Fréttatíminn - 17.04.2014, Page 10
Sverrir Örn Þorvalds-
son, framkvæmdastjóri
áhættustýringar Íslands-
banka. Ljósmynd/Íslandsbanki
Dagur B.
Eggertsson
leiðir lista
Samfylk-
ingarinnar í
Reykjavík en
flokkurinn
mælist
stærstur í
höfuðborg-
inni í
Þjóð-
ar-
púlsi
Gal-
lup.
Ljós-
mynd/
Hari
Nýstárlegt og glæsilegt útlitið kemur á óvart, en þú verður fyrst verulega hissa þegar þú kemur inn í bílinn og finnur hversu rúmgóður hann er.
Fóta- og höfuðrýmið í þessum fyrsta hlaðbaki sinnar tegundar frá Škoda er nefnilega það mesta sem fyrirfinnst í þessum stærðarflokki bíla.
Skyggða sóllúgan, sem hægt er að fá sem aukabúnað, og stór afturrúðan auka svo enn frekar á frelsistilfinninguna. Þegar við þetta bætast
allar góðkunnu „Simply Clever“ lausnirnar frá Škoda er útkoman bíll sem á engan sinn líka. Sestu inn og njóttu þess að láta fara vel um þig.
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · www.skoda.is
5 stjörnur í árekstrar-
prófunum EuroNcap
Eyðsla frá 4,4 l/100 km CO2 frá 114 g/km
114g
4
,4
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback kostar aðeins frá:
3.080.000,-
m.v. ŠKODA Rapid Spaceback 1.2TSI, 86 hestöfl, beinskiptur.
SIMPLY CLEVER
UPPLIFÐU
RÝMI
Íslandsbanki Áhættuskýrsla komin út Í fjórða sinn
Gæði útlánasafnsins aukast
Lausafjárstaða
hefur hækkað
og endurfjár-
mögnunarþörf er
hófleg á næstu
árum.
Í slandsbanki hefur nú gefið út Áhættuskýrslu í fjórða sinn. Í henni má sjá, að því er fram kemur í til-
kynningu bankans, að gæði útlánasafns-
ins halda áfram að aukast. Vanskilahlut-
föll lækkuðu umtalsvert á árinu en ekki
er gert ráð fyrir að þau lækki með sama
hraða áfram. Skýrslan veitir markaðsað-
ilum upplýsingar sem auka skilning á
áhættustýringu bankans og eiginfjár-
stöðu hans. Þar kemur fram, segir enn
fremur, að eiginfjárstaða Íslandsbanka
sé sterk, eiginfjárhlutfall er 28,4%.
„Íslandsbanki er vel í stakk búinn að
takast á við breytingar á ytra regluverki
en það er áhyggjuefni að regluverkið
verður sífellt flóknara og tæknilegra.
Vegna smæðar Íslands reynir mjög á
bæði eftirlitsaðila og fjármálafyrirtæki
við innleiðingu á stöðlum sem eiga að
vera sambærilegir á milli landa,“ segir
bankinn.
Eftir fjárhagslega endurskipulagningu
undanfarinna ára hafa fáir viðskiptavinir
þurft á frekari úrræðum að halda „sem
gefur til kynna að framkvæmd og úr-
vinnsla endurskipulagningar hafi verið
gagnger og vel undirbúin.“ Uppsafnaðar
afskriftir, eftirgjafir og leiðréttingar til
einstaklinga nema nú um 120 milljörðum
króna, þar af 16 milljarðar króna á árinu
2013. Til viðbótar kemur skuldaleiðrétt-
ing ríkisstjórnarinnar sem er áætlað að
verði 10 til 15 milljarðar hjá bankanum.
„Lausafjárstaða bankans hefur hækk-
að á árinu og uppfyllir bankinn alþjóð-
legar lausafjárkröfur sem Seðlabanki
Íslands ráðgerir að innleiða í þrepum
til ársins 2017. Endurfjármögnunarþörf
bankans er mjög hófleg á næstu árum.
Eftir velheppnaða erlenda skuldabréfaút-
gáfu á árinu 2013 hafa lánskjör bankans í
erlendum myntum haldið áfram að batna
það sem af er ári.
„Íslandsbanki vinnur stöðugt að því
að bæta innviði sína við stýringu áhættu
og mat á eiginfjárþörf, og veitir þessi
skýrsla innsýn í fjölmarga þætti í áhættu-
mynstri og áhættustýringu bankans,“
segir Sverrir Örn Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri áhættustýringar.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
kosningar Þjóðarpúls gallup
Samfylkingin mælist
stærst í Reykjavík
Fengi fimm borgarfulltrúa en Sjálfstæðisflokkurinn og Björt
framtíð fjóra hvor flokkur.
Samfylkingin mælist stærst í nýrri könnun Þjóðarpúls
Gallup um fylgi flokka ef kosið yrði til borgarstjórnar
Reykjavíkur í dag. Helstu breytingar á fylgi flokka í
borginni frá síðustu könnun eru þær að Samfylkingin
bætir við sig fjórum prósentustigum. Sjálfstæðisflokkur-
inn og Björt framtíð bæta við sig tveimur prósentustig-
um hvor flokkur. Píratar og Vinstrihreyfingin - grænt
framboð tapa þremur prósentustigum hvor flokkur.
Tæplega 28 prósent segjast myndu kjósa Samfylk-
inguna, ríflega 25 prósent Sjálfstæðisflokkinn og rúm-
lega 24 prósent Bjarta framtíð. Ríflega 10 prósent myndu
kjósa Pírata, tæplega 7 prósent VG, 3 prósent
Framsóknarflokkinn og tæplega 3 prósent
Dögun.
Rúmlega 13 prósent tóku ekki afstöðu
eða neituðu að gefa hana upp. Ríflega 9
prósent segjast myndu skila auðu eða ekki
kjósa.
Ef borgarfulltrúum er skipt milli flokka út
frá niðurstöðum könnunarinnar fengi Sam-
fylkingin fimm fulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn
og Björt framtíð fjóra hvor flokkur og
Píratar og VG sinn borgarfulltrúann
hvor.
Netkönnun Capacent Gallup
var gerð 19. mars til 10. apríl.
Heildarúrtaksstærð var 2.144
Reykvíkingar 18 ára og eldri
valdir af handahófi úr Viðhorfa-
hópi Capacent Gallup. Þátt-
tökuhlutfall var 60,1 prósent.
Vikmörk eru 1,0-2,8 prósent.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
10 fréttir Helgin 17.-21. apríl 2014