Fréttatíminn - 17.04.2014, Blaðsíða 46
Silfurhringurinn
Léttasti hluti keppninnar er þessi
48 kílómetra hringur kringum
Laugarvatn. Þessi hluti er fær
öllum tegundum af hjólum.
Lítið af brekkum og einstaklega
fallegt landslag í hjarta sögu
miðalda á Íslandi með Þingvelli,
Laugarvatn og Skálholt í augsýn.
Gullhringurinn
Aðalkeppnin er þessi 116 km
hringur frá Laugarvatni að Geysi
og þaðan í gegnum Biskupstung-
ur inn í Grímsnes að Soginu og
inn að Þingvallavatni og þaðan
yfir Lyngdalsheiðina og aftur að
Laugarvatni. Einnig er boðið upp
á styttri 65,5 km leið í svoköll-
uðum B flokki. Hér verða kepp-
endur að vera á hraðskreiðum
hrútastýrahjólunum.
Þriggja vatna keppnin
Í þessum hluta keppninnar
eru hjólaðar þrjár vatnaleiðir á
þremur dögum, Þingvallavatn,
Úlfljótsvatn og Laugarvatn.
Fyrstu tvær eru hjólaðir að
kvöldi til, dagana fyrir stóra
keppnisdaginn 12. júlí þar sem
keppendur í þessum flokki hjóla
stóra Gullhringinn frá Laugar-
vatni. Þessi keppni er fyrst og
fremst hugsuð fyrir lið en ein-
staklingar í þessum flokki geta
kosið að hjóla eina, tvær eða
allar dagleiðirnar.
David Robertson
Formaður hjólreiðanefndar ÍSÍ
ritstjorn@frettatiminn.is
GOLD PLATED
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION
XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD
AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS
GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM
Helstu hjólreiða-
keppnir sumarsins
Alls konar hjólreiðar blómstra á landinu kalda þessi dægrin. Það þykir ekki lengur tiltökumál
að hjóla langar vegalengdir í og úr vinnu og öll þessi hjólavakning er að skila sér í skipu-
lagðri hjólamennsku af eldmóði sem ekki hefur sést hér áður. Hjólreiðar eru að verða ekta
keppnisíþrótt á Íslandi. Upp hafa sprottið hjólafélög þar sem æfingar eru stundaðar af kappi
og fjöldinn allur af hjólreiðamótum hefur fylgt í kjölfarið. Keppt er í flestum tegundum
hjólreiða. Götuhjólreiðar, fjallahjólreiðar, tímataka og fjallabrun er bara sumt af því sem
stendur til boða. Flest mótanna eru opin öllum og um að gera að taka þátt. Það er oft keppt
í mörgum aldursflokkum og að sjálfsögðu í kvenna- og karlaflokki.
Þingvellir
Hvenær: 31. maí
Hvar: Þingvöllum
Tegund: götuhjólreiðar
Lengd: 34/51/68 km
Flokkar: 4 aldursflokkar KK og KvK
2-4 hringir hjólaðir í Þjóðgarðinum
eftir því í hvaða flokki keppendur eru.
JöKulmílan
Hvenær: 14. júní
Hvar: Snæfellsnesi
Tegund: götuhjólreiðar
Lengd: 74/161 km
100 mílna hringur sem hefst
og lýkur í Grundarfirði á Snæfellsnesi.
WOW CyClOthOn
Hvenær: 24.-27. júní
Hvar: hringinn í kringum ísland
Tegund: götuhjólreiðar
Lengd: 1332 km
Flokkar: 1, 4 eða 10 í liði
Liðakeppni þar sem keppendur skiptast á að hjóla
hringinn í kringum landið í einum rykk.
alvOgen tt tímataKa
Hvenær: 3. júlí
Hvar: Sæbrautin í reykjavík
Tegund: tímataka
Lengd: 20/40 km.
Allt gefið í botn eftir Sæbrautinni.
Focus Mares CX 3.0 Cycloc-
rosshjól. Sterkbyggt með
grófum dekkjum.
Specialized Venge Expert
Ultegra götuhjól (racer).
Byggt fyrir hraða og stjórn.
Cyclocrosshjól Götuhjól Fjallahjól Þríþrautarhjól
Specialized Epic marathon
Tvídempað karbon tryllitæki
á 29” dekkjum.
Trek Speed Concept 2.5
þríþrautar-eða tímatöku-
hjól. Hraði og aftur hraði.
BláalónSÞrautin
Hvenær: 7. júní
Hvar: hafnarfjörður-Bláa lónið
Tegund: Fjallahjólreiðar
Lengd: 57 km
Flokkar: 4 aldursflokkar KK og KvK
Malbik, möl og drulla skiptast á í vinsælustu
hjólakeppni landsins sem endar svo með baði í
Bláa lóninu.
Kexreið
Hvenær: 21. júní
Hvar: Skúlagata í reykjavík
Tegund: götuhjólreiðar, lokuð braut
Lengd: 15/30 km
Stuttur hringur við Kex Hostel hjólaður margoft.
Hjólað í Gullhring
Hjólreiðakeppnin Gullhringurinn er á sínu þriðja ári. Aðal-
keppnin fer fram 12. júlí og hefst á Laugarvatni en í tvo daga á
undan fer einnig fram keppni þeirra lengra komnu. Áhersla er
lögð á að allir geti verið með allt frá hörðum keppnismönnum
til í áhugasamra dútlara. Þátttökustig eru þrjú og til þess
ætluð að henta sem flestum.
tour de hvolsvöllur
Hvenær: 28. júní
Hvar: reykjavík-hvolsvöllur
Tegund: götuhjólreiðar
Lengd: 100 km
Flokkar: 4 aldursflokkar KK og KvK
Kannski ekki neitt í líkingu við hinn eina sanna
Túr en skemmtilegir 100 km eftir Suðurlandinu.
lauF t
Hvenær: 4. júlí
Hvar: heiðmörk
Tegund: Fjallahjólreiðar
Lengd: 6 eða 12 klukkustundir
Flokkar: 16-39, 40+ KK og KvK
Þolkeppni í fjallahjólreiðum þar sem sá vinnur sem
kemst lengst innan tímarammans.
veSturgatan
Hvenær: 19. júlí
Hvar: vestfirðir
Tegund: Fjallahjólreiðar
Lengd: 57 km.
Hjólað upp á fjall á Vestfjörðum.
Frábær þolraun.
gullrhringurinn
Hvenær: 10-12. júlí
Hvar: laugarvatn
Tegund: götuhjól-
reiðar
Lengd: 48/116
km
Flokkar: 4 ald-
ursflokkar KK
og KvK
Ein umfangsmesta
hjólreiðakeppni
landsins, sjá hliðarefni.
Þ að kemur að því í lífinu að þér finnst að þú þurfir að ná einhverjum árangri; að eitt-
hvað sem þú gerir þurfi að komast
á næsta stig. Sumir eignast börn,
eða skipta um vinnu; lífið breytist.
Það má líta á það að taka þátt
í hjólreiðakeppni þessum augum
- sem tækifæri til að keppa við
aðra hjólreiðamenn, tækifæri til
að prófa sjálfan sig.
Það eru til fjölmargar vefsíður
þar sem þú getur fengið að sjá að
þú hjólaðir hraðar núna en í síð-
ustu viku en það er ekkert sem
jafnast á við það að leggja sjálf-
an þig algjörlega að veði í harðri
keppni á brautinni eða á úti á götu.
Ástæðan fyrir því að ég elska það
að keppa er sársaukinn og gleðin
sem síðan tekur við. Þetta segir
mér að ég fór alveg út á brúnina
en skömmu síðar dofnar sárs-
aukinn og þú finnur að hann var
bara tímabundinn og árangurinn
stendur eftir. Og þá ertu kominn á
næsta stig. Í næstu keppni kemstu
svo kannski á þar næsta stig.
Á Íslandi hafa hjólreiðar lengi
verið minnihlutasport en við erum
að styrkjast með hverju árinu og
þetta árið eru fleiri keppnir haldn-
ar en nokkru sinni áður. Láttu
reyna á mörkin þín, þú getur
áreiðanlega meira en þú heldur.
Sapere Aude (Þorðu að fá að vita).
Þorðu að fá að vita
46 frítíminn Helgin 17.-21. apríl 2014