Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 28
UMFJÖLLUN O G GREINAR
ekki komið sjúklingi sínum á stofnun sem
meðhöndlar hann samkvæmt nýjustu
þekkingu og tækni. Læknadeildin gegnir
síðan því hlutverki að mennta læknana
fyrir hvorar tveggja aðstæður og allar
aðrar sem hugsanlega geta mætt lækn-
inum í starfi hans."
A sama hátt segir Guðmundur að keðja
fræðslu og þekkingar milli sérfræðinga
og læknanema verði að vera heil og órofin
eins og hann benti á í upphafi samtalsins
með tilvitnun í læknaeiðinn.
„Það hefur verið gengið svo langt í
niðurskurði á Landspítalanum, allt í því
góða augnamiði að ná rekstrar- og launa-
kostnaði niður, að einingar innan hans eru
orðnar mjög viðkvæmar. Staðan á mörgum
deilda Landspítalans er einfaldlega þannig
að þar vantar bæði mannskap og nothæfan
tækjabúnað og þetta er hnignun sem er
gríðarlega mikilvægt að verði snúið við.
Það er allra hagur, hvort sem talað er um
læknanema, unglækna eða sérfræðinga
en þó fyrst og fremst almenning í landinu
sem treystir á þjónustuna. Samkeppnis-
hæfni okkar við erlenda spítala snýst ekki
eingöngu um launakjör. Hún snýst líka
um starfsaðstöðu læknanna og mögu-
leikana sem ungum metnaðargjörnum sér-
fræðingum standa til boða þegar þeir snúa
hingað heim eftir langt sérnám erlendis.
Það hefur verið styrkur okkar að geta boð-
ið þessu fólki fjölbreytta möguleika í starfi
og við megum ekki glata því. Hér eru
sterkar samstarfsstofnanir í rannsóknum,
íslensk erfðagreining, Krabbameinsfélagið,
Hjartavernd og fleiri. A undanförnum
árum hefur styrkst hér í sessi óformlegt
skipulag rannsóknarmála sem ég tel að
geti orðið mjög farsælt. í því skipulagi
eru þrjú meginlög rannsókna, sameinda-/
frumulíffræði (Lífvísindasetur), lýðheilsu-
rannsóknir (Lýðheilsustofnun) og klín-
ískar rannsóknir (klínisk rannsóknarsetur
á Landspítala og í heilsugæslu). Þvert eða
lóðrétt á þessi lög koma síðan rannsóknir
í líffærakerfum eða sjúkdómaflokkum,
krabbameinsrannsóknir, hjarta- og æða-
rannsóknir og margt fleira sem nýtur góðs
af öllum þremur rannsóknarlögunum
og segja má að út úr þessu fáum við öfl-
ugan hóp lífvísindamanna sem reiðir sig
meðal annars á grunngögn og þekkingu
þeirra stofnana sem ég nefndi áður. Þessi
framsetning og skipulag lífvísindarann-
sókna er höfundarverk Magnúsar Karls
Magnússonar prófessors sem tekur við af
mér í starfi deildarforseta. Þetta er jákvæð
skipuleg hugsun og við erum að sækja í
okkur veðrið á þessu sviði."
Við ljúkum þessu samtali með því að
skyggnast inn í framtíðina. „Menntun
snýst alltaf um framtíðina en byggir á
þekkingu nútímans og reynslu fortíðar.
Við þurfum að varðveita hin háleitu sið-
rænu markmið sem eru arfur fortíðar en
augljóslega sígild og við þurfum að takast
á við nýja þekkingu sem okkur ber skylda
til að hagnýta í þágu sjúklinganna. Aug-
ljós viðfangsefni næstu ára verða meðal
annars að styrkja menntun og þekk-
ingaröflun í dreifbýlislækningum (rural
medicine), styrkja undirbúning lækna-
nema undir þátttöku í nýsköpunarstarfi
og styrkja brúarsmíð frá grunnvísindum
til hagnýtingar (translational research), til
dæmis að hagnýta hina miklu nýju þekk-
ingu í erfðafræði sem íslendingar hafa lagt
drjúgan skerf til. Mikilvægast er þó að búa
unga fólkið eins vel og mögulegt er undir
að takast á við hið óvænta, það sem er á
bak við ystu sjónarrönd og við vitum ekki
hvað er," segir Guðmundur Þorgeirsson.
Yfirlæknir myndgreiningardeildar
Krabbameinsfélags íslands
Krabbameinsfélag íslands óskar eftir að ráða yfirlækni í myndgreiningu
á myndgreiningardeild Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Umsækjendur skulu hafa lækningaleyfi á íslandi og fullgild
réttindi í myndgreiningu (röntgen/geislagreiningu). Æskilegt er að viðkomandi umsækjandi hafi menntun og/
eða reynslu af brjóstamyndum (mammógrafíu), stjórnun og forvarnarstarfi eftir því sem við á.
Yfirlæknir stjórnar m.a. framkvæmd á hópleit með brjóstamyndum og sérrannsóknum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Nánari
upplýsingar um stöðuna veitir Kristján Oddsson sviðsstjóri leitarsviðs i síma 540 1900 (netfang ko@krabb.is).
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík merkt
„Yfirlæknir“ eða með tölvupósti á netfangið ko@krabb.is fyrir l.ágúst 2013.
Krabbameinsfélagiö
Krabbameinsfélag Islands Sími 540 1900
Skógarhlið 8 www.krabb.is
105 Reykjavik krabb@krabb.is
348 LÆKNAblaðið 2013/99
I