Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2013, Page 35

Læknablaðið - 15.07.2013, Page 35
Fíknivanda er hægt að vinna með ef ein- staklingurinn vill hjálp, annars er frekar um líknandi meðferð og skaðaminnkun að ræða." Sakhæfir og ósakhæfir eiga ekki saman Kjarni málsins að sögn Páls felst annars vegar í úreltri nálgun frumvarpsins að hlutverki geðlækninga í öryggisgæslu sakhæfra fanga þar sem alltof frjálslega er farið með hugtakið geðdeild og hins vegar eru dómurum gefnar rýmkaðar heimildir til að dæma sakhæfa einstaklinga til vistar á geðdeild sem geðlæknar segja skýrt að sé ekki á þeirra færi að hjálpa, en um leið íþyngja geðheilbrigðisþjónustunni með verkefnum annarra, á tímum þegar sér- hæft geðheilbrigðisstarfsfólk vantar. „Kostnaður við vistun einstaklings á geðdeild er einnig margfaldur miðað við að vista hann í fangelsi en það er þó ekki aðalgallinn heldur sá að með því skerðast möguleikar annarra sjúklinga til hefð- bundinnar meðferðar, truflun verður á meðferðarstarfsemi þar sem reynslan sýn- ir að vera slíks einstaklings, sem ekki er til meðferðar, á almennri geðdeild truflar starfsemina verulega. Ef hugmyndin er frekar að vista sakhæfa einstaklinga á réttargeðdeild þá UMFJÖLLUN O G GREINAR „Geölæknar Itafa aðeins meöferöarúrræði sem gagnasl gagnvarl alvarlegum geösjúkdómum, en í afar takmörkuðum mæli eða alls ekki gagnvart andfélags- legri persónuleikaröskun, siðblindu, afbrigðilegri kynhegðan, þroskahömlun og einhverfu," segir Páll Matthíasson framkvæmdastjóri Geðsviðs Landspítalans. eru alvarlegir annmarkar á henni fyrir utan plássleysi og margfaldan kostnað. Reynslan hér heima og erlendis sýnir ótví- rætt að ekki fer saman að vista sakhæfa einstaklinga og ósakhæfa á réttargeðdeild. Astæðan er sú að ósakhæfu einstakling- arnir eru mjög viðkvæmir vegna veikinda sinna og stundum fötlunar og þeir sak- hæfu færa sér þetta í nyt og kúga stundum sjúklinga með langvinna geðrofssjúkdóma og jafnvel starfsfólkið líka. Það má nefna að strax árið 1886 tók Broadmoor réttar- geðspítalinn í Bretlandi fyrir innlagnir sakhæfra úr fangelsum eftir uppþot og morð innan spítalans. Það væri sannarlega tímaskekkja ef við gerðum hið gagnstæða meira en öld síðar." Hawaii-yfirlýsing geðlækna (siðareglur geðlækna) veldur því einnig að geðlæknar þurfa að huga að siðferðilegum grunni meðferðar. „Sú yfirlýsing kom á sínum tíma til sem svar við misnotkun Sovét- manna á geðlækningum í pólitískum til- gangi, en hún á einnig fullt erindi ef ætlun dómstóla er að misnota geðlækningar. I henni segir skýrt að geðlæknar mega ekki taka þátt í nauðung á einstaklingi nema hann geti ekki veitt upplýst samþykki og að meðferð þurfi til að forða hættu. Þar er sem sagt gerð krafa um að meðferð hafi góða von um að skila árangri til að nauð- ung megi beita." Úrelt meðferðarstefna Páll segir að lokum að í greinargerð með frumvarpinu sé vísað til skipulags réttargeðlækninga og hegningarlaga á Norðurlöndum, einkum Noregi og Dan- mörku. „í því samhengi er rétt að benda á tvennt: á Norðurlöndunum er því miður víða pottur brotinn i mannréttindamálum fanga og sem dæmi má nefna að hingað hafa endurtekið komið nefndir fagfólks frá Noregi til að sjá hvernig við förum að því að nauðungarvista svona fáa geðsjúka og hvernig á því standi að hér skuli frá 1932 ekki hafa verið notaðar spennitreyjur. Einnig varðandi það atriði er gaman að segja frá því að ég sat núna í maí fyrir svörum hjá danskri þingnefnd um það hvernig Danir geti tekið íslenska kerfið sér til fyrirmyndar til að draga úr nauðung í kerfinu hjá sér. Hitt atriðið er kostnaðar- legs eðlis. I Danmörku eru tvöfalt fleiri legurými miðað við höfðatölu en á íslandi og í Noregi eru þau þrefalt fleiri. Auknar heimildir íslenskra dómara til að dæma fólk til vistar á geðdeildum munu óhjákvæmilega leiða til mjög aukinnar þarfar fyrir pláss á geðdeildum. Það mun því annaðhvort rýra mjög rétt almennings til meðferðar á geðdeild, eða leiða til mikillar aukningar leguplássa, með miklum og ófyrirséðum tilkostnaði, enda stofnkostnaður mikill og legudagar á geðdeildum miklu dýrari en á stofnunum, heimilum - eða í fangelsum." „I grunninn," segir Páll „virðist í frumvarpi refsiréttarnefndar innanríkis- ráðuneytisins upprisin hin svokallaða meðferðarstefna í refsirétti. Þetta er stefna sem var vinsæl frá 19. öld og fram undir 1970, einkum á Norðurlöndum og gekk út frá því að glæpir séu í eðli sínu merki sjúkleika sem þurfi að lækna. Því sé ekki endilega horft á alvarleika afbrots heldur meinta þörf afbrotamanns fyrir meðferð. Vandinn er að þetta er aðför að mannrétt- indum og arfavitlaust meðferðarlega. Ég skal nefna dæmi sem Jónatan Þórmunds- son prófessor emeritus, einn helsti and- stæðingur meðferðarstefnunnar í refsirétti á íslandi, gaf í einni af bókum sínum, bók- inni „Viðurlög við refsingum" frá 1992. Þar benti hann á að samkvæmt þessari stefnu geti 18 ára unglingur sem brýtur rúðu lent í margra ára „meðferð" á stofnun, af því dómarinn telur hann eiga svo bágt og hann þurfi að „laga". Vandinn er sá að þar sem engin meðferð sem treysta má á, er til við rúðubrotum eða undirliggjandi hegðunarröskunum, þá er hættan sú að einstaklingurinn sleppi seint, sé forhertari en áður yfir þeim órétti sem hann hefur verið beittur og að í raun hafi hann fengið þyngri refsingu fyrir rúðubrotið heldur en ef hann hefði framið alvarlegt afbrot. Með- ferðarstefnudrauginn, sem er líklega angi af „sjúkdómsvæðingaræði" nútímasam- félagsins þarf að kveða niður með öllum ráðum," segir Páll að lokum. LÆKNAblaðið 2013/99 355

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.