Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 40
UMFJÖLLUN O G GREINAR Upplýsingafundur um skýrslu vinnuhóps Læknafélags íslands um Almenna lífeyrissjóðinn var vel sóttur oggreinilegt að margir höfðu áhuga á að heyra nánar um málefni sjóðsins í kjölfar skýrslunnar. Enginn sá hrunið fyrir ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Læknafélag íslands efndi til upplýsinga- fundar um skýrslu vinnuhóps LI um Almenna lífeyrissjóðinn þann 10. janúar síðastliðinn. Stjórn LI skipaði vinnuhópinn á síðasta ári í kjölfar stórrar skýrslu um málefni lífeyrissjóðanna í landinu er fjallaði um fjárfestingastefnu, ákvarðanir og lagalegt umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda hrunsins. Sú skýrsla kom út í febrúar 2012, var 700 blaðsíður og vakti talsverða athygli. Komst Þorbjörn Jónsson formaður LÍ svo að orði er hann setti fund- inn að hann hefði orðið undrandi hversu ákveðið og harkalegt orðalag skýrsluhöf- unda hefði verið. Ekki þarf að fjölyrða um tilefni fundar- ins að öðru leyti en því að Almenni líf- eyrissjóðurinn tapaði nær 30 milljörðum í hruninu og í kjölfarið hafa lífeyrisréttindi lækna verið skert um tæp 25%. Vinnuhópurinn sem stjórn LI skipaði skilaði skýrslu sinni í haust og byggði hana að mestu á þeim kafla stóru skýrsl- unnar sem fjallaði um málefni Almenna lífeyrissjóðsins. Vinnuhópinn skipuðu Andrés Magnússon, Orri Þór Ormarsson og Sverrir Jónsson. Ekki er ætlunin að rekja efni þeirrar skýrslu hér enda má lesa hana í heild á heimasíðu Lækna- félagsins www.lis.is ásamt svörum stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins við þeirri gagnrýni sem sett er fram í skýrslunni. Fundinum var fyrst og fremst ætlað að upplýsa félagsmenn um stöðu mála, fara yfir söguna og hugsanlega lægja þær öldur reiði og gremju sem fylgdu í kjölfar fregna af hinu mikla tapi sjóðsins og skerðinga á réttindum sjóðfélaga. Andrés Magnússon hafði framsögu fyrir nefndina og rakti skýrslu hennar efnislega og sagði að erfitt væri að fjalla um þetta mál án þess að umræðan yrði persónuleg og beindist að stjórnendum Almenna lífeyrissjóðsins en þó væri mikil- vægt að ræða málið opinskátt án persónu- legra ávirðinga. Gunnar Baldvinsson fram- kvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins og Sigurbjörn Sveinsson formaður stjórnar sjóðsins höfðu framsögu fyrir hönd sjóðs- ins og sögðu skýrsluna bæði fulla af rang- færslum og að ýmis ummæli í henni væru persónulega meiðandi fyrir stjórnendur sjóðsins. Er bent á svar stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins sem liggur á heimasíðu Læknafélags íslands og greinargerð Gunn- ars Baldvinssonar til frekari glöggvunar á skýringum sjóðstjórnenda. Má segja að kjarni skýringa þeirra felist í því að enginn hafi séð efnahagshrunið fyrir og allir unn- ið eftir bestu sannfæringu og samvisku og ávallt með hagsmuni sjóðfélaga að leiðar- ljósi. Sigurbjörn kynnti þá ályktun stjórnar sjóðsins að kalla til lögfræðing er rannsaka skyldi trúverðugleika þeirra ásakana er fram kæmu í báðum skýrslunum. Fundurinn var vel sóttur og höfðu menn á orði að líklega yrðu umræður bæði heitar og langar. Svo reyndist þó ekki vera og var sáttatónn í fundarmönnum er tjáðu sig í pontu. Tryggvi Asmundsson sem tals- vert hefur gagnrýnt stjórnendur Almenna lífeyrissjóðsins sagði að þeir yrðu að geta tekið því að vera skammaðir en líklega væri best að horfa fram á veginn og hann kvaðst sjá lítinn tilgang í því að fenginn yrði lögfræðingur með tilheyrandi kostn- aði til að rannsaka málið enn frekar. Undir þetta tóku aðrir er tjáðu sig en annað mál er hvort stjórn Almenna lífeyrissjóðsins ályktar á annan hátt í kjölfar fundarins. 100 LÆKNAblaðiö 2013/99 J

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.