Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2013, Síða 36

Læknablaðið - 15.07.2013, Síða 36
UMFJÖLLUN O G GREINAR Lyfjamál í brennidepli - árétting vegna greinar Jakob Falur Garðarsson framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka framleiðenda frumlyfja Gerður Gröndal og Einar S. Björnsson skrifuðu nýlega ágæta grein í Læknablaðið (5. tbl. 99. árg.) undir yfirskriftinni Lyfja- mál í brennidepli. í greininni fjalla þau um notkun S-merktra lyfja. Þar er réttilega fjallað um nýlega skýrslu vinnuhóps vel- ferðarráðherra og þá niðurstöðu að að- haldi hafi verið beitt til hins ýtrasta und- anfarin ár og að ekki sé unnt að ná frekari sparnaði í þessum flokki nema með því að takmarka enn frekar aðgengi að lyfjunum eða bókstaflega að taka sjúklinga af þeim. Einnig fjalla Gerður og Einar nokkuð um þá staðreynd að upptaka nýrra lyfja, til dæmis krabbameinslyfja, hafi verið mjög takmörkuð hér á landi undanfarin ár. Almennt er grein þeirra góð og sann- gjörn greining á stöðu S-merktra lyfja hér á landi. Það er þó rétt að staldra við eitt atriði greinarinnar, en það er umfjöllun um verð lyfjanna og sú fullyrðing að „verð á sumum dýrum lyfjum á íslandi er mun hærra en á Norðurlöndunum". Þessari fullyrðingu sinni til staðfestingar nefna greinarhöfundar óskýrt dæmi um lyf við sortuæxli „þar sem útboð á íslandi gaf 2% afslátt en raunafsláttur í Noregi var 20%". Óumdeilt er, til dæmis með vísan til ágætrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um þróun lyfjakostnaðar 2008-2010, að „verð á þeim lyfjum sem seld eru hér á landi sé nú sambærilegt verði sömu lyfja á hinum Norðurlöndunum". Þá er ekki síður mikil- vægt að hafa hugfast, að almennt verð S-merktra lyfja hér á landi er ákvarðað af Lyfjagreiðslunefnd, byggt á reglugerð útgefinni af velferðarráðherra þar sem skýrt er kveðið á um að verðið hér á landi skuli ekki vera hærra en lægsta verð í samanburðarlöndunum fjórum, en þau eru Danmörk, Finnland, Noregur og Sví- þjóð. Með öðrum orðum er verðið á hinum íslenska örmarkaði aldrei hærra en lægsta verð Norðurlandanna. Greinarhöfundar vísa í afslætti. Af- slættir eru ekki opinberir og eru trúnaðar- mál í viðskiptum milli kaupanda og seljanda. Umræða um afslætti með þeim hætti sem greinarhöfundar viðhafa er brot á samningum og ekki í takt við þær venjur sem hafðar hafa verið uppi varðandi útboð fyrir hönd LSH. Þá er rétt að hafa í huga að prósentutala afsláttar, ein og sér, segir ekkert um endanlegt verð, sem þó hlýtur að vera það sem máli skiptir. Skýrsla Ríkisendurskoðunar dregur upp skýra mynd af stöðunni á lyfjamark- aði í dag. Fyrir liggur að stjórnvöld hafa með ákvörðunum sínum þrýst lyfjaverði í mörgum tilvikum niður á lægsta verð á Norðurlöndum, á sama tíma og opinber gjaldtaka hefur farið vaxandi. Þessar ákvarðanir hafa í einhverjum tilfellum leitt til þess að lyf hafa verið tekin af markaði hér á Iandi. Þá hefur stefna stjórnvalda gert það að verkum að ný lyf koma ekki á markað eða eru ekki tekin í notkun hér á landi til jafns við það sem gerist í helstu samanburðarlöndum okkar. Þessi stað- reynd dregur óhjákvæmilega úr gæðum heilbrigðisþjónustunnar. Eitt stærsta verkefni heilbrigðisyfir- valda hlýtur að vera að tryggja aðgengi sjúklinga að bestu mögulegu meðferð hverju sinni. Sú staða sem nú er uppi varðandi upptöku nýrra lyfja hér á landi er því alvarleg og mikilvægt að hags- munaaðilar innan heilbrigðiskerfisins taki höndum saman við að tryggja það fjár- magn sem til þarf svo að heilbrigðiskerfi okkar verði áfram í fremstu röð. HEILBRIGÐISSTOFNUN ■VESTURLANDS Yfirlæknir heilsugæslustöðvarinnar í Grundarfirði Laus ertil umsóknar staða yfirlæknis heilsugæslustöðvarinnar i Grundarfirði. Sérfræðimenntun i heimilislækningum eða staðgóð reynsla af störfum á heilsugæslusviði er skilyrði. Lögð er áhersla á aukna samvinnu starfsstöðva Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á norðanverðu Snæfellsnesi. Nú þegar er samstarf um bakvaktir heilsugæslulækna í Grundarfirði og Snæfellsbæ. Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2013. Upplýsingar gefa: Þórir Bergmundsson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 432 1000, netfang thorir. bergmundsson@hve.is og Guðjón S. Brjánsson, forstjóri í s. 432 1010, netfang gudjon.brjansson@hve.is Heilsugæslustöðin er hluti af Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem tók til starfa 1. janúar 2010 og samanstendur að auki af starfsstöðvum í Borgarnesi, Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Búðardal, Hólmavík og Hvammstanga. I Grundarfirði búa um 900 manns og í Snæfellsbæ tæp 1800. Á stöðinni starfar heilsugæslulæknir, hjúkrunarfræðingar, Ijósmóðir og ritarar. Bakvakt 2 sjúkraflutningamanna er á staðnum. 356 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.