Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2013, Side 28

Læknablaðið - 15.04.2013, Side 28
SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR Mynd 4. Handknúin ein- stimpla töfluvél afdanskri gerð (Diaf) úr Reykjavíkur- apóteki. í henni voru töflurnar slegnar með því að snúa hjóli. Vélin skilaði afsér einni töflu við hvernfullan snúning á hjólinu. (Myndin tekin í Lyfjafræðisafninu íNesi 11. 5. 2012; ÞÞ.) Mynd 5. Stefán Thor- arensen (1891-1975) stofnaði næstelsta apótekið í Reykjavík, Laugavegsapótek, árið 1919, og síðar heild- verslun í eigin nafni. Hann gerðist stórtækur innflytjandi erlendra sérlyfja og innleiddi ný vinnubrögð í töflugerð á íslandi eftir lok síðari heimsstyrjaldar. (Mynd úr Lyfjafræðingatalinu 1982.) hafði í Bandaríkjunum þegar leiðir lokuðust til Danmerkur á stríðsárunum. Sigurður þekkti því til nýjustu tækni í töflugerð þar vestra og hefur hvatt Stefán til kaupanna. Hvernig sem þessu var nákvæmlega farið, er ljóst að hér var brotið blað í sögu töflugerðar á íslandi, hún færðist úr seinvirkum handknúnum vélum í fram- leiðslu í stórtækari, rafknúnar töfluvélar. Höfundum er ekki kunn- ugt um hvað af þessari vél varð. Heildverslunin mun hafa framleitt töflur fram á 8. áratug síðustu aldar.9 Lyfjaverslun ríkisins var að stofni til frá 3. tug 20. aldar. Lyfja- verslunin var alla tíð heildsölufyrirtæki, rekið með sérstöku tilliti til þarfa spítala og lækna og dýralækna sem höfðu lyfsöluleyfi (máttu selja lyf jafnframt læknisstörfum). Lyfjaverslunin hóf töfluframleiðslu í smáum stíl árið 1950. Arið 1954 fluttist fyrir- tækið í vegleg húsakynni að Borgartúni 6 og eignaðist þar öflugar töfluvélar.19 í Lyfjafræðisafninu er nú varðveitt sú töfluvél fyrir- tækisins sem mest reyndi á við framleiðsluna eftir 1954. Vélin er af Stokes-gerð eins og töfluvél Stefáns Thorarensen og áður getur um (mynd 6). Forstöðumaður Lyfjaverslunar ríkisins (lyfsölustjóri) frá árinu 1939 og til dauðadags var Kristinn Stefánsson læknir (1903- 1967), en hann var jafnframt dósent og síðar prófessor í lyfjafræði í læknadeild Háskóla íslands. Meginstarf Kristins var engu að síður ætíð í þágu Lyfjaverslunarinnar.2021 Töfluframleiðsla Lyfjaverslunarinnar hefur án efa verið mikil að vöxtum og margvísleg þegar rekstur fyrirtækisins var í hvað mestum blóma. Lyfjaverslunin auglýsti hins vegar aldrei og skrá yfir framleiddar töflur hefur ekki komið í leitirnar. í þessu sam- bandi skal þess getið að mikil gögn eru enn ókönnuð í Lyfja- fræðisafninu frá Lyfjaverslun ríkisins, Reykjavíkurapóteki og Heildverslun Stefáns Thorarensen hf. Lyfjaverslun ríkisins hvarf síðan inn í önnur fyrirtæki sem lögðu grunninn að risastóru lyfja- framleiðslufyrirtæki, Actavis.9 Um lyfjaframleiðslu Pharmaco hf., Innkaupasambands apótek- ara og samruna við Delta hf. er fjallað í fyrri ritgerð. Töflufram- leiðsla Pharmaco hf. var lítil fyrir samrunann við Delta hf.9 Vilhjálmur G. Skúlason prófessor var jafnframt eftirlitsmaður lyfjabúða árin 1968-1971. Að hans sögn voru þá um 30 lyfjabúðir í landinu og framleiddu þær flestar töflur. Tíu árum síðar hafði dregið mjög úr framleiðslu í apótekum. Var þá talið að töflur væru einungis framleiddar í þremur apótekum.18 Meginástæðu þessa, og reyndar undanhalds innlendrar lyfjaframleiðslu yfirleitt, virt- ist vera að rekja til aukins innflutnings erlendra sérlyfja.22 Auknar kröfur til framleiðslunnar skiptu og máli.9 Nú framleiðir aðeins eitt fyrirtæki töflur á íslandi, Actavis. Framboð á töflum á íslandi 1913-1965 og gildi taflna til lækninga Mynd 7 sýnir sveiflur í fjölda töflutegunda sem samkvæmt að- gengilegum heimildum voru hér opinberlega á markaði á 6 til- greindum árum á rúmlega 50 ára tímabili (1913-1965). A myndinni eru jafnframt sýndar sveiflur í fjölda mixtúra, pillna, hylkja og skammta á umræddu tímabili. Töflum er skipt í tegundir: a) með tilliti til gerðar virks efnis (virkra efna) í töflu, b) með tilliti til mis- munandi magns sama virka efnis (sömu virku efna) í töflu. Sama skipting gildir um pillur og hylki. í Lyfjaverðskránni 1913 eru 12 tegundir taflna. Sumar þeirra teljast ekki til taflna í dag, en voru svokallaðar lausnartöflur (sol- ublettne). Slíkar töflur voru ætlaðar til þess að búa til lausnir og voru því ekki til inntöku. Eiginlegar töflur voru þannig innan við 10 talsins á markaði árið 1913. Sérstaka athygli vekur að asetýlsali- sýlsýrutöflur voru komnar hér á markað árið 1913. Notkun þeirra hefur þó að ætla má enn verið í skugga asetýlsalisýlsýruskammta þegar þetta var.15'17 Arið 1924 voru tegundir taflna á markaði 23 alls. Þetta var fáum árum áður en fyrstu auglýsingar um erlend sérlyf í töfluformi tóku að birtast í Læktmblaðinu.5 Árið 1934 var fjöldi einstakra töfluteg- unda hins vegar orðinn meira en tuttugufaldur á við það sem verið hafði 10 árum fyrr. Virðist þessi mikla fjölgun ekki verða skýrð öðruvísi en með stórauknu innflæði erlendra lyfja (ekki síst sér- 200 LÆKNAblaðiö 2013/99

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.