Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 27
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Læknar- hvað eigum víð sameiginlegt?
Mér varð það ljóst í læknanáminu í Kaup-
mannahöfn að læknir er alls ekki alltaf
það sama og læknir. En þrátt fyrir það
hafa mér fundist læknar úr alls kyns sér-
greinum eða ýmsum þjóðum eiga margt
sameiginlegt.
Strax í læknanáminu og einnig síðar
fannst mér skína í gegn að þeir sem sækja
í þetta starf hefðu almennt áhuga á að
stuðla að bættu heilbrigði, hver á sinn hátt.
Flestir læknar eru miklir áhugamenn um
starf sitt og tileinka allstóran hluta frítíma
síns læknisfræðinni á einn eða annan hátt.
Ég verð þó að viðurkenna að ég hef
stundum þurft að rifja upp hvað mér
hefur fundist stéttin eiga sameiginlegt.
Sérstaklega þegar ég hef unnið að félags-
störfum og kjaramálum lækna, þar sem
það kemur fram að við störfum að mörgu
leyti við mjög ólíkar aðstæður og það eru
ólíkir þættir sem hafa áhrif á kjör okkar og
starfsaðstæður.
Niðurstöður könnunarinnar sem
Davíð Þórisson gerði á facebook-vefnum
nú í janúarbyrjun um það hvort læknar
ætluðu sér að flytja heim staðfesta enn og
aftur að þessi hópur á margt sameigin-
legt. Könnuninni svöruðu 147 íslenskir
læknar búsettir erlendis. Svör flestra sem
völdu að skrifa athugasemdir við niðurlag
setningarinnar: „Ég mun flytja til íslands
vegna þess að ..." voru hjá nánast öllum
að það væri vegna fjölskyldunnar. Aðeins
einn læknir nefnir þar að hann muni flytja
heim vegna þess að hann vilji sérstaklega
starfa við íslenska heilbrigðisstofnun.
Þannig gæti maður dregið þá ályktun að
læknar ættu það sameiginlegt að setja
fjölskylduna ofarlega á lista. Mér þótti
líka athyglisvert að margir kollegar deila
því með mér að sakna íslenskrar náttúru
þegar þeir dveljast langdvölum erlendis.
Það var áhugavert í könnuninni að
þar svöruðu ekki einungis nýútskrifaðir
læknar sem voru nýfluttir út, heldur voru
sérfræðingar 39% svarenda. Þá kom í
ljós að aðeins þriðjungur svarenda voru
nokkuð vissir um að þeir myndu flytja
heim á næstu 10 árum.
Tillögur manna að niðurlagi setningar-
innar „Það sem ég vil sjá breytast á íslandi
til að ég íhugi heimflutning er ..." sýna að
kjörin skipta mestu máli. Einnig nefndu
margir bætta starfsaðstöðu, betri mönnun
lækna á stofnunum og meiri virðingu
yfirmanna fyrir starfi lækna. Reyndar
nefndu nokkrir nýja ríkisstjórn og nýjan
Landspítala, það er því aldrei að vita nema
þessar tölur breytist eftir kosningarnar í
vor. Ofangreindar niðurstöður hljóta að
teljast frábærar fyrir fjölskyldur okkar
lækna en á sama tíma geta þær vart talist
góðar fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi.
Það vakti nýlega athygli mína að upp-
lýsingar um niðurstöður starfsánægju-
könnunar Landspítala á síðasta ári voru
ekki birtar í heild. Því fór ég þess á leit
við spítalann að fá nánari upplýsingar um
niðurstöðurnar og langar mig að deila
með ykkur þeim niðurstöðum sem mér
þóttu athyglisverðar. Það skal tekið fram
að þær niðurstöður sem ég fékk frá Land-
spítala eru meðaltal félagsmanna LÍ. Það
má því leiða líkur að því að niðurstöður
fyrir yfirlækna hafi almennt híft upp
meðaltalsniðurstöðurnar.
Þar kom meðal annars fram að einungis
33% félagsmanna töldu að þeir hefðu tíma
til að ljúka verkefnum sínum þannig að
þeir væru sáttir við þau. Þá töldu aðeins
22% að tækjakostur á þeirra deild væri
viðunandi.
Það virtist einnig vera sameiginlegt
með þeim læknum sem svöruðu könnun-
inni að þeim finnst vera of mikið eða allt
of mikið álag í vinnunni en 72% félags-
manna svöruðu á þá lund. Þá voru niður-
stöðurnar sambærilegar þegar spurt var
um það hvort að streita væri of mikil eða
allt of mikil í vinnunni en 67% félags-
manna töldu svo vera.
í niðurstöðum kom fram að 41% töldu
að á undanförnu ári hefðu þættir í starfi
þeirra og/eða starfsumhverfi stuðlað að
langvarandi þreytu. Um þriðjungur taldi
að ofangreindir þættir hefðu stuðlað að
líkamlegum álagseinkennum. Jafnframt
kom fram að 36% töldu að á undanförnu
ári hefðu þættir í starfi þeirra og/eða
starfsumhverfi stuðlað að starfsleiða.
Vert er að nefna að svörun meðal lækna
í könnuninni var því miður frekar dræm,
en þetta eru engu að síður sláandi niður-
stöður. Það skal talið stjórnendum Land-
spítala til tekna að hafa framkvæmt slíka
starfsumhverfiskönnun, ólíkt mörgum
öðrum heilbrigðisstofnunum.
Þegar niðurstöður félagsmanna LÍ eru
skoðaðar sérstaklega kemur í ljós að þær
eru nær undantekningarlaust lægri en
fyrir spítalann í heild. Þá er sérstaklega
athyglisvert, í ljósi óánægju hjúkrunar-
fræðinga, að niðurstöður þeirra félags-
manna eru mun betri en félagsmanna LÍ.
Eftir að hafa skoðað þessar niðurstöður
vona ég bara að ef ég þarf að rifja upp
hvað við læknar eigum sameiginlegt eftir
10 ár, að það verði ekki það að læknum
finnist þeir vera undir allt of miklu álagi
og starfi við slök starfsskilyrði.
Stjórn LÍ
Þorbjörn Jónsson, formaður
Orri Þór Ormarsson, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Salome Á. Arnardóttir, ritari
Björn Gunnarsson
Guðrún Jóhanna Georgsdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir
Þórarinn Ingólfsson
Þórey Steinarsdóttir
I pistlunum Úrpenna stjórnarmanna Ll birta þeir sinar
eigin skoöanir en ekki félagsins.
LÆKNAblaðið 2013/99 87