Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 45
UMFJÖLLUN O G GREINAR Fundurinn um Almenna lífeyrissjóðinn Af sænskum „selum“ Af „Oldungadeildum" á Norðurlöndum sýnist mér hvað mest líf í Sveriges Áldre Lakare eða SÁL innan vébanda Sveriges Lákarförbund. Meðlimir eru vel á 3. þúsund og er félaginu skipt í svæðisfélög. Haldinn er vor- og haust- fundur í aðalfélaginu og er annar þeirra aðal- fundur. Svæðisfélögin halda svo fáeina fundi á ári, oftast með fræðandi fyrirlestrum. „Selirnir" eins og þeir kalla sig halda úti myndarlegu blaði sem kemur út fjórum sinnum á ári. í því er lögð áhersla á stöðu eldri lækna innan samfélagsins og lækna- stéttarinnar. Loks standa selirnir fyrir ferðum víða um heim, árið 2013 til fjögurra landa. Heimasíða SÁL er: www.slf.se/sal PÁ Öldungasíðan Þessi síða Öldungadeildar LÍ er hin tuttugasta í Læknablaðinu. Sú fyrsta birtist í septemberblaðinu 2010.1 byrjun var síðan í hverju blaði en 2012 í öðru hverju blaði og mun svo verða um sinn. Undantekningar- lítið hefur okkur verið ætluð ein blaðsíða. Á fyrstu öldungasíðunni var þess getið að henni væri ætlað að flytja fréttir og fróð- leik. Viðruð var sú von að efnið höfðaði til fleiri en aldraðra lækna. Hefur mér heyrst að það hafi að nokkru ræst. Hvatt var til að félagar legðu henni til efni. Heimtur hafa reynst dræmari en vænst var. Auk mín hafa sjö félagar hlýtt kallinu, þar af einn fjórum sinnum. Efni síðunnar hefur verið allfjöl- breytt en misgott eins og gengur. Birst hafa minningabrot, ferðasögur, sögulegir pistlar, efni úr gömlum Læknablöðum, ferðasögur og ljóð. Öldungasíðunni verður því aðeins langra lífdaga auðið að á henni birtist áhugavert efni. Það á ekki að vera verk eins manns að tína það saman. Eg ítreka ákall mitt til félaga minna að leggja síðunni til efni í bundnu sem óbundnu máli, frum- samið sem endursagt, gaman sem alvöru. Ég veit að þið lumið á því. PÁ Benedikt Ó. Sveinsson læknir ben@centrum.is Þann 10. janúar síðastliðinn boðaði stjórn Læknafélags íslands til félags- fundar um málefni Almenna lífeyris- sjóðsins. Tilefnið var að kynna fyrir okkur læknum niðurstöður faghóps lækna sem hafði tekið að sér fyrir stjórn LI að rýna í úttektarskýrslu rann- sóknarnefndar lífeyrissjóða sem út kom í byrjun árs 2012. Faghópurinn, undir formennsku Andrésar Magnússonar læknis, tók að sér að kanna hvað fór úrskeiðis við gríðarlegt tap Almenna lífeyrissjóðsins í og við bankahrunið mikla. Fram kom á fundinum að tap sjóðsins hefði numið allt að 30 milljörð- um. Faghópurinn notaði úttektarskýrslu rannsóknarnefndarinnar sem megin- heimild og reyndi í niðurstöðu sinni að skrifa og útskýra á „mannamáli" þau atriði skýrslunnar sem lúta að Almenna lífeyrissjóðnum og varða hagsmuni okkar lækna í þessu máli. Fagna ber framgöngu stjórnar LÍ í að hrinda þessu máli í framkvæmd, enda hefur mikil reiði kraumað undir niðri hjá mörgum sjóðfélögum að sjá skyldusparnað sinn rýrna svo sem raun ber vitni. Fundurinn var vel kynntur og vel sóttur, en þar höfðu framsögu full- trúar LI og Almenna lífeyrissjóðsins. Þar fengust svör við mörgum spurn- ingum sem varpa betra ljósi á það sem úrskeiðis fór og hvert skal stefnt í fram- tíðinni. Ræður frummælenda voru skýrar og málefnalegar, en á köflum nokkuð tilfinningahlaðnar því gagnrýnin var stundum beitt, sem snerti fínar taugar þeirra er í hlut áttu. Það sem vakti hins vegar sérstaka athygli mína á þessum fundi og er tilefni þessa pistils er síðari ræða formanns Almenna lífeyrissjóðs- ins og aðkoma hans að málinu í heild. Er umræður hófust eftir framsöguerindi steig á ný í ræðustól félagi okkar og fyrrverandi formaður LI, Sigurbjörn Sveinsson sem nú er formaður Almenna lífeyrissjóðsins. Hann fór mikinn, varði gjörðir sjóðsins og andmælti aðkomu LÍ og faghóps okkar læknanna að þessu máli. Las hann síðan upp og varpaði upp á skjá bókun frá stjórnarfundi í Al- menna lífeyrissjóðnum, sem hann sagði að hefði verið samþykkt samhljóða deginum áður. En sú bókun gengur út á það að fá óvilhallan lögfróðan ein- stakling með bókhaldsþekkingu til að rýna í og gera úttekt á þeirri gagnrýni og vinnubrögðum sem faghópur okkar lækna og stjórn LÍ var að kynna á fund- inum. Veit félagi Sigurbjörn ekki sinn vitj- unartíma í þessu máli? Sem fyrrverandi formaður LI og nú óbreyttur félags- maður í LÍ og fyrrum stjórnarmaður í Almenna lífeyrissjóðnum og nú starf- andi formaður Almenna lífeyrissjóðsins er hann fullkomlega vanhæfur til að fást við þessi mál fyrir hönd stjórnar Al- menna lífeyrissjóðsins gagnvart stjórn LI og læknahópnum í heild. I mínum huga hefði hann átt að víkja sæti strax er erindi þetta barst Almenna lífeyris- sjóðnum til að koma í veg fyrir þá tog- streitu sem nú virðist ríkja milli stjórnar LÍ og stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins. Tillagan sem hann kynnti á fund- inum og var samþykkt samhljóða í stjórn Almenna lífeyrissjóðsins er aðeins til að auka flækjustigið í málinu og viðhalda tortryggni félagsmanna LÍ í garð Almenna lífeyrissjóðsins. Mál er að linni. Reykjavík, 14. janúar 2013 LÆKNAblaðið 2013/99 105

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.