Læknablaðið - 15.07.2013, Síða 42
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Barátta góðs og
ills á Vestfjörðum
Óttar Guðmundsson
Sturlunga er merkileg bók sem
dregur upp fremur dapurlega
mynd af íslenskum höfðingjum
á 12. og 13. öld. Sagan einkennist
af endalausum bræðra- og frænd-
vígum þar sem fjölskyldur og vinir
berast á banaspjótum og drepa
hver annan miskunnarlaust. í lok
13. aldar er búið að vængstýfa
helstu fjölskyldur landsins með því
að drepa fegurstu ættarlaukana.
Kristileg lífsgildi voru sjaldnast
höfð í hávegum þótt finna megi
undantekningar frá þeirri reglu.
Fremstan í þeim hópi verður að
telja Hrafn Sveinbjarnarson höfð-
ingja að Eyri við Arnarfjörð á Vest-
fjörðum. Sagan fer um hann fögr-
um orðum og lýsir dýrlingi fremur
en dauðlegum manni. Hann var
læknir góður eins og hann átti kyn
til og tók ekkert fyrir læknisstörf
sín. Hrafn var bóngóður og hjálp-
samur og stuðlaði meira að segja
að bættum samgöngum á Vest-
fjörðum. Hann var miskunnsamur
gagnvart fjandmönnum sínum og
kunni að fyrirgefa í anda Krists.
Það er erfitt fyrir geðlækni að geð-
greina slíkt valmenni.
Helsti fjandmaður Hrafns,
Þorvaldur Snorrason Vatns-
firðingur er algjör andstæða hans.
Þorvaldur leitar ásjár hjá Hrafni í
fyrstu en fljótlega vex með þeim
ágreiningur sem runninn er undan
rifjum Þorvaldar. Hann eflir ófrið
við Hrafn og reynir að ráða hann
af dögum sem mistekst. Eftir eina
slíka tilraun á Hrafn alls kostar við
Þorvald en kýs að gefa honum grið,
fyrirgefa honum og leysa hann
út með gjöfum. Þetta magnaði að
sjálfsögðu aðeins hatur Þorvaldar
á lækninum og fer svo að Þorvaldi
tekst að koma Hrafni á óvart og
handtekur hann. Hrafn biður sér
griða og lofar öllu fögru en Þor-
valdur lætur taka hann af lífi.
Enginn vafi er á því að Þor-
valdur Snorrason Vatnsfirðingur er
persónuleikaraskaður siðblindur
og ákaflega sjálfmiðaður maður.
Sagan segir að einhverju sinni hafi
hann legið með tveimur frillum
sínum í lokrekkju þegar fjandmenn
hans reyndu að brenna hann inni.
Hann er narsissískur og hégóm-
legur, öfundsjúkur, afbrýðisamur,
viðkvæmur og barnalegur eins
og reyndar er títt um höfðingja
á öllum tímum. Sennilega hefðu
nútímageðlæknar greint hann með
fjölmargar aðrar persónuleikarask-
anir auk siðblindunnar.
Sagan af Hrafni og Þorvaldi er
frásögn af viðureign tveggja ólíkra
manna þar sem Þorvaldur er jafn
illur og Hrafn er góður. Kannski
má segja að illmennska Þorvaldar
dragi góðmennsku og göfuglyndi
Hrafns fram og fyrir vikið verði
hann enn betri og heilagri enda
eru þeir á sitt hvorum jaðri mann-
kostalitrófsins. Sýkópatinn tekst á
við heiðarlegt göfugmenni.
í þessari glímu fer svo að hið
illa sigrar. Hrafn hefði getað leyst
öll sín vandamál gagnvart Þorvaldi
og þeim Vatnsfirðingum með því
að drepa hann þegar hann átti þess
kost. Hann valdi að hafa kristna
siðfræði að leiðarljósi og galt fyrir
þá yfirsjón með lífi sínu. Píslarsaga
og dauðdagi Hrafns minnir á
endalok Frelsarans sem dó á kvala-
fullan hátt með fyrirgefningarboð-
skap sinn á vörunum. Fleiri höfð-
ingjar Sturlungaaldar deila þessari
beisku reynslu með Hrafni. Sturla
Sighvatsson kaus að þyrma lífi
Gissurar Þorvaldssonar og glataði
fyrir vikið öllu ríki sínu og lífinu.
Boðskapur sögunnar er því
býsna einfaldur. Treystu engum
og síst óvinum þínum. Dreptu
fjandmenn þína án nokkurrar
miskunnar ef þú hefur færi á því.
Kristin siðfræði er góðra gjalda
verð en hún leiðir þig einungis í
dauðann meðan fjandmenn þínir
njóta lífsins með frillum sínum í
hlýju lokrekkjunnar.
Hrafn Sveinbjarnarson höfðingi, pílagrímur og læknir
Ráðstefna á Hrafnseyri við Arnarfjörð,
08:55-09:35 24. ágúst 2013 Flug: Reykjavík-Ísafjörður
09:45-10:45 Rútuferð: Ísafjörður-Hrafnseyri
10:40-11:10 Kaffi/meðlæti
11:10-11:15 Thor Vilhjálmsson í fótsporum Hrafns á pílagrímsvegum. Brot úr kvikmynd Erlends Sveinssonar „Draumurinn um Veginn“ sýnd í kapellu Setning ráðstefnu. Valdimar J.
11:15-11:45 Halldórsson staðarhaldari Kynnir: Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir Höfðingi nýrra tíma. Hrafn Svein
11:45-11:55 bjarnarson í samtíð sinni. Fyrirlesari: Torfi H. Tulinius Umræður
11:55-12:40 Matur
12:30-13:00 Thor Vilhjálmsson í fótsporum
13:00-13:30 Hrafns á pílagrímsvegum. Brot úr kvikmynd Erlends Sveinssonar „Draumurinn um Veginn" sýnd í kapellu Undrin í skáldskap Hrafns sögu.
13:30-13:40 Fyrirlesari: Guðrún Nordal Umræður
13:40-14:10 Lækningar og sáluhjálp.
14:10-14:20 Viðhorf til lækninga í Hrafns sögu Sveinbjarnarsonar. Fyrirlesari: Ásdís Egilsdóttir Umræður
14:20-14:50 Þvagfæraskurðlæknirinn Hrafn
14:50-15:00 Sveinbjarnarson. Fyrirlesari: Eiríkur Jónsson Umræður
15:00-15:10 Guðrún P. Helgadóttir
15:10-15:30 og fræðivinna hennar Jón Jóhannes Jónsson Kaffi
15:30-16:15 Dýrlingur á faraldsfæti.
16:15 Revía í tali og tónum. Óttar Guðmundsson og Diabolus In Medica Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Páll Torfi Önundarson, Jón Sigurpálsson Ráðstefnuslit
16:30-17:30 Rúta: Hrafnseyri - ísafjörður
18:05-18:45 Flug: fsafjörður - Reykjavík
Fekari upplýsingar veitir Valdimar J. Halldórsson
staðarhaldari, sími: 456 8260 og 845 5518.
Sjá einnig: www.facebook.com/#!/hrafnseyri
362 LÆKNAblaðið 2013/99