Fréttatíminn - 17.04.2014, Blaðsíða 2
20% afsláttur
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.
Þetta byrj-
aði sem
einn bíll
í Árnes-
sýslunni.
Rakel Þorbergsdóttir fréttamaður var
í gær ráðin fréttastjóri RÚV. Kynnt var
ný átta manna framkvæmdastjórn auk
þess sem ráðið var í starf mannauðs-
stjóra.
Ráðningarferlið var í höndum Capa-
cent en alls bárust á þriðja hundrað
umsóknir og tekin voru viðtöl við 74
umsækjendur. Fjórar stöður af átta
í framkvæmdastjórninni hafa verið
skipaðar konum svo nú er hlutfall milli
kynja í stjórn Ríkisútvarpsins í fyrsta
skipti jafnt.
Auk ráðningu Rakelar var Þröstur
Helgason, fyrrum ritstjóri Lesbókar
Morgunblaðsins, ráðinn dagskrár-
stjóri Rásar 1, Frank Þórir Hall dag-
skrárstjóri Rásar 2, Skarphéðinn
Guðmundsson var endurráðinn dag-
skrárstjóri Sjónvarpsins, Anna Bjarney
Sigurðardóttir verður framkvæmdar-
stjóri rekstrar, fjármála og tækni, Hild-
ur Harðardóttir framkvæmdastjóri
samskipta-, þróunar- og mannauðs-
sviðs, Ingólfur Bjarni Sigfússon vef-og
nýmiðlastjóri, Margrét Magnúsdóttir
skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins og
Andrea Róbertsdóttir mannauðsstjóri.
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri segist hlakka til að takast á við
uppbyggingu og eflingu Ríkisútvarps-
ins með þessum öfluga hópi. „Ég tel
að þetta ferli hafi skilað okkur öflugu
teymi með fjölbreytta reynslu og bak-
grunn,“ er haft eftir honum í tilkynn-
ingu.
Athygli vekur að Magnús tekur með
sér tvo nána samstarfsmenn úr Borg-
arleikhúsinu. Frank Hall var listrænn
ráðunautur þar og Hildur Harðardóttir
gegndi starfi markaðsstjóra. Þau
Hildur, Frank og Rakel Þorbergsdóttir
eru jafnframt skólafélagar Magnúsar
Geirs úr Menntaskólanum í Reykjavík.
-hh
Fjölmiðlar jaFnt kynjahlutFall í nýrri Framkvæmdastjórn rÚv
Nú mun Bernhöftstorfan
bætast við flóru þeirra
staða í Reykjavík sem
notaðir verða undir
götu-og torgsölu, en þar
er heimilt að selja ávexti,
grænmeti, blóm, ýmis
handverk og smávöru.
Markaðssalan er hugsuð
fyrir einyrkja og geta
þeir fengið leyfi til eins,
tveggja eða þriggja
mánaða fyrir sína
söluaðstöðu. Eftir að
leyfið hefur verið greitt
getur leyfishafi flutt sig
milli sölustaða að vild, en
auk Bernhöftstorfunnar
má selja markaðsvöru
á Ingólfstorgi og á
bílastæðinu við Geirs-
götu 13. Sala verður
heimiluð frá 9-21 alla
daga. Markaðssölunni
er ætlað að glæða mið-
borgina lífi og fjölbreytni
en krafa er gerð um að
útlit sölustaða falli vel
að umhverfinu. Leyfið
kostar 20 þúsund krónur
á mánuði og opnað
verður fyrir umsóknir 15.
maí næstkomandi.
Torgsala við Bernhöftstorfu
850 milljónir í
mat og drykk fyrir
páskana
Rannsóknarsetur verslunarinnar
áætlar að landsmenn verji
um 603 milljónum króna til
kaupa á mat og dagvöru
fyrir páskana í ár, og
vega páskaegg og önnur
sætindi þar nokkuð
þungt. Þá er áætlað að
landsmenn kaupi áfengi
fyrir páskahátíðina fyrir
um 243 milljónir króna,
bæði páskabjór og aðrar
veigar. Samtals má því ætla
að heildareyðsla í mat og
drykk fyrir páskana nemi um
846 milljónum króna.
Lambakjöt selst
ekki vegna hval-
veiða
Hvalveiðar hafa skaðað sölu íslensks
lambakjöts á Bandaríkjamarkaði.
Líklegasta skýringin á því að
áætlanir um sölu lambakjöts á
síðasta ári gengu ekki eftir er talin
sú að verslunarkeðjan Whole Foods
hætti að auglýsa íslenskt lambakjöt
á síðasta ári, vegna hvalveiða
Íslendinga. Þetta kemur fram í
Bændablaðinu. Magnús Freyr
Jónsson, framkvæmdastjóri KVH
á Hvammstanga, sem hefur
flutt um 200 tonn af lambakjöti
vestur um haf, segir að á næstu
mánuðum komi fulltrúar
Whole Foods til landsins til
viðræðna. Komi í ljós að
þeir telji sölu á íslensku
kjöti skaða ímynd
Whole Foods muni
samstarfinu líklega
ljúka.
Sérfram-
boð sjálf-
stæðismanna
í Reykjanesbæ
„Gunnar Þórarinsson,
bæjarfulltrúi sjálfstæðis-
manna í Reykjanesbæ, verður
í fyrsta sæti klofningsframboðs
við bæjarstjórnarkosningarnar í
vor. Honum var hafnað í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins. „Það var ekki
ég sem yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn,
hann hafnaði mér,“ segir Gunnar,
sem vildi 1.-2. sæti listans en hafnaði
í fimmta sæti. Hann hefur neitað að
lýsa stuðningi við Árna Sigfús-
son bæjarstjóra. Gunnar kynnti í
fyrradag lista Frjáls afls þar sem
hann verður í fyrsta sæti. - eh
v ið erum að vakna til lífsins eftir veturinn. Sumum finnst við vera eins og lóan,“ segir Ásgeir Baldu-
son, framkvæmdastjóri Ísbílaútgerðar-
innar. „Ég er útgerðarmaður og geri út
ís,“ segir hann glettinn. „En ég er líka oft
bara kallaður ísbílstjóri.“ Ásgeir byrjaði
að keyra Ísbílinn á fyrsta starfsárinu, árið
1994, og tólf árum síðar keypti hann fyrir-
tækið. Þetta er tuttugasta starfsár Ísbílsins
og rekur Ísbílaútgerðin nú 10 bíla sem aka
um allt land.
„Þetta byrjaði sem einn bíll í Árnes-
sýslunni en smátt og smátt hefur okkur
tekist að breiða fagnaðarerindið út um allt
land,“ segir Ásgeir. Ísbíllinn ekur sam-
kvæmt áætlun um land allt frá mars og
fram í desember. Í vikunni sem er að líða
hefur Ísbíllinn meðal annars komið við
á Hólmavík, Þingeyri og Hvammstanga
og áætlun fyrir höfuðborgarsvæðið er að
komast í gagnið, þó Ísbíllinn hafi látið sjá
sig á götum borgarinnar þegar vel hefur
viðrað í vor.
Ásgeir segir ákaflega skemmtilegt að
keyra Ísbílinn þó hann geri minna af því
í seinni tíð. „Maður hittir mikið af glöðu
fólki fagnar komu Ísbílsins. Það eru margir
sem tala um það sem skemmtilegasta
sumarstarf í heimi að keyra Ísbílinn,“ segir
Ásgeir sem einmitt gaf sér tíma til að tala
við blaðamann á milli þess sem hann tók á
móti umsækjendum. „Það eru margir fyrr-
verandi starfsmenn sem hugsa með hlýju
til Ísbílsins og ferðanna um sveitir landsins
jafnvel þó þeir séu komnir með „karríer“
í dag.“
Tvö ár eru síðan byrjað var að vinna
leiðakerfi Ísbílsins fyrir höfuðborgarsvæð-
ið en Ásgeir telur að það taki líklega tvö ár
til viðbótar að ljúka því þannig að Ísbíllinn
aki eftir áætlun í hvert einasta hverfi. Auk
þess ekur hann um stærri sumarhúsa-
hverfi og hægt er að sérpanta hann í fyrir-
tæki.
Skipulagðar ferðir eru á sumrin en
annars eru ferðir stopulli, þó það fari ekki
framhjá neinum að Ísbíllinn sé í hverfinu
þegar glaðleg bjallan, sem er svo einkenn-
andi fyrir bílinn, hringir. Í bíómyndunum
hópast gjarnan börnin að bílnum þegar
hann kemur í hverfið en Ásgeir segir allur
gangur á því hvernig það sé. „Stundum fá
börnin að koma ein út með pening og fara
aftur til foreldra sinna með ís og afgang-
inn. Oft kaupir fólk líka tilboðskassa til að
eiga í frystinum. Einn stærsti kosturinn
við Ísbílinn er að við komum með ísinn
gaddfreðinn upp að dyrum,“ segir Ásgeir.
Úrvalið í Ísbílnum er nánast óþrjótandi,
þar er meðal annars hægt að fá rjóma-
íspinna með appelsínusorbethjúp, grænan
frostpinna með súkkulaði og lífrænan
súkkulaðitopp, auk sérstakra fjölskyldu-
pakka með blönduðum tegundum. „Ís-
bíllinn er sannkallaður gleðigjafi og það á
eftir að vera mjög skemmtilegt hjá okkur í
sumar,“ segir Ásgeir.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Rakel
Þorbergs-
dóttir er nýr
fréttastjóri
RÚV.
Hún tekur
við starfinu
af Óðni
Jónssyni.
Ísbíllinn er eins og lóan
atvinna ísbíllinn Fagnar 20 ára starFsaFmæli í ár
Ísbíllinn fagnar 20 ára starfsafmæli sínu í ár. Upphaflega var aðeins einn bíll sem keyrði um
Árnessýslu en í dag aka tíu bílar um land allt og gleðja unga sem aldna. Tvö ár eru síðan Ísbíllinn
fór að keyra eftir áætlun á höfuðborgarsvæðinu og segir framkvæmdastjóri Ísútgerðarinnar að
margir minnist þessa að keyra Ísbílinn sem skemmtilegasta sumarstarfsins.
Ásgeir Baldursson ísútgerðarmaður segir skemmtilegt að aka Ísbílnum því undantekningalaust sé honum tekið með bæði gleði
og eftirvæntingu. Ljósmynd/Hari
Rakel ráðin fréttastjóri RÚV
2 fréttir Helgin 17.-21. apríl 2014