Þjóðlíf - 01.05.1986, Qupperneq 73
endurlestrar við. Og mjög er misjafnt
hvað unglingum býðst á heimilum sín-
um. Hér held ég því að skólakerfið
verði að koma tilu
En hvernig sinna þá skólarnir þessu
hlutverki sínu? Bara vel, sýnist mér.
Samræmt próf í níunda bekk (fyrir 15
ára) útheimtir Gísla sögu Súrssonarog
íslandsklukkuna og einnig eiga nem-
endur að greina ólesið Ijóð. Að öðru
leyti munu kennarar vera sjálfráðir um
lesefni og mér er sagt að í Réttarholts-
skóla séu lesin nútímaljóð eftir m.a. Jón
Óskar, Ólaf Hauk Símonarson, Einar
Má Guðmundsson, Gyrði Elíasson og
þýðingar Hannesar Sigfússonar á nor-
rænum Ijóðum. í þessum þremur bekkj-
um (13-15 ára) eru auk þess lesnar
skáldsögur Péturs Gunnarssonar,
Punktur... og Égum mig.. . auk
hefta sem Námsgagnastofnun hefur út-
gefið en þar er skáldskapur flokkaður
saman eftir efni: Æw', Auðurog örbirgð,
Grannar, Saman. Úr þessu velja kenn-
arar með fjölbreytni að leiðarljósi og
prófa sig áfram með hvað höfði til
krakkanna. Margt er gott í þessum heft-
um, og þá einnig að þau ná til nýjustu
verka, þótt auðvitað megi verk heft-
anna þykja mismunandi og hæpið að
leggja megináherslu á efnivið þeirra.
Hér hafa orðið verulega miklar framfarir
á þremur næstliðnum árum; ástandið
er allt annað en lesendur þessa tímarits
hafa vanist á dögum Lestrarbókarinn-
ar. Bókmenntaval er svo svipað í fjöl-
brautaskólum og menntaskólum þar
sem ég þekki til.
Það er því ekki ástæða til annars en
bjartsýni, enda þótt ruslið sé söluhæst.
Það ber hins vegar ekki vitni um bók-
menntasmekk nokkurs manns, heldur
hinu að fullorðnir vanda ekki val á því
sem þeir þekkja ekki til - kaupa bara
það sem selst best, „það hlýtur þá að
vera vinsælt". Bækur eins og Vorið
þegarmestgekk á kunna að vera
„þungar í sölu“, svo vitnað sé í forleggj-
ara, en þær hafa samt virðingarverð
áhrif. Líklega verða þær lesendum
þeim mun minnisstæðari sem þær
stinga meira í stúf við venjulega fram-
leiðslu unglingabóka að smekk fullorð-
inna. Sama gildir þá í enn ríkara mæli
um reynslu unglinga af mikilfenglegum
skáldverkum.
Tilvitnuð rit:
Símon Jóhann Ágústsson: Börn og bækur /-//.
Bókaútgáfa Menningarsjóös og Þjóövinafél-
agsins. Rvk. 1972-76.
Andrés Indriðason: Töfftýpaáföstu. Mál og
menning. Rvk. 1984.
Eðvarö Ingólfsson: Sextán ára ísambúð. Æskan.
Rvk. 1985.
Steinunn Jóhannesdóttir: Flautan og vindurinn.
Námsgagnastofnun 1985.
Gunnel Beckman: Voriðþegarmest gekká. Jó-
hanna Sveinsdóttirþýddi. löunn. Rvk. 1979.
Örn Ólafsson er bókmenntafræöingur í
Reykjavík og kunnur af skrifum sínum um
bókmenntir.
REVIDN
EllROPEáN COLLAGEN C(M>LEX
Vísindamenn hafa reynt það — konur hafa sannað það — Nú getur þú notað það.
European Collagen Complex er óvenjulega fjölhæft krem. Fyrir
daga, nætur og undir make. Hin einstaka blanda fer ótrúlega vel
með húðina, þú finnur muninn strax eftir fyrstu notkun. Hugsaðu
um húðina af nærgætni og notaðu European Collagen Complex
reglulega, það er sérstaklega gott fyrir venjulega eða þurra húð.
Heildsölubirgdir:
mmw* . .
<zMmenóKa 7
simi 82700
í
ÞJÓÐLÍF73