Fréttatíminn - 17.04.2014, Page 14
Vikan í tölum
850 milljónum verja Íslendingar í mat og drykk fyrir páskana, samkvæmt nýjum tölum frá Rann-sóknarsetri verslunarinnar.
Foreldrar sem komnir eru að þolmörkum
Fimm ára rifrildi systkina
É g á tvö börn sem rífast stöðugt. Þau eru nýorðin sex og átta ára og hafa rifist frá því þau höfðu vit til.
Sem er um það bil fimm ár. Fimm ár af
rifrildi er dálítið langur tími. Og nú hef
ég fengið nóg.
Ég hef þraukað til þessa með
því að hugga mig við að þetta
hljóti að fara að lagast. Fyrst
notaði ég sem afsökun að eldra
barnið var á „Terrible Twos“
tímabilinu og þegar því var lokið
var yngra barnið komið á sama
aldursskeið. Þegar þau voru
þriggja og fimm fór ég að vonast
eftir því að þetta hlyti nú að fara
að lagast. Það rættist ekki og
ákvað ég þá að þrauka þangað til
eldra barnið væri komið í skóla.
Þá yrði nú svo mikið þrosk-
astökk. Það varð ekki raunin. Og
enn rífast þau.
Þau rífast um það hver fái að
liggja lengur í fanginu mínu á morgnana
(þótt ég segi þeim á hverjum degi að
faðmur minn sé svo stór að það sé vel
pláss fyrir tvö börn). Þau rífast um hvoru
þeirra við skutlum á undan í skólann (þó
svo að við höfum þá reglu að við skipt-
umst á). Þeim finnst óendanlega ósann-
gjarnt ef systkinið er veikt og fær að hafa
„kósídag“ með mömmu eða pabba (þótt
hitt systkinið sé jafnvel ælandi í fötu).
Þau þræta, pirra hvort annað, pota í hvort
annað og eru almennt óþolandi hvort við
annað.
Þau rífast um efnislega hluti („ég
ætlaði að lita með appelsínugula litnum
en þú ert alltaf með hann“) sem óáþreif-
anlega („Mamma hlær meira að hans
bröndurunum en mínum!“). Í rauninni
allt sem hægt er að rífast um – og líka allt
hitt. Ósjaldan verður leikfang að ásteyt-
ingarsteini bara fyrir það eitt að annað
barnið er að leika sér með það og hitt
barnið vill það þá endilega líka. Þó svo að
hvorugt hafi sýnt dótinu áhuga í margar
vikur fram að því.
Þegar þau voru minni var ástandið
svo alvarlegt að ég þorði ekki að skilja
þau eftir ein tvö saman í herbergi. Ég
var hrædd um að þau myndu hreinlega
slasa hvort annað í hugsunarleysi í miðju
rifrildi. Þau eru sem betur fer komin
með aukinn þroska – að minnsta kosti að
því marki að ég veit að þau myndu ekki
meiða hvort annað.
Við erum búin að reyna ýmislegt.
Ég passa mig á því að kaupa ekki alltaf
handa báðum ef annað vantar eitthvað
(til dæmis sokka) því þannig tel ég mig
vera að kenna þeim að ég kem fram við
þau af sanngirni og uppfylli þarfir þeirra
þótt þær þeirra séu stundum misjafnar.
Ég reyni að útskýra fyrir þeim að „jafnt“
þýðir ekki það sama og „alveg nákvæm-
lega eins“. Það finnst þeim erfitt að skilja.
Eldra barnið fékk nýlega ADHD grein-
ingu og ég er að vona að það veiti okkur
foreldrunum einhverja innsýn inn í það
hvers vegna þeim semur svona illa. Yngra
barnið er svo sem með auðveldara skap-
ferli en hefur þurft að glíma við veikindi
og spítalavistir og kemst þar af leiðandi
ef til vill upp með meira en eldri systkini
þess. Reynslan sýnir að foreldrar verða
oft eftirgefanlegri við börn sem glímt
hafa verið við veikindi og þurft hafa að
dveljast á spítala. Sú staðreynd spilar að
sjálfsögðu inn í samband systkinanna og
átökin þeirra á milli.
Hvað sem öllu líður er komið að
þolmörkum hjá okkur foreldrunum. Nú
þurfum við tæki og tól til að aðstoða
okkur við að hjálpa börnunum okkar við
að semja betur við hvort annað. Öll ráð
eru vel þegin.
Sigríður
Dögg
auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Hvað sem öllu líður er komið að þolmörkum hjá okkur foreldrunum.
Nú þurfum við tæki og tól til að aðstoða okkur við að hjálpa börnunum
okkar við að semja betur við hvort annað. Öll ráð eru vel þegin.
Minja er gjafavöruverslun með áherslu á íslenska og erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
Skafkorti›
Þú skefur gylltu
himnuna af þeim
löndum sem þú
hefur heimsótt og
útbýrð þannig
persónulegt
heimskort.
82 X 58 cm • Kr. 2.990
16
af hverjum 100 börnum á Íslandi eiga
á hættu að búa við fátækt, samkvæmt
nýrri skýrslu frá Barna-
heillum.
243
milljónum verja Ís-
lendingar í áfengi fyrir
páskana.
390
námsmenn fá sumarstörf hjá ríki og
sveitarfélögum í sumar fyrir tilstuðlan
átaksverkefnis Vinnumálastofnunar.
64
af hverjum 100
börnum á Íslandi
eru skráð með
heimilistann-
lækni.
75
ofbeldisbrot voru tilkynnt til lögreglu
í mars og fækkaði milli mánaða, sam-
kvæmt tölum frá lögreglustjóranum á
höfuðborgarsvæðinu.
23
heiðlóur sáust
í Flóanum við
Höfn í Hornafirði í
vikunni. Þar voru
einnig um 140
jaðrakanar.
70 milljón
plastpokum er hent á Íslandi á hverju
ári. Þeir geta verið allt að þúsund ár að
brotna niður í náttúrunni.
15000
fermetra hús er leyfilegt að byggja
á reitnum sem Landsbankinn hefur
fengið undir nýjar höfuðstöðvar við
Hörpu.
14 viðhorf Helgin 17.-21. apríl 2014