Fréttatíminn - 17.04.2014, Blaðsíða 35
ferðalög 35Helgin 17.-21. apríl 2014
Veitingar við öll tækifæri
veisluþjónusta
RESTAURANT- BAR
Tapas barinn
Tapas snittur, spjót og tapas í boxi.
Girnilegir smá-borgarar og eftirréttir.
Kíktu á tapas.is, sendu línu á tapas@tapas.is
eða hringdu í síma 551 2344.
Við hjálpum þér að gera þína veislu
ógleymanlega.
UMBOÐSAÐILI:
www.danco.is
Safnaðu
þeim öllum!
Sölustaðir:
Fjarðarkaup, Vínberið, Bókabúð Máls og menningar,
Fríhöfnin, helstu apótek og verslanir um land allt.
TM
KYNNING
Einn hápunktur Bjartra daga er hátíðin
Er einhver heima í Hafnarfirði? í umsjón
Lista- og menningarfélags Hafnarfjarðar
síðasta vetrardag. Í þrettán heima-
húsum í miðbæ Hafnarfjarðar verða
tónleikar. Meðal tónlistarmanna sem
fram koma eru Ylja, Fjallabræður og
Bjartmar Guðlaugsson. Þá verður opinn
míkrafónn í Gaflaraleikhúsinu og ball á
Fjörukránni þar sem hafnfirska hljóm-
sveitin Kátir piltar spilar fyrir dansi. Einn
þekktasti kántrísöngvari Færeyja, Hallur
Joensen, kemur bæði fram í Gaflaraleik-
húsinu og á ballinu á Fjörukránni.
Á sumardaginn fyrsta verður fjölskyldu-
dagur í sundlaugunum í Hafnarfirði og
aðgangur því ókeypis, þann dag verður
líka mikil og flott dagskrá á Thorpslani
og meðal annars kemur fram skemmti-
legur unglingasönghópur, Gengið af
Göflurunum. „Leikskólarnir í Hafnarfirði
taka virkan þátt í Björtum dögum og
hafa skreytt fyrirtæki og stofnanir,
fjórðu bekkingar syngja inn hátíðina
og félagsmiðstöðvarnar eru með við-
burðinn Hafnarfjörður hefur hæfileika
þar sem ungt fólk syngur, leikur, dansar
og sýnir ýmsa aðra hæfileika,“ segir
Marín.
Nánari upplýsingar um dagskrá Bjartra
daga má nálgast á vef Hafnarfjarðarbæj-
ar, www.hafnarfjordur.is og á Facebook-
síðunni Bjartir dagar.
Sumri fagnað á
Björtum dögum
Á Björtum dögum, laugardaginn 26. apríl,
verður Eftirstríðsára dansleikur í Gúttó,
sögufrægu húsi Góðtemplarareglunnar.
Boðið verður upp á kransakökur og kaffi
og dansað fram á nótt.
Menningar- og listahátíðin Bjartir dagar hefst í Hafnarfirði
síðasta vetrardag og stendur í fimm daga. „Eins og alltaf á
Björtum dögum verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Má
þar nefna tónleika, leikhús, bíósýningar, gönguferðir, dansleiki,
skyggnilýsingafund í Gúttó, leiðsögn um söfn og viðburðinn
Gakktu í bæinn þegar listamenn og söfn bjóða heim. Þá er
aðeins fátt eitt nefnt,“ segir Marín Guðrún Hrafnsdóttir, menn-
ingar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar.