Fréttatíminn - 17.04.2014, Side 6
Opnunartími
um páskana
í dag, skírdag
– reykjavík – 1
300-1700
í dag, skírdag
– akureyri – L
OkaÐ
Föstudagurin
n Langi – LOka
Ð
Laugardagur
– reykjavík –
1100-170
0
Laugardagur
– akureyri – 1
100-1600
páskadagur –
LOkaÐ
annar í pásku
m – LOkaÐ
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
e i t t s í m a n ú m e r 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
20% aFsLáttur aF
smávöru tiL páska!
14.990
Fullt veRð: 19.990
ginnie
skrifborðsstóll 4 litir.
nÝtt
hugmynd aÐ
Fermingar -
gjöF!
Á liðnu ári greiddu nær 9 prósent einstaklinga yfir 40 prósent af ráðstöfunartekjum í húsnæðis-
kostnað. Svo hátt hlutfall er skilgreint sem verulega íþyngjandi húsnæðiskostnaður.
K onur í kennslu eru nú að meðaltali rúmlega 46 ára og hefur meðalald-ur þeirra aukist um tæplega fjögur
ár frá því fyrir aldamót, samkvæmt upp-
lýsingum frá Hagstofu Íslands. Meðal-
aldur starfsfólks við kennslu í grunnskól-
um hefur farið hækkandi frá árinu 2000.
Árið 1998 var meðalaldur starfsfólks við
kennslu 41,7 ár en var kominn í 46,0 ár
haustið 2013. Meðalaldur karlkennara
hefur hækkað úr 43,2 árum í 45,4 ár.
Haustið 1998 kenndu 1.052 karlar í
grunnskólum landsins, 26,0% starfsfólks
við kennslu. Körlum hefur farið hægt
fækkandi meðal kennara og haustið 2013
störfuðu 908 karlar við kennslu, 19,0%
kennara.
Nemendur í grunnskólum á Íslandi
voru 42.734 haustið 2013. Nemendum
fjölgaði um 414 (1,0%) frá fyrra ári eftir að
hafa fækkað jafnt og þétt frá árinu 2003,
þegar þeir voru 44.809. Auk þess stund-
uðu 111 börn nám í 5 ára bekk.
Frá haustinu 2006 hefur nemendum
með erlent ríkisfang fjölgað um 518 og
voru 1.498 talsins haustið 2013. Haustið
2006 voru þessir nemendur 2,2% af
grunnskólanemendum en voru orðnir
3,5% nemenda haustið 2013, og hafa aldrei
verið fleiri. Fjölmennastir voru nemendur
með pólskt ríkisfang (811) og nemendur
frá Litháen (137).
Nemendum sem skráðir eru með erlent
tungumál að móðurmáli hefur að sama
skapi fjölgað ár frá ári frá því að Hagstof-
an hóf að safna inn þeim upplýsingum.
Haustið 2013 höfðu 2.775 grunnskólanem-
endur erlent tungumál að móðurmáli, eða
6,5%, og er það fjölgun um 0,2 prósentu-
stig frá fyrra ári.
Sé litið 15 ár aftur í tímann hafa fremur
litlar breytingar orðið á fjölda kennara en
þeim hefur fjölgað um 6,3%. Ef sérkenn-
arar eru taldir með hefur kennurum og
sérkennurum fjölgað um 14,7% á þessum
15 árum. Hins vegar hefur ýmsum stuðn-
ingsaðilum nemenda fjölgað verulega.
Þroskaþjálfum hefur fjölgað hlutfalls-
lega mest, eða um 383%, og stuðnings-
fulltrúum hefur fjölgað um 215%. Þegar
allir starfsmenn grunnskóla eru taldir
hefur starfsmönnum fjölgað um 22,7% frá
hausti 1998.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Húsnæði 16,8 prósent af ráðstöfunarteKjum
Byrði húsnæðiskostnaðar í meðallagi hérlendis
Byrði húsnæðiskostnaðar meðaleinstaklings
árið 2013 nam um 16,8% af ráðstöfunartekjum
og hafði þá haldist nokkuð stöðug frá 2006,
að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Undir-
liggjandi voru þó allnokkrar breytingar á
húsnæðisbyrði fólks með mismunandi stöðu
á fasteignamarkaði, þ.e. byrðin hækkaði hjá
leigjendum en lækkaði hjá fólki sem bjó í eigin
húsnæði, að því er segir á síðu Hagstofunnar.
„Árið 2013 greiddu 8,8% húsnæðiskostnað
sem var 40% eða meira af ráðstöfunartekjum,
en það skilgreinist sem verulega íþyngjandi
húsnæðiskostnaður. Árið 2006 var þetta hlut-
fall hæst 14,3% en hefur lækkað síðan þá.
Þróunin var þó ólík eftir hópum. Hlutfallið
hækkaði á meðal leigjenda en lækkaði á meðal
eigenda, hækkaði á meðal heimila með einn
fullorðinn einstakling og börn en lækkaði
hjá heimilum tveggja fullorðinna með tvö
börn, hækkaði meðal fólks yngra en 30 ára en
lækkaði á öðrum aldursbilum. Þá var íþyngj-
andi húsnæðiskostnaður mun tíðari hjá fólki
í lægsta tekjufimmtungi en hjá tekjuhærri
hópum.
Byrði húsnæðiskostnaðar og hlutfall fólks
með íþyngjandi húsnæðiskostnað er í meðal-
lagi á Íslandi samanborið við önnur Evrópu-
lönd árið 2012. Byrðin var áberandi hæst í
Grikklandi (31,0%) en næst á eftir komu Hol-
land með 26,7% og Danmörk með 25,5%.“ - jh
sKólamál KvenKennarar eru nú að meðaltali 46 ára
Kennarastéttin að eldast
og karlkennurum fækkar
Konur í kennslu eru nú að meðaltali rúmlega 46 ára og hefur meðalaldur þeirra aukist um
tæplega fjögur ár frá því fyrir aldamót. Kennurum hefur lítið fjölgað á tímabilinu en tæplega
fjórfalt fleiri þroskaþjálfarar starfa nú við skólana. Karlkennurum hefur fækkað og eru nú
fjórðungur af starfsfólki við kennslu. Nemendum með erlent ríkisfang fjölgar jafnt og þétt.
Frá haustinu 2006 hefur nemendum með erlent ríkisfang fjölgað um 518 og voru 1.498 talsins haustið 2013 og voru orðnir 3,5%
nemenda haustið 2013. Fjölmennastir voru nemendur með pólskt ríkisfang (811) og nemendur frá Litháen (137).
Körlum hefur
farið hægt
fækkandi
meðal kenn-
ara og haustið
2013 störfuðu
908 karlar við
kennslu, 19,0%
kennara.
6 fréttir Helgin 17.-21. apríl 2014