Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 43
UMFJÖLLUN O G GREINAR Höfum við efni á að setja sjötuga lækna á eftirlaun? Steinn Jónsson Höfundur er formaöur Læknafélags Reykjavíkur Á undanförnum árum hefur starfandi læknum á íslandi fækkað um 12%. í vissum sérgreinum blasir við neyðarástand vegna þess að reyndir sérfræðilæknar hafa verið settir skilyrðislaust á eftirlaun þó svo að þeir séu ennþá í fullu fjöri og geti lagt mikið til sinna sérgreina. Á sama tíma eru verkefni að aukast og sífellt eru gerðar meiri kröfur um frítíma. Ungir sérfræði- læknar leita nú síður til landsins vegna betri launa og vinnuaðstæðna erlendis. Það er vel þekkt að fólk er misjafnlega vel á sig komið á ýmsum aldursskeiðum og dæmi eru um að fólk haldi fullu starfs- þreki og andlegri getu langt fram yfir hefðbundinn eftirlaunaaldur. Meðalaldur þjóðarinnar hefur verið að hækka og mikilvæg þekking um orsakir andlegrar og líkamlegrar hrörnunar er nú orðin mörgum kunn, ekki síst læknum. Fólk tekur mið af þessu í lífsvenjum sínum, stundar útivist og hreyfingu, borðar hollan mat og forðast reykingar og óheilbrigt líferni. Framfarir í læknisfræði eru tví- mælalaust lykilatriði í þessarri þróun með aukinni áherslu á forvarnir og batnandi árangri meðferðar. Þess vegna er það orðin áleitin spurning hvers vegna ekki hefur orðið breyting á viðhorfinu til eftirlaunaaldurs. Eldra fólk hefur mikla starfsreynslu og yfirsýn og getur þess vegna sinnt ábyrgðarmiklum störfum og leiðbeint yngra fólki. Ekki er hægt að ætlast til þess að eldri læknar standi vaktir eða vinni í framlínunni, en þeir geta lagt sitt af mörkum í starfsemi heilbrigðiskerfisins og verið yngra fólki góð fyrirmynd. Það er sérlega óskynsamlegt við nú- verandi aðstæður að halda óbreyttri stefnu og setja alla lækna skilyrðislaust á eftir- laun við tiltekinn aldur. Betra væri að taka upp sveigjanlegt kerfi og einstaklings- bundna nálgun. Það mætti gera með virku símenntunarkerfi og reglulegu hæfnismati sem væri leiðbeinandi eða gæti skorið úr um hæfni manna. Slíkt kerfi mætti ná til allra lækna, ekki aðeins þeirra eldri. Þannig reglur eru til staðar í löndum þar sem læknisfræðin stendur með miklum blóma svo sem í Bretlandi, Bandaríkjunum, Danmörku og Þýskalandi. íslensk stjórn- völd ættu að íhuga þetta mál vandlega og breyta þessu kerfi sem fyrst. HEILBRIGÐISSTOFNUN ■VESTURLANDS ■ Yfirlæknir Heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi Laus er til umsóknar staða yfirlæknis Heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi. Sérfræðimenntun í heimilislækningum er skilyrði ásamt staðgóðri reynslu af stjórnunarlegum verkefnum. Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við endurskipulag og þróun nútímalegrar þjónustu á heilsugæslusviði þar sem leiðarijós er lýðheilsa og forvarnir. Staða heilsugæslulæknis Laus er til umsóknar staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslustöðina á Akranesi. Sérfræðimenntun í heimilislækningum er æskileg eða staðgóð reynsa af læknisstörfum á heilsugæslusviði. Umsóknarfrestur um bæði störfin er til 15. júlí 2013. Upplýsingar gefa: Þórir Bergmundsson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 432 1000, netfang thorir.bergmundsson@hve.is og Guðjón S. Brjánsson, forstjóri í s. 432 1010, netfang gudjon.brjansson@hve.is Heilsugæslustöðin er hluti af Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem tók til starfa 1. janúar 2010 og samanstendur að auki af starfsstöðvum í Borgarnesi, Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Búðardal, Hólmavík og Hvammstanga. Þjónustusvæði heilsugæslustöðvarinnar er Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit og ibúafjöldi er um 7,600. Á stöðinni starfa 4-5 heilsugæslulæknar auk 7 hjúkrunarfræðinga í ungbarna- og mæðravernd, heimahjúkrun, skólahjúkrun, heilsueflandi móttöku og öðrum almennum og sérstökum verkefnum. Næringar- fræðingur, sálfræðingar og iðjuþjálfi starfa í tengslum við heilsugæslustöðina. Við stöðina er starfar sérhæft fagfólks við greiningu hegðunar- og þroskafrávika barna. LÆKNAblaðið 2013/99 363

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.