Þjóðlíf - 01.05.1986, Qupperneq 82
HITCHCOCK erán
efa einn þekktasti og áhrifaríkasti kvik-
myndaleikstjóri allra tíma. Hann var
þrisvarsinnum útnefndurtil Óskars-
verðlauna fyrir leikstjórn, en missti af
þeim í öll skiptin. Sumir segja, að það
sé vegna þess, að myndir hans hafi
ekki verið nógu burðarmiklar, en sú
skýring stenst tæpast þegar skoðaðar
eru þær myndir sem Hitchcock tapaði
fyrir.
Árið 1940 var Hitchcock útnefndur
sem besti leikstjórinn fyrir myndina Re-
becca, en tapaði þá fyrir John Ford er
gerði myndina Þrúgur reiöinnar. Aftur
tapaði mynd hans Lifeboat fyrir mynd
Leo McCarey, Going My Way árið
1944. Árið 1960 var svo Hitchcock út-
nefndur fyrir myndina Psycho sem í
dag þykir eitt af hans mestu meistara-
stykkjum, en þá tapaði hann fyrir Billy
Wilder, ergerði The Apartment. Sjö
árum síðar reyndi akademían að bæta
Hitchcock upp þessar hrakfarir með því
að veita honum verðlaun fyrir góða leik-
stjórn og gæðamyndir. Hann þáði verð-
launin með þökkum.
Hitchcock gerði margar góðar mynd-
ir um ævina og má þar nefna The 39
Steps frá árinu 1935 og The Lady Van-
ishes frá 1938, en báðar þessar myndir
gerði hann í Englandi. Er hann kom
vesturtil Hollywood gerði hann af-
bragðsgóðar myndir á borð við Foreign
Correspondent 1941, Rear Window
árið 1954 og loks Psycho árið 1960, en
sú mynd er helsta ástæða þess að fólk
steinhætti að fara í sturtuböð!
PETER SELLERS Þessistor-
skemmtilegi gamanleikari og meistari
raddbandanna, eins og hann var oft
kallaður, var tvisvar sinnum útnefndur
til Óskarsverðlauna - árið 1964 fyrir
leik sinn í myndinni Dr. Strangelove or:
How I Learned to Stop Worrying and
Love the Bomb (þá tapaði hann fyrir
Briton Rex Harrison í My Fair Lady) og
árið 1979 fyrir Being There (tapaði fyrir
Dustin Hoffman í Kramervs. Kramer).
En Sellers heldur áfram að kitla hlátur-
taugar kvikmyndahússgesta, þótt ekki
þyki allar myndir hans jafnar að gæð-
um, t.d. þykja Bleika-Pardus-seríurnar
frá Hollywood ekki ýkja merkilegar
myndir.
Minnisstæður er leikur Sellers í The
Mouse That Roared frá 1959 og l'm All
Right, Jack, einnig frá árinu 1959. í
síðarnefndu myndinni eru verkalýðsfé-
lög harðlega gagnrýnd og leikur Sellers
þar einráðan verkalýðsforingja. Þessi
mynd er ein af örfáum þar sem verka-
lýðshreyfingin hefur verið tekin fyrir
með þessum hætti. Og ekki má gleyma
leik hans í myndinni Dr. Strangelove,
en henni leikstýrði Stanley Kubrick. Þar
fór Sellers með þrjú hlutverk, hvorki
meira né minna: hlutverk Bandaríkja-
forseta, hlutverk ofursta í breska hern-
um og hlutverk geggjaða vísinda-
mannsins sem fann upp Sprengjuna.
82 ÞJÓÐLÍF