Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN
Hætta á neyðarástandi á Landspítala
Stundum er haft á orði að veikur maður
eigi aðeins eina ósk. Þegar sjúkdómar ógna
lífi og einhver von er um lækningu, er það
reynsla lækna að hinn sjúki og aðstand-
endur vilja allt til vinna að lækning takist,
jafnvel þegar lífshorfur eru taldar í mán-
uðum en ekki árum. Lífstaugin er sterk.
Það er betra að vera lifandi en dauður í
huga flestra. Sem betur fer er það lítill hluti
hverrar þjóðar sem á ástvini sem glíma við
alvarleg veikindi eða horfast í augu við ná-
lægð dauðans á hverjum tíma. Margir eiga
því erfitt með að átta sig á hve ófullnægjandi
húsnæði og starfsumhverfi á Landspítala er
orðið. Það er raunar alls ekki sjálfgefið að
þjóð sem telur aðeins 320 þúsund manns
hafi forsendur til að reka háskólasjúkrahús
með nægum mannauði til að geta greint og
meðhöndlað langflesta sjúkdóma sem ógna
lífi og heilsu manna. Sífelit fleira bendir nú
til að þessar forsendur kunni að bresta hér
á landi á næstu mánuðum.
Margs konar ógnir steðja nú að mann-
auði Landspítala. Sumar má leysa með
bættum kjörum, aðbúnaði og vinnutíma.
Þær lausnir kosta þó allar meiri fjármuni
en eru í sjónmáli í fjárlögum ársins 2013.
Eftir aðeins fjórar vikur, hinn 1. mars,
munu uppsagnir 20% hjúkrunarfræðinga
spítalans taka gildi nema lausn finnist
með fjármögnun stofnanasamnings. Vert
er þó að geta þess að könnun mannauðs-
sviðs Landspítala á árinu 2012 sýndi mun
meiri óánægju meðal sérfræðilækna og
almennra lækna en hjúkrunarfræðinga á
Landspítala.1 Hjá læknunum voru nær öll
svör á rauðu, með öðrum orðum á svoköll-
uðu aðgerðastigi.
Aðrar ógnir eru þess eðlis að þær verða
ekki leystar með stofnanasamningum eða
í kjarasamningum. Flestir landsmenn vita
vegna mikillar umræðu á síðastliðnu ári
að tækjakostur Landspítala úreldist hratt.
Staða tækja ógnar nú þegar getu lækna til
skjótrar greiningar og meðferðar svo sem á
hjartasjúkdómum í Fossvogi.2 Einnig veld-
ur það óhagræði og stundum meðferðartöf
að almenn bráðamóttaka spítalans hefur
eingöngu verið rekin í Fossvogi í nokkur
ár þótt barnaspítali, hjartadeild og fleiri
deildir sem annast meðferð og aðgerðir á
sjúklingum með bráð mein í brjóstholi og
kviðarholi séu á Hringbraut.
Árin 2007 til 2009 sat undirritaður í hús-
næðisnefnd Landspítala. Það var lærdóms-
ríkt en lýjandi. Nefndin gekk um nær allar
byggingar spítalans til að forgangsraða því
litla fjármagni sem bauðst til viðhalds ár
hvert. Þær skipta tugum og eru dreifðar
um borgina. Leki og rakavandamál eru út-
breiddur vandi vegna ónógs viðhalds. Stór-
ar álmur eins og A-álma Landspítala í Foss-
vogi halda ekki vatni. Það eykur smithættu.
I A-álmunni er smitsjúkdómadeildin sem
er, líkt og aðrir deildir spítalans, með allt
of fá einbýli. Flestir eru á tvíbýli og daglegt
brauð að sjúklingar liggi á gangi. Það tor-
veldar mjög varnir gegn smitandi veirum
og bakteríum. Flestir verða að deila klósetti
með öðrum, sem eykur líkur á smiti með
tilheyrandi niðurgangsfaröldrum og tíma-
bundnum lokunum deilda.
Rannsóknarstofur spítalans hafa verið
reknar í lekum húskofum í bráðabirgða-
húsnæði í rúm 36 ár. Sumar þeirra eru
raunar í míglekum húsum eins og sú sem
greinir berklabakteríur og aðrar hættu-
legar og smitandi bakteríu- og veirusýk-
ingar í Ármúla. í geðdeildarbyggingunni
við Hringbraut er leki einnig langtímavandi
þótt húsið sé aðeins 35 ára gamalt. Enginn
með réttu ráði léti hús sitt grotna niður
með þeim hætti sem Landspítali hefur mátt
sætta sig við á síðasta áratug.
Nú hefur komið í ljós að myglusveppir
hafa komið sér vel fyrir vegna leka á þriðju
hæð gamla spítalans við Hringbraut. Ýmis-
legt bendir til þess að myglan skýri lang-
vinn og alvarleg einkenni sem starfsmenn
með aðsetur á hæðinni hafa fundið fyrir í
efri loftvegum. Heilsutjónið virðist mest hjá
þeim sem hafa varið þar mestum tíma og
hafa til dæmis þurft að sofa þar á vöktum.
Sumir þeirra munu líklega þurfa ævilanga
bólgumeðferð við loftvegasjúkdómi að sögn
lækna sem hafa meðhöndlað þá. Vatn leitar
gjarna niður á við. Gjörgæslan er í sömu
álmu á næstu hæð fyrir neðan. Það kostar
mikið fjármagn að verja hana og þétta og
þurrka þykka veggi í þessari gömlu bygg-
ingu, reynist það gerlegt. Starfsfólk Land-
spítala hefur sýnt fádæma langlundargeð í
þrengingum síðasta áratugar. Heilsuspill-
andi starfsumhverfi kann að verða kornið
sem fyllir mælinn hjá sumum.
Húsnæðismál sameinaðs háskólasjúkra-
húss hafa verið rædd og metin í meira en
áratug. Nefnd á vegum Jóns Kristjáns-
sonar, þáverandi heilbrigðisráðherra, skil-
aði skýrslu um málið í janúar 2002. Niður-
staðan þá og við endurskoðun sérfræðinga
hefur ávallt orðið sú að hagkvæmast sé að
byggja við Hringbraut. Nú þegar öll leyfi
fyrir byggingunni liggja fyrir þarf að hefj-
ast handa án tafar. Á þessari stundu er
mikil óvissa um hvernig hægt verður að
brúa bilið á Hringbraut þar til nýr spítali
rís. Eg spái að bráðabirgðaskúrum muni
fjölga á lóðinni á árinu. Eiga þeir eftir að
standa í 36 ár eins og bráðabirgðahúsnæði
rannsóknarstofa spítalans?
Heimildir
1. Sigurjónsson H. Vaxandi óánægja meðal sérfræðinga
Landspítala. Læknablaðið 2012; 98:600-2.
2. Jónsdóttir Þ. Tækjabúnaður Landspítala: umhyggja - fag-
mennska - öryggi - framþróun? Læknablaðið 2012; 98:
447.
Risk of a crisis developing at Landspítali
Engilbert Sigurðsson,
Editor-in-Chief of Læknablaðiö,
The lcelandic Medical Journal,
Professor of Psychiatry,
School of Health Sciences,
University of lceland,
Consultant Psychiatrist,
Landspítali University Hospital.
Engilbert
Sigurðsson
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Læknablaðsins,
prófessor í geðlæknisfræði við
læknadeild Háskóla íslands,
yfirlæknir við geðsvið Land-
spítala
engilbs@landspitali. is
LÆKNAblaðið 2013/99 67