Læknablaðið - 15.04.2013, Side 3
Ekta Læknadagastemmtting í Hörpu í janúar. Myndina tók Margrét Aðalsteinsdóttir sem cr potturinn og pannan í skipulagningu og
framkvæmd Læknadaga.
Hugmynd að dagskrá?
Læknadagar 2014 verða dagana 20.-24. janúar í Hörpu
Þeir sem vilja leggja til efni í dagskrá Laeknadaga sendi hugmyndir sínar til
Margrétar Aðalsteinsdóttur magga@lis.is fyrir 10. maí nk.
Fram komi hvort óskað er eftir þátttöku Fræðslustofnunar við að greiða kostnað vegna komu erlends fyrirlesara.
Undirbúningsnefnd: Anna Gunnarsdóttir, Gerður Gröndal, Margrét Aðalsteinsdóttir, Nanna Kristinsdóttir,
Ólafur H. Samúelsson, Ólafur Már Björnsson, Sigrún Hallgrímsdóttir, Össur Ingi Emilsson, formaður nefndarinnar og
Fræðslustofnunar er Gunnar Bjarni Ragnarsson.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Um aldamótin tók listamaðurinn Gretar Reynisson
(f. 1957) þá afdrifaríku ákvörðun að leggja heilan áratug
undir skrásetningu, söfnun og talningu í sínu daglega lifi.
Hann skyldi vinna að þessu verki hvern einasta dag, frá
1. janúar 2001 til 31. desember
2010, safna í sarpinn og leggja
sýningarhald á hilluna uns því væri
lokið. Gretar hvarf af sjónarsviði
myndlistarinnar en var í raun
sivirkur daglega allan þennan tima.
Á vissan hátt má segja að um
tíu ára langan gjörning hafi verið
að ræða. Hvítu skyrturnar sem
hann klæddist eitt árið urðu hluti
af hljóðlátum gjörningi og úr varð
verkið 52 skyrtur - ein á viku í heilt
ár. Svipaða sögu er að segja um koddana tólf eða glösin
365. Dagleg iðja varð að samfelldu listrænu ferli þar sem
inntakið er hin sígilda spurning um mörk lífs og listar.
Verkið Geymt en gleymt (2001 -ólokið) er hluti af
heildarverkinu, Áratugur, sem kemur fyrir sjónir almenn-
ings I fyrsta sinn í heild sinni í samhengi listahátíðarinnar
Sequences í apríl. Verk sem unnin voru hvern einasta
dag í tíu ár eru til sýnis I Nýlistasafninu i aðeins tíu daga. (
þessu tiltekna verki sem sjá má á forsíðu Læknablaðsins
einsetti Gretar sér að varðveita hluti í nærumhverfinu sem
gengu úr sér eða misstu notagildi sitt. Hann mældi þá
upp og smíðaði kassa akkúrat utan um hlutinn - brotinn
kaffibolla, bleklausan penna eða úrelta tölvumús. Áður
en hann lokaði kassanum gerði
hann grein fyrir hlutnum og merkti
dagsetningu inn á lokið. Eftir þvi sem
tíminn líður og kassarnir safnast upp
skolast til hvað er inni I hverjum og
einum. Hægt er að handleika þá og
hrista en þótt innihaldið sé geymt er
það gleymt.
Áratugur Gretars endurspeglar
aga og jafnvel þráhyggju en þar
er líka leikur, húmor og stundum
allt að því barnsleg einfeldni. Þær
andstæður sem togast á í verkum listamannsins gæða
þau lífi. Þar er hvorki of langt seilst til að hafa stjórn
á hlutunum né verður endurtekningin máttlaus eða
kjánaleg. Alltaf er vegið salt á milli hins almenna og hins
persónulega. Sem áhorfendur stöndum við frammi fyrir
lífinu í hversdagsleika sínum og endurtekningu og veltum
fyrir okkur hverju við fáum ráðið um það sem stendur eftir.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaðurog
Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
12.400,- m. vsk.
Lausasala
1240,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
y/,
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild, án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2013/99 175