Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 33
f
heimsendingar
UWI ALLT LAND
þar sá ég að hún hafði komið ótal sinnum á bráðadeild og
farið í hverja aðgerðina á fætur annarri vegna bráðra kvið-
verkja en aldrei hafði neitt fundist. Eg tók einnig eftir því
að konan hafði ekki komið í 5 ár svo ég spurði hana hvort
hún hefði flutt burt hvers vegna hún hefði ekki komið svo
lengi vegna kviðverkjanna. Hún svaraði því til að hún
hefði loksins komist að því að orsökin var sifjaspellin sem
hún hafði orðið fyrir í æsku og þegar hún fékk viðeigandi
meðferð á öðrum vettvangi leystist þetta vandamál. Þetta
opnaði augu mín fyrir því hversu alvarlegt þetta getur
verið."
Fæðingarhræðsla og kynbundið ofbeldi
Þóra segir að konum sem gengið hafa í gegnum erfiða
fæðingarreynslu bjóðist að koma í viðtal á sérstakri
móttöku (Ljáðu mér eyra á kvennadeild Landspítala)
og þær koma helst þegar önnur fæðing er framundan.
„Það er reynsla okkar og á sambærilegum stöðum í
nágrannalöndunum að nær helmingur þeirra kvenna sem
lýsa erfiðri fæðingarreynslu hafa samkvæmt okkar mati
gengið í gegnum eðlilega fæðingu og án vandkvæða. Upp-
lifunin er allt önnur en mat okkar læknanna og ljósmæðr-
anna. Þessar konur eru mjög hræddar við að fæða aftur
og eru mjög líklegar til að hafa verið hræddar við fyrstu
fæðinguna líka og fara því með neikvæðu hugarfari inn í
fyrstu fæðinguna. Það er einnig mjög vel staðfest að tengsl
eru á milli fæðingarhræðslu og kynbundins ofbeldis sem
konan hefur orðið fyrir. Sumum konum finnst lausnin
vera að barnið fæðist með keisaraskurði en það er oftast
slæmur valkostur í þessari stöðu, þar sem heilsufars-
legar afleiðingar keisara eru mun verri (að minnsta kosti
líkamlegar) en eftir eðlilega fæðingu, tii dæmis er meiri
hætta á krónískum kviðverkjum. Eftir því sem keisara-
skurðir verða fleiri hjá sömu konu margfaldast þessar
líkur á fylgikvillum. En keisaraskurður er ekki alltaf og
skilyrðislaust verri kostur en fæðing um leggöng, þegar
fæðingarhræðslan er bugandi. Stundum eigum við ekki
annars úrkosta, en slíkt val þarf að undirbúa vel."
Þóra segir að tíminn sem sé til umráða til að vinna úr
svona flóknum málum með konum sem ganga með barn
og óttast fæðinguna vera ansi nauman. „Við höfum 6 mán-
uði frá því konan kemur fyrst í skoðun og þar til hún á að
fæða. En því fyrr sem hægt er að taka á vandanum, því
betra auðvitað og við höfum ýmis úrræði til að aðstoða
konur í þessum aðstæðum en við verðum að gera okkur
grein fyrir því að það tekur meira en nokkra mánuði að
vinna úr vanda sem á sér kannski áratugalanga forsögu."
Lyfjaskömmtun
Enn hagkvæmari
kostur2013
í nýju greiðsluþátttökukerfi lyfja á árinu
2013 verður lyfjaskömmtun Lyfjavers enn
hagkvæmari kostur og þar njóta viðskipta-
vinir bestu kjara.
Fylgist vel með á Lyfjaver.is
LYFJAVER
APOTEK + LYFJASKOMMTUN
SUÐURLANDSBRAUT 22 + SÍMI 533 6100 + LYFJAVER.IS
LÆKNAblaðið 2013/99 93