Þjóðlíf - 01.05.1986, Qupperneq 16
16 ÞJÓÐLÍF
E
kki er víst hversu
lengi þetta ástand varir - en hitt
er fullvíst að miklar breytingar
hafa átt sér stað í tískuheimi Par-
ísarborgar frá því sem áður var.
Kóngur verður enginn í þessu
ríki á næstunni og krónprinsarnir
eru óbundnari einveldinu í París
en nokkru sinni. Hönnuðirnir í
París hafa að vísu fengið aukið
vald á allra síðustu árum, en lín-
an þaðan ræðurekki heims-
markaðnum lengur og þeir verða
að lúta lögmálum þess markað-
ar, eins og allir hinir - ferðast
um heimshornanna á milli í leit
að líklegum kaupendum.
Yfir tískuheimi Parísarborgar
hefur ávallt gnæft einn konungur
eða ein drottning í senn. Poiret,
Chanel og Balenciaga áttu sín
blómaskeið og báru höfuð og
herðar yfir minni spámenn og -
konur. Nú er öldin hins vegar
önnur. Segja má að n.k. Rósa-
stríð herji á Parísarborg þarsem
ýmsir prinsar eru nefndir sem
væntanlegir arftakar hinna stóru.
Ýmsir þeir sem lýsa tísku-
heiminum í París grípa til líkinga-
máls úr hernaðarfræði. Talað er
um árásir og gagnárásir, sóknar-
og varnarstríð, svikog hefndirog
allt ofið inn í samsæriskenningar
í æsifréttastíl þar sem hver vegur
annan. Peningar koma að sjálf-
sögðu mjög við sögu, sömuleiðis
„mannlegar" fréttir eins og pillu-
át, glamúr og kampavín - rétt
eins og í Dallas eða álíka sápu-
óperum. Stórveislur eru haldnar
og heilu þoturnar teknar á leigu
eins og ekkert sé þegar tísku-
sýningar eru í gangi. Joan Col-
lins lætur sig ekki vanta. Cather-
ine Deneuve lítur inn. Og a.uðvit-
að líta allir stórkostlega út og
ekki skortir aurinn.
Fjórum sinnum á ári ætlar allt
af göflunum að ganga. Haute
couture, eða hátískan, er sýnd
tvisvar sinnum á ári og fjölda-
framleiddi fatnaðurinn sömu-
leiðis tvisvarsinnum. Hversýn-
ing tekur heila viku og á þeim
tíma leiða kóngar og drottningar
tískuheimsins saman hesta sína
sameinuð, þótt sameiningin sé
kannski meiri í orði en á borði.
I lok marsmánaðar var kom-
andi vetrartíska sýnd í þremur
tjöldum sem reist voru íTuileri-
es-görðunum og að venju var
mikið um dýrðir. Um tíma hurfu
Gorbatjoff, Reagan og hin raun-
verulega stríðshætta af síðum
dagblaða og í staðinn gat að líta
ýmsar sögur af stríðum tísku-
hönnuða.
Yves Saint Laurent hóf fjöldafram-
leiðslu undir merkinu Rlve Gauche
á árinu 1966. Dæmi um sumarfatn-
að 1986 undir því merki.
Lúðvík 14., sólkonungurinn að
eigin sögn, skapaði sína eigin
tískulínu úr hásætinu: bomsa-
miklar hárkollur og fjólubláa
hælaskó. Henni urðu allir að lúta
sem vildu vera í náð kóngsa.
Allar götur síðan hefur París ver-
ið miðstöð tískunnar i heiminum,
og ætíð hefur París verið á valdi
eins manns eða konu í þessum
efnum. Paul Poiret, Coco Chan-
el, Christian Dior og Balenciaga
réðu hvert á fætur öðru yfir sínu
eigin kóngsríki þar sem virðing-
arröðin varóskeikul. Pierre Car-
din og André Courréges áttu sín
blómaskeið á sjöunda áratugn-
um, þótt skammvinn væru.
Yves Saint Laurent hefur á
síðasta áratug verið óumdeildur
sólkonungur Parísarborgar.
Pressan hefur lagt hann í einelti,
iðnaðurinn keppist við að líkja
eftir fatnaði hans, aðrirhönnuðir
hafa fljótt fylgt hans línu og fræg-
ar konur heimsins hafa dáð
hann fyrir fatnað hans. En nú
virðist sem sól hans sé að renna
til viðar og ýmsir geta sér þess
raunar til að tími einvaldanna sé
á enda. Þeir sem á fyrri tímum
hefðu verið álitnir krónprinsar
keppast allir við að lýsa því yfir,
að krúnan sé þeim fjarri og að
hún séjafnvel ekki til.
„Það er enginn einn sem
skarar fram úr núna, engin lína
sem ræður og ekkert hásæti til,“
segir Karl Lagerfeld, heilinn á
bak við Chanel og Fendi sem á
síðustu árum hefur skapað sér
nafn sem sjálfstæður hönnuður.
Karl Lagerfeld hefur verið meðal
fremstu hönnuða Parísarborgar
um fimmtán ára skeið og hefur
hlotið nafngiftina Svarti prinsinn.
Á hæla honum í tignarröðinni
kemur Azzedine Alaia sem var
tiltölulega óþekktur hönnuður
þartil fyrir nokkrum árum að
hann tók tískuheiminn í einu
áhlaupi. Alaia hefur hlotið viður-
nefnið Sigurvegarinn meðal
innvígðra í tískuheiminum. Lag-
erfeld og Alaia leggja báðir
áherslu á blöndun fatnaðar
þannig að hver og einn eða hver
og ein geti öðlast sinn persónu-
lega stfl. Þar fylgja þeir í rauninni
straumi götunnar, þ.e. almenn-
ingi, þar sem öllu ægir saman og
hugtakið tíska hefurekki það
ægivald er það hafði fyrirtveim-
ur áratugum eða svo. Yves Saint
Laurent hefur á hinn bóginn
brugðist við þessu uppátæki al-
mennings með því að gera fatn-
að sinn sérkennilegri og meira
sérkennandi en áður.
Yves Saint Laurent fæddist
inn í franska miðstéttarfjölskyldu