Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 30
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Samtengingar á milli grunna
Aðgangur að lyfjagagnagrunni EL
Nýi lyfjagagnagrunnurinn er rauntimagrunnur, læknar munu geta skoðað óafgreidda Með tengingu Heklukerfisins við liina ýmsu upplýsingagrunna segir Ingi Steinar að
iyfseðla í lyfseðlagáttinni, séð stöðu á fjölnola lyfseðium og alla afgreidda lyfseðia. gamall draumur um heilbrigðisnet muni rætast.
sundur. Þetta er ein af ástæðum þess að ég
mæli ekki með því að sameina grunnanna
meira en orðið er. Ég vil samtengja þá sem
er allt annað en sameining. Þegar skoðað
er hvernig heilbrigðiskerfi landsins hefur
þróast blasir við að heilbrigðisstofnanir á
landsbyggðinni þurfa að vera í sambandi
við Landspítala og öfugt. Vissulega er þörf
fyrir tengingar á milli Norður- og Austur-
lands eða Suðurlands og Vesturlands svo
dæmi séu tekin en hún er miklu minni
en hitt. Mest flæði sjúklinga út fyrir heil-
brigðisumdæmi er beint á Landspítala
og það er einfaldlega mjög sjaldgæft að
sjúklingur sem er of veikur til að vera á
sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum sé sendur
á Selfoss. Hann er sendur beint á Land-
spítala."
Ingi Steinar segir að nú sé stefnan sem
sagt sú að tengja rafrænar sjúkraskrár á
landsvísu saman þannig að þeir sem sinna
sjúklingum hafi aðgang að nauðsynlegum
upplýsingum þegar á þarf að halda. Þetta
er gert með kerfi sem nefnist Hekla og er
eins konar rafræn samskiptagátt þar sem
allar sjúkrastofnanir landsins geta átt sam-
skipti sín á milli á öruggan hátt. „Þetta
kerfi hefur verið notað með góðum árangri
síðustu árin sem burðarlag fyrir rafræna
lyfseðla og ýmsar aðrar gagnasendingar í
heilbrigðiskerfinu en Heklan er nú í eigu
Embættis landlæknis." Með þessu segist
Ingi Steinar loksins vera farinn að sjá að
gamall draumur manna um heilbrigðisnet
sé að fara að rætast.
Rafræn sjúkraskrá á landsvísu
Embætti landlæknis tók við þróun raf-
rænnar sjúkraskrár í mars 2012 og vinnur
samkvæmt þeirri stefnu velferðarráðu-
neytisins að hverjum einstaklingi fylgi
ein sjúkraskrá frá vöggu til grafar, og að
sjúkraskrá sé heildstæð og samtengd fyrir
allt landið.
Ingi Steinar segir að tvær leiðir sé
hægt að fara varðandi rafræna sjúkraskrá.
„Annars vegar er hægt að taka upp alger-
lega nýtt kerfi, en hins vegar að byggja á
kerfum sem til eru. Fyrri leiðin kallar á
útboð fyrir allt landið, kostnaður er talinn
vera á bilinu 6-12 milljarðar króna og það
tekur 5-7 ár að koma slíku kerfi í gagnið
og 2-3 ár frá því að ákvörðun er tekin til
fyrstu innleiðingar. Þetta er risastórt verk-
efni, og bæði kostnaðar- og áhættusamt.
Síðari leiðin er að byggja á þeim
kerfum sem til eru, og vinna að sam-
tengdri sjúkraskrá í smærri skrefum og
þá er kostnaðurinn er 0,6-1,2 milljarðar til
að komast á ásættanlegan stað. Embætti
landlæknis vinnur núna eftir þessari leið
og hún nýtist í að minnsta kosti þrjú ár
þó farið verði í útboð á nýju kerfi. Út-
boðsleiðin verður samt sem áður áfram
til frekari skoðunar og umræðu. I þeirri
leið sem nú er unnið eftir erum við að tala
um að púsla betur saman því sem til er
og bæta við eftir þörfum. Til viðbótar við
áðurnefndar sameiningar grunna og sam-
tengingar á milli þeirra er lausnamengið
miðlægir landsgrunnar og rafrænar send-
ingar upplýsinga á milli aðila í gegnum
Heklu. Dæmi um miðlæga landsgrunna
eru bólusetningarskrá, sem rekin hefur
verið miðlæg í nokkur ár, og lyfjagagna-
grunnur þar sem rafrænn aðgangur er nú
að komast í gagnið fyrir lækna."
Með samtengingum í gegnum Heklu er
hægt að sækja upplýsingar á milli gagna-
grunna, svo sem um persónuupplýsingar,
ofnæmi, virk lyf, greiningar, meðferð,
mælingar, komur og innlagnir, og textasýn
fyrir komur og innlagnir eða önnur skrán-
Er ráðstefna framundan?
Alhliða skipulagning ráðstefna og funda
Engjateigur 5 1105 Reykjavik | 585-3900 | congress@congress.is | www.congress.is
congress
RE YKJ AVÍK
90 LÆKNAblaðið 2013/99