Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.04.2014, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 17.04.2014, Blaðsíða 36
36 matur & vín Helgin 17.-21. apríl 2014  vín vikunnar Campo Viejo Reserva Gerð: Rauðvín Þrúga: 85%Tempr­ anillo, 10% Graciano, 5% Mazuelo Uppruni: Spánn Styrkleiki: 13,5% Verð: 2.499 kr. Umsögn: Fátt á betur saman en Rioja Spánverji og íslenskt miðjarðarhafs­ kryddað páskalamb. Mild tannín og ljúfur vanillukeimur reserva týpunnar af Campo Viejo auk sýrunnar hjálpa til að lyfta hvaða lamabsteik á næsta stall. Trapiche Malbec Oak Cask Gerð: Rauðvín Þrúga: Malbec Uppruni: Argentína, 2011 Styrkleiki: 14% Verð: 2.050 kr. Umsögn: Malbec­ þrúgan er kröftug og hentar vel með kjötmeti hvers konar og ekki skaðar að það sé grillað. Dökkur ávöxturinn, mild sýra og gott jafnvægi gerir að þetta vín hentar vel fyrir þá sem sneiða framhjá páskalambinu og vaða beint í bragðmikla grillaða nautasteik. IL Falcone Riserva Gerð: Rauðvín Þrúga: 70% Nero di Troia, 30% Montepulciano Uppruni: Ítalía, 2007 Styrkleiki: 13,5% Verð: 3.397 kr. Umsögn: Þetta ítalska vín með hið eitursvala fálkanafn steinliggur með flestum einföldum kjötréttum, allt frá einfaldri lambasteik upp í léttari villibráð. Það er kryddað og í þyngri kantinum en hefur ferskleika og er spennandi kostur fyrir þá sem vilja prófa sig áfram en verið snögg því það er ekki til mikið af því. Guðaveigar um páskana Í Biblíunni er sagt frá því að við síðustu kvöldmáltíðina hafi Jesú tekið brauð og vín og beðið guð, föður almáttugan, um að blessa það. Það er því ljóst að Jesús var ekki bara hlynntur því að dreypa á víni með mat heldur hafa fróðir menn haldið því fram að hann hafi meira að segja bruggað vínið sjálfur og boðið lærisvein- unum upp á. Hvort vín á tímum Jesú séu eitthvað í líkingu við vín okkar tíma skal ósagt látið en ef úrval frá þessum heimshluta í Vínbúðunum er skoðað er eina vínið sem okkur stendur til boða frá Líbanon. Er það ekki nógu nálægt? Svo heppilega vill til að þetta vín passar sérstaklega vel með vel krydduðu páskalamb- inu. Þetta er kröftugt og sultað vín og til þess að páskalambið og vínið njóti sín sem best mælum við með því að það sé kryddað með miðjarðar- hafskryddum og grillað á opnum eldi.Chateau Musar Gerð: Rauðvín. Þrúgur: Cabernet Sauvignon, Cinsaut. Uppruni: Líbanon. Styrkleiki: 14% Verð í Vínbúðunum: 5.199 kr. (750 ml) Höskuldur Daði Magnússon Teitur Jónasson ritstjorn@frettatiminn.is Fréttatíminn mælir með Uppskrift vikunnar Páskalamb að hætti Kol Páskarnir eru fram undan og þá kemur ekki annað til greina en að gæða sér á íslenska fjallalambinu. Kári Þorsteinsson og hans fólk á veitingastaðnum Kol við Skólavörðustíg leggur hér til uppskrift að grillaðri lamba rumpsteik (mjaðmasteik), mjúkri polentu, blaðlauk, confit hvítlauk, bláberjasultu og lambasoðgljáa. Lamb: 150 til 200 g á mann ferskt garðablóðberg ferskur hvítlaukur salt og pipar Hlutlaus olía AðfErð: Mikilvægt er að taka kjötið út tímanlega svo það sé ekki ískalt Þegar eldun hefst. Við hér á Kol notum grillofninn sem gerir fituna stökka og bragðið einstakt en venjulegt grill sleppur alveg og jafnvel er hægt að pönnusteikja og klára svo eldun í ofni. fyrir þennan vöðva hentar best að elda medium eða jafnvel upp í medium well, kjörhitastig væri 58-60°C. Eftir eldun er kjötið látið hvíla sem er mjög mikil- vægt og fer eftir stærð hversu lengi, en 5-10 mínútur dugar og ekki skemmir fyrir að nudda kjötið með hráum hvítlauk og fersku garðablóðbergi. Polenta: 1 l vatn 50 g smjör 200 g polentumjöl 100 g kalt smjör í teningum 100 g parmesan ostur (rifinn) AðfErð: fyrstu þrjú hráefnin sett saman í pott og soðin vel saman þar til polentan er laus við alla kekki og er ekki lengur kornótt, Því næst er potturinn tekinn af hitanum og restin af smjörinu og ostinum sett út í og hrært, smakkað til með salti. Blaðlaukur: ½ -1 stk á mann, fer eftir stærð hrásykur (demerara) salt og pipar AðfErð: Skerið af grænasta partinn og neðsta partinn en bara snyrta neðsta partinn svo að hann haldist betur saman við eldun, skerið laukinn næst í tvennt langsum og skolið allan jarðveg úr sem er efst. Síðan sjóðum við laukinn í vatni með smá salti, bara til að mýkja hann en ekki til að elda alla leið, kælum svo laukinn og leggjum hann á fat með sárið upp og setjum smá olíu, salt, pipar og hrásykur, hitum grillið í ofninum eins mikið og hægt er og skellum lauknum inn þar til sykurinn er nánast brenndur. Hvítlaukur: 20 hvítlauksgeirar (skrældir) extra virgin ólívuolía AðfErð: Olía og laukur sett saman í pott og látið krauma saman fyrst á háum hita þar til smá kraum kemur og svo lækka hitann alveg niður og láta malla þar til laukurinn er alveg mjúkur og gullinn. (Geyma olíuna en hún er virkilega góð, fyrir næstu máltíð eða næsta lauk). Sósa: Hægt er að nota uppáhalds sósuna sína með þessum rétt og er ekki heilagt og bláberjasultunni má sleppa en við mælum með henni.Ljós­ myndir/Hari Speglar frá 5.000 Skrifstofuhillur frá 9.900 Rúm 193cm frá 110.000 Borðstofuborð frá 47.500 Sófaborð frá 7.500 Púðar frá 2.900 Stólar frá 2.000 Borðstofuskenkar frá 77.000 Bar skápar frá 89.000 Púðaver frá 1.000 TILBOÐSVÖRUR Íslenskir sófar Fyrir íslensk heimili • Gerð (fleiri en 900 mismunandi útfærslur) • Stærð (engin takmörk) • Áklæði (yfir 3000 tegundir) Þú velur og draumasófinn þinn er klár Basel bjóðum allt að 50% afslátt Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 Rín SÓFAR Í ÖLLUM STÆRÐUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.