Læknablaðið - 15.07.2013, Side 22
RANNSÓKN
Tafla VII. Fæðingarþyngd og þyngdarstuðull (ponderal index) nýbura kvenna
með sykursýki af tegund 1 eftir meðgöngulengd í samanburði við fullburða börn
í almennu þýði 1999-2009.
Meðgöngulengd Þyngd (g) Meðaltal (bil) Þyngdarstuðull Miðgildi (bil) Meðalþyngd í almennu þýði (g)
<37 vikur (n=23) 3118(1740-4880) 26,6 (22,2-75,0) -
37-38 vikur (n=14) 4092 (2250-5560) 29,1 (10,4-25,5) 3119
38-39 vikur (n=30) 3992 (2850-5070) 28,4 (22,8-33,4) 3390
39-40 vikur (n=20) 3827 (1890-5050) 27,7(21,4-33,8) 3618
40-41 vika (n=3) 3512 (3450-3555) 24,5 (24,4-25,3) 3792
41-42 vikur(n=1) 3550 26,7 3949
n = fjöldi barna. Þyngdarstuðull, ponderal index (Pl) = kg/m3
Umræða
Þegar niðurstöðurnar eru bornar saman við aðrar rannsóknir er
mikilvægt að hafa í huga að hópurinn var lítill og þar af leiðandi
erfiðara að álykta um atriði eins og tíðni fylgikvilla og samband
þeirra við blóðsykurstjórnun. Hópurinn er samt þverskurður
af konum á barneignaaldri með SSTl í heilu þjóðfélagi og tíðni
fylgikvilla sykursýki var áþekk því sem sést hefur á Islandi.21
Meðalaldur var sá sami og hjá fæðandi konum almennt á árunum
1999-2010 (Hagstofa íslands, www.hagstofa.is) og fjöldi frumbyrja
aðeins lítillega hærri.
Á óvart kom hve hátt hlutfall kvennanna voru of þungar eða
of feitar, því sjúklingar með SSTl eru oftar í eðlilegum holdum en
þeir sem hafa SST2. í mars 2008 var tekið úrtak 19,8% barnshafandi
kvenna í mæðravernd á höfuðborgarsvæðinu og líkamsþyngdar-
stuðull þeirra reiknaður (óbirtar niðurstöður; Jóna Dóra Kristins-
dóttir, ljósmóðir, tilgreint með leyfi). Meðaltalið var 25,0 kg/m2,
samanborið við 27,2 kg/m2í SSTl rannsóknarhópnum. I úrtakinu
frá 2008 voru 44% í ofþyngd eða með offitu, en í þessari rannsókn
var sama hlutfall 62%. Konur með SSTl virðast því vera þungar
miðað við aðrar konur, sem er áhyggjuefni því þar með aukast lík-
ur á fleiri heilsufarsvandamálum, einkum háþrýstingi og tengdum
fylgikvillum í og utan meðgöngu. Þriðjungur kvennanna þyngdist
of mikið, en hæfileg þyngdaraukning á meðgöngu fyrir konur í
kjörþyngd er 12-15 kg.22'23 Fyrri íslensk rannsókn sýndi tengsl vax-
andi þyngdar mæðra við blóðþrýstingstengda fylgikvilla með-
göngu.24 Eins og í öðrum rannsóknum fannst samband milli
þyngdaraukningar móður og meiri þyngdar barnsins.24-25
Fyrirverandi háþrýstingur sást hjá áttundu hverri þessara
ungu kvenna, líklegast vegna undirliggjandi æðasjúkdóms
samfara sykursýkinni eða ofþyngd/offitu. Þetta eykur hættu á
meðgöngueitrun8, sem hluti kvennanna fékk í ofanálag eins og
viðbúið var24, einkum hjá þeim sem voru þyngri. Konur í ofþyngd
voru mun líklegri til að vera með langvinnan háþrýsting. Tíðn-
in meðal þeirra sem voru í ofþyngd var fimmföld og níföld hjá
þeim offeitu miðað við þær sem voru í kjörþyngd. Hið sama sást
varðandi meðgöngueitrun þar sem tíðnin meðal kvenna í ofþyngd
var nær tvöföld og þreföld hjá þeim offeitu, miðað við konur
sem voru í kjörþyngd. Sömu tilhneigingu hefur áður verið lýst í
almennu íslensku þýði en hlutfallið var mun lægra en hjá konum
með SSTl. Meðal kvenna í ofþyngd í þeirri rannsókn fengu um
3% langvinnan háþrýsting og tæp 4% meðgöngueitrun en sam-
svarandi tölur fyrir þær offeitu voru 10%.24 Til mikils er að vinna
fyrir verðandi mæður, sykursjúkar sem aðrar, að halda kjörþyngd.
Til að draga úr líkum á meðgöngueitrun er mælt með gjöf
lágra skammta af asetýlsalicýlsýru þegar líkur eru auknar á með-
göngueitrun, sem á við um konur með sykursýki26, en hefja þarf
meðferðina fyrir 16. viku meðgöngu. Offita íslensku kvennanna
er líkleg skýring á tiltölulega hárri tíðni meðgöngueitrunar sem
sást hjá aðeins 13% kvenna í sambærilegri hollenskri rannsókn.15 í
Svíþjóð voru 2% SSTl kvenna með háþrýsting fyrir meðgöngu og
14% fengu meðgöngueitrun, en 18% í danskri athugun.427
Langtímasykurstjórnun er oft metin með mælingu á sykur-
tengdum blóðrauða, en sú rannsókn er í eðli sínu afturskyggn og
háð hröðum líffræðilegum breytingum á meðgöngu. Notagildi
mælingarinnar til blóðsykurstjórnunar er því takmarkaðra í
þungun en utan hennar og yfirleitt er stuðst við daglegar blóðsyk-
urmælingar.9-12 í erlendum klínískum leiðbeiningum er mælt með
að HbAlc sé haldið undir 6,5% fyrir og á meðgöngu.12 Þetta náðist
ekki á íslandi þar sem HbAlc var að jafnaði um 20% yfir mark-
inu í upphafi meðgöngu, en á lokaþriðjungi var meðaltalsgildið
komið niður í 6,3%. Ekki var munur á blóðsykurstjórnun á fimm
ára tímabilunum, enda þótt á því seinna væru flestar konurnar
á insúlín hliðstæðum og insúlíndælum sem talin eru betri með-
ferðarúrræði.28 Blóðsykurstjórnun versnaði í öfugu hlutfalli við
lífaldur. Konur yngri en 25 ára voru með marktækt hærra HbAlc
á fyrsta þriðjungi heldur en þær sem voru eldri, þó breytingar á
HbAlc væru í samræmi við það sem áður hefur verið sýnt.9Yngri
konurnar eru hugsanlega ekki eins móttækilegar fyrir erfiðri syk-
ursýkimeðferð, meðan þær eldri gætu hafa hugað betur að sykur-
stjórnun í aðdraganda þungunarinnar. I sumum nágrannlöndum
virðast konur ná betri tökum á blóðsykurstjórnun fyrir þungun
en hér.15-27
Inngrip í fæðingu voru mun tíðari hjá konunum með SSTl
en í almennu þýði á sama tímabili. Fæðing var oftar framkölluð
og eðlilegar fæðingar meira en helmingi færri en almennt. Nær
2/3 kvennanna fæddu með keisaraskurði, ýmist val- eða bráða-
aðgerðum. Aukin tíðni fylgikvilla móður og fósturs/barns gæti
skýrt þessa auknu inngripatíðni. Þegar barn er áætlað mjög stórt,
eða yfir 4500g, er gjarnan mælt með valkeisaraskurði til að forðast
fæðingarskaða. Þröskuldur fyrir inngripi er þvi lægri en hjá kon-
um án sykursýki. í samanburði við Danmörku, Holland og Sví-
þjóð415-27 reyndist ísland vera með hæstu tíðni keisaraskurða, en
börnin voru að meðaltali um lOOOg þyngri en börn í almennu þýði
á 37.-39. viku. Einungis fjórar konur fæddu eftir að 40 vikum var
náð, en rúmur fjórðungur fæddi fyrirbura. Tíðni fyrirburafæðinga
á Landspítalanum var 7,6% á sama árabili (upplýsingar frá Fæð-
ingaskráningunni).
Burðarmálsdauði var 21,3/1000 samanborið við 4-5/1000 á ís-
landi á sama tímabili. Andvana börnin tvö fæddust eftir stutta
meðgöngu í kjölfar mikilla erfiðleika móður við blóðsykurstjórn-
un. Varasamt er að draga miklar ályktanir um burðarmálsdauða út
frá þessu litla þýði, en dauðsföllin minna engu að síður á auknar
hættur samfara meðgöngu þegar móðirin er með SSTl. Nýlegar
rannsóknir hafa sýnt að tíðni burðarmálsdauða er enn mun hærri
en í almennu þýði þrátt fyrir bætta blóðsykurstjórnun.41415
Annað vandamál tengt slæmri sykurstjórnun er aukin tíðni
meðfæddra missmíða. Nýgengi hjartagalla á íslandi var 1,7% á
árunum 1990-199929, en í þessari rannsókn var tíðni hjartagalla 6%.
Átta börn fæddust með alvarlega missmíð, en almennt er tíðnin
á bilinu 2-3%. Tengsl slæmrar blóðsykurstjórnunar á fyrsta þriðj-
342 LÆKNAblaðið 2013/99