Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2013, Page 11

Læknablaðið - 15.07.2013, Page 11
RANNSÓKN Áhrif 6 mánaða fjölþættrar þjálfunar á hreyfi- getu, vöðvakraft, þol og líkamsþyngdar- stuðul eldri einstaklinga - Eru áhrif þjálfunar sambærileg hjá konum og körlum? Janus Guölaugsson íþróttafræðingur1, Thor Aspelund tölfræðingur2'3, Vilmundur Guðnason læknir2-3, Anna Sigríður Ólafsdóttirnæringarfræðingur1, Pálmi V. Jónsson læknir34, Sigurbjörn Árni Arngrímsson þjálfunarlífeðlisfræðingur1, Erlingur Jóhannsson lífeðlisfræðingur1 ÁGRIP Inngangur: Góð hreyfigeta hefur umtalsverð áhrif á sjálfstæði og vellíðan eldra fólks. Slök hreyfigeta getur aftur á móti skert athafnir daglegs lífs. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða áhrif 6 mánaða þjálfunar og íhlutunar á hreyfigetu karla og kvenna, hvort þjálfunin hefði ólík áhrif á kynin og hver árangur þjálfunarinnar væri 6 og 12 mánuðum eftir að henni lauk. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var gerð á 117 einstaklingum á aldrin- um 71-90 ára sem höfðu tekið þátt i Öldrunarrannsókn Hjartaverndar. Snið rannsóknarinnar var víxlað með handahófskenndu vali í tvo hópa. Rannsóknin var gerð á þremur 6 mánaða timabilum að loknum grunn- mælingum. Sex mánaða þjálfun var þreytt af þjálfunarhópi (hópi 1) á fyrsta tímabili meðan seinni þjálfunarhópur (hópur 2) var til viðmiðunar. Hópur 2 tók síðan þátt í sams konar þjálfun á öðru tímabili en formleg þjálfun rann- sóknaraðila var ekki lengur til staðar fyrir hóp 1. Sex mánuðum eftir að þjálfun hjá hópi 2 var lokið voru mælingar endurteknar í fjórða skiptið. Niðurstöður: Eftir 6 mánaða íhlutun varð 32% bæting á daglegri hreyf- ingu karla (p<0,001) og 39% hjá konum (p<0,001). Á hreyfigetu karla varð um 5% bæting (p<0,01) og 7% hjá konum (p<0,001). Fótkraftur karla jókst um 8% (p<0,001) og kvenna um 13% (p<0,001). Bæði karlar og konur bættu hreyfijafnvægi um 10% (p<0,001), gönguvegalengd jókst hjá báðum kynjum um 5-6% (p<0,001) og líkamsþyngdarstuðull kynjanna lækkaði um tæplega 2% (p<0,001). Enginn kynjamunur var af áhrifum þjálfunar. Heildaráhrif þjálfunar á hreyfigetu og hreyfijafnvægi héldust i allt að 12 mánuði eftir að íhlutun lauk. Ályktun: Fjölþætt þjálfun hefur jákvæð áhrif á hreyfigetu eldri einstak- linga, kynin bregðast á sambærilegan hátt við þjálfun og varðveita áunnar breytingar í hreyfigetu í allt að 12 mánuði. Rannsóknin bendir eindregið til þess að hófleg kerfisbundin þjálfun fyrir þennan aldurshóp ætti að vera hluti af hefðbundinni heilsugæslu aldraðra. 'Rannsóknastofa í íþrótta- og heilsufræði, menntavísindasviði Háskóla íslands, 2Hjartavernd, 3Læknadeild Háskóla íslands, 4Landspítali Háskólasjúkrahús, Reykjavik Fyrirspurnir: Janus Guðlaugsson janus@hi.is Greinin barst 18. mars 2013, samþykkt til birtingar 11.júní 2013. Engin hagsmunatengsl gefin upp. Inngangur Með hækkandi aldri hefur skert hreyfigeta áhrif á slysatíðni, endurheimt bata eftir veikindi eða slys og dánartíðni.1 í rannsókn Leveille og félaga1 kemur einnig fram verulegur munur á daglegri hreyfingu eldri karla og kvenna þar sem konur hreyfa sig minna. Þrátt fyrir að konur nái hærri lífaldri en karlar er hreyfigeta eldri kvenna minni en karla og þær búa oftar við meiri fötlun.1-2 Lakari hreyfigeta eldri kvenna í samanburði við karla er viðfangsefni sem rannsaka þarf betur.2 Að viðhalda hreyfigetu skiptir sköpum fyrir eldri einstaklinga. Til að viðhalda hreyfigetu og góðri heilsu er mikilvægt, jafnt fyrir hina eldri sem hina yngri, að stunda skipulagða þjálfun þar sem tíðni, ákefð og tímalengd æfinga eru lykilþættir.3'1 Einnig má snúa skertri hreyfigetu á ákveðnu stigi til betri vegar með markvissri þjálfun.12'5 Sýnt hefur verið fram á að þátttaka í skipulagðri þol- og kraftþjálfun, þar sem æskileg ákefð þjálfunar, þjálfunarmagn og tíðni æfinga eru höfð að leiðarljósi, getur haft jákvæð áhrif á öldrunarferlið og aukið lífsgæði.3-6 Á síðustu áratugum hefur komið í ljós að lýðgrunduð inn- grip (population-based strategies), þar sem inngrip eru almenn, eru mun áhrifaríkari í lýðheilsulegu tilliti en aðferðir sem byggja á áhættuskimun og sértækri íhlutun.7 Flokka má þessa íhlutunarrannsókn undir víðtækt lýðgrundað inngrip. Vöðvaafl er skilgreint sem hæfileiki vöðva til að mynda afl snögglega en vöðvakraftur er skilgreindur sem magn af krafti sem vöðvi eða vöðvahópur getur framleitt með einum hámarkssamdrætti.8 Minnkandi vöðvaafl og vöðvakraftur í neðri útlimum líkamans er oft skýringin á takmarkaðri hreyfigetu fólks í eldri aldurshópum.'1 Aftur á móti hefur aukinn vöðvakraftur í kjölfar kraftþjálfunar verið tengdur við aukna hreyfi- getu, betra jafnvægi og minni fallhættu.4'9 Jafnvægi má skilgreina sem ferli þar sem einstaklingur hefur stjórn á líkama sínum í uppréttri stöðu eða á hreyfingu. Greina má jafnvægi í stöðujafnvægi (static balance) og hreyfijafn- vægi (dynamic balance) þar sem einstaklingur viðheldur jafnvægi meðan hann færir sig úr stað.8 Markmið þessarar rannsóknar var að greina áhrif 6 mánaða fjölþættrar þjálfunar (6-MFÞ) á karla og konur á aldrinum 71 til 90 ára og kanna hvort þjálfunaráhrif á heilsufarsbreytur yrðu mismunandi milli kynja. Auk þess var markmiðið að rannsaka hvort íhlutunaráhrifin vöruðu jafn lengi hjá báðum kynjum eftir að þjálfunar- tíma lauk. Grein úr sömu rannsókn hefur birst í tímarit- inu International Journal of Behavioral Nutrition and Physi- cal Activity10 þar sem fjallað var um áhrif þjálfunarinnar án þess að gerð væri grein fyrir áhrifunum á kynjamun sem er meginmarkmið þessarar greinar. LÆKNAblaðið 2013/99 331

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.