði. Nvm og bvagfæri: Aleenear: Þvagteppa, þvaglátstregða, bráð þvaglátsþörf. Æxlunarfæri og brióst: Sialdeœfar: Getuleysi. Mjög sjaldgæfar: Tíðateppa. Almennar aukaverkanir og aukaverkanir á íkomustað: Algengar: Ofsviti til kuldahrolls, máttleysi. Sjaldgæfar: Líkamleg ávanabinding með fráhvarfseinkennum, verkir (t.d. brjóstverkir), slappleiki, bjúgur. Mjög sjaldgœfar: Þyngdaraukning, þyngdartap, þorsti. Ávanabinding fyrir lyfinu getur komið fram. Áverkar og eitranir: Sjaldgæfar: Áverkar eftir slys. OxyNorm Dispersa getur valdið raddbandakrampa hjá ungbömum og smábömum að 2 ára aldri (vegna hjálparefhisins síneóls). Ofskömmtun: Einkenni ofskömmtunar: Sjáaldursþrenging, öndunarbæling, svefndrungi sem leitt getur til hugstols, slappir beinagrindarvöðvar, hægtaktur og lágþrýstingur. Dauðadá, lungnabjúgur sem ekki er af völdum hjartabilunar og blóðrásarbilun getur átt sér stað í alvarlegri tilvikum og getur hafl lífshættulegar afleiðingar. Meðhöndlun ofskömmtunar: Ofskömmtun má meðhöndla með því að gefa ópíóíð blokka (t.d. naloxón 0,4-2 mg í æð). Gjöfina á að endurtaka á 2-3 mínútna fresti eftir þörfum eða með innrennsli 2 mg í 500 ml af 0,9% natríum klóríði eða 5% dextrósa (0,004 mg/ml af naloxóni). Innrennslið á að vera á hraða sem samræmist þeim stöku skömmtum (bolus) sem áður hafa verið gefnir og í samræmi við svörun sjúklingsins. Ihuga á magatæmingu. Stuðningsaðgerðir (þar með talin öndunarvél, súrefni, æðaþrengjandi lyf og vökvainnrennsli) á að viðhafa til þess að takast á við það lost sem íýlgir slíkri ofskömmtun. Hjartastopp eða hjartsláttartruflanir geta kallað á hjartahnoð eða hjartastillingu. Nota skal öndunarvél ef þurfa þykir. Viðhalda skal vökva- og blóðsaltagildum. Afgrciðslutilhögun og grciðsluþáttaka: R, X. Pakkningar og hámarkssmásöluverð (1. febrúar 2012): OxyNorm Dispersa 5 mg 28 stk; 2493 kr, OxyNorm Dispersa 10 mg 28 stk; 4576 kr, OxyNorm Dispersa 20 mg 28 stk; 7981 kr. Markaðsleyfishafi: Norpharma A/S Slotsmarken 15 2970 Horsholm Danmörk. Dagsetning endurskoðunar textans: 27. júní 2011. Heimildir: Samantekt á eiginleikum lyfs (SPC). Sérlyfjaskrártexta í heild sinni má nálgast hjá umboðsaðila á Islandi Icepharma hf. og á www.serlvfiaskra.is 188 LÆKNAblaðið 2012/98

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.