Fréttatíminn - 17.04.2014, Side 26
„Svona ráðstefnur eru ekki bara
nauðsynlegar heldur algjört
grundvallaratriði til að konur
átti sig á mikilvægi þess að taka
þátt. Ég held að við höfum haldið
okkur til hlés og fundist við geta
gert aðra hluti betur,“ segir Guðný
Reimarsdóttir, framkvæmdastjóri
EcoNord, sem er íslenskt fjöl-
skyldufyrirtæki en staðsett í Bret-
landi og sérhæfir sig í hönnun og
framleiðslu á umhverfisvænum
tæknilausnum fyrir sorpiðnaðinn.
Spennandi lausnir fyrir fram-
tíðina
Guðný segir það mjög mikilvægt
að skoða hvernig við hugsum
hugtakið tækni og hvernig við
kynnum það. „Þegar við konur
hugsum um orðið tækni þá höfðar
það ekki jafnt sterkt til okkar og til
strákanna, okkur langar kannski
ekki jafn mikið og þá til að vera að
grúska í einhverjum tólum og tækj-
um. En þess vegna þurfum við að
útvíkka hugtakið því það nær yfir
svo miklu meira. Ímyndin af tækni
þegar hún er kynnt í sjónvarpi og
fjölmiðlum virðist oft frekar flókin
og fráhrindandi en oft snýst þetta
um að nýta tæknina sem þegar er
til og setja hana í nýtt samhengi.
Þetta snýst ekkert endilega um að
finna upp eitthvað svakalega flókið
heldur um að skilja tæknina og
finna henni nýjan farveg.“ Guðný
tekur starfsemi EcoNord sem hún
segir ekkert endilega snúast um
að finna upp hjólið heldur að finna
hugvitsamlegar lausnir, en Eco-
Nord hefur síðastliðin 5 ár einbeitt
sér að því að koma á markaðinn
með umhverfisvænar tæknilausnir
en ein þeirra hefur verið að mark-
aðssetja raflyftur fyrir ruslabíla.
„Rafmagnslyftur hafa verið til
í ýmsu formi en við hönnuðum
raflyftur sem nýta batteríið á rusla-
bílnum og það gerir það að verkum
að lyftan notar ekki eldsneyti til
að keyra vélina til að lyfta ruslinu í
bílinn. Þar af leiðandi er ekki verið
að þenja vélina á meðan með til-
Konurnar
mega ekki
missa af
lestinni
Konur í tækni er átaksverkefni sem starfsmenn GreenQloud fóru af stað með haustið 2013, en
GreenQloud er fyrsta umhverfisvæna tölvuský heims og vinnur frumkvöðlastarf innan upplýs-
ingaiðnaðarins í upptöku umhverfisvænnar orku. Markmið átaksverkefnisins er að hvetja ungar
stúlkur til að sækja sér starfsferil í tækni, ýta undir starfsframa kvenna í tækni og myndun
tengslaneta. Forsvarskonur átaksins, þær Armina Ilea, Auður Alfa Ólafsdóttir og Paula Gould,
héldu í vikunni málþing um málefni sem stendur þeim nærri, sjálfbærni í upplýsingaiðnaði, þar
sem Guðný Reimarsdóttir, framkvæmdastjóri EcoNord, hélt erindi.
Guðný Reimars-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
EcoNord, segir
konur þurfa að átta
sig á því hversu
mörg tækifæri
felist í tækninni,
hún sé verkfæri til
að skapa nýjar og
spennandi lausnir.
Á síðustu fimm árum hafa
aðeins 13 prósent út-
skrifaðra úr háskólanámi
í tölvunarfræði á Íslandi
verið konur. Margir telja
þetta vera áhyggjuefni
þar sem tæknin er sí-
stækkandi hluti af okkar
daglega lífi og því ættu
konur að taka þátt í
hönnun búnaðarins sem
henni fylgir. Fagfólk
innan tölvugeirans segir
starfsumhverfið fjöl-
skylduvænna en í mörgum
öðrum og þar að auki
séu konur mjög
eftirsóttir starfs-
kraftar innan
stéttarinnar.
Skortur á konum í tækni
www.siggaogtimo.is
Verð kr 7.500,- stk
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4
26 fréttaskýring Helgin 17.-21. apríl 2014