Fréttatíminn - 17.04.2014, Qupperneq 28
Á hverjum morgni áður en Hermann Helenuson fer fram úr rúminu,
virðir hann fyrir sér myndir
af fyrirmyndunum sínum sem
hann hefur límt við höfða-
lagið. Þar er mynd af Helenu,
mömmu hans, Einari Mikael
töframanni og hollenska
töframanninum Hans Clok,
ásamt þátttökunúmeri Her-
manns úr keppninni Ísland
Got Talent á Stöð 2. Hann
komst áfram í undanúrslit og
síðasta sunnudag sýndi hann
magnað töfraatriði þar sem
hann sagaði í sundur yngri
systur sína, Lovísu. Hermann
komst ekki áfram í útslitin en
er sáttur við sitt enda tókst
þetta spennuþrungna atriði
fullkomlega. „Ég skilaði mínu
og er mjög þakklátur,“ segir
hann hógvær.
Engar venjulegar dúfur
Það er ekki bara Hermann
heldur tvö önnur glaðleg
og kurteis ungmenni sem
taka á móti mér í Engihjall-
anum daginn eftir
að keppni lauk,
Lovísa yngri
systir hans
sem er 11
ára, og
Karen
eldri
systir hans sem
er alveg að verða 18. Leiðin
liggur fljótt inn í svefnher-
bergi Hermanns þar sem
dúfurnar hans tvær búa,
hjónin Lovísa og Gauti. Þetta
eru samt engar venjulegar
dúfur heldur töfradúfur.
„Ég þjálfa þær tvisvar á dag,
á morgnana og svo aftur
eftir kvöldmat,“ segir hann.
Dúfurnar fékk hann hjá
átrúnaðargoðinu sínu, Einari
Mikael, sem kemur gjarnan
fram á sínum töfrasýningum
með dúfur. Þessir fallegu
fuglar eru ekki aðeins tákn
um frið og kærleika heldur
eru dúfurnar einnig miklir
gleðigjafar og löngu orðnar
hluti af fjölskyldunni. Þar
sem dúfur eru kannski ekki
hefðbundin gæludýr spyr
ég hvernig það sé eiginlega
að búa með dúfum. Karen
svarar hreinskilnislega: „Það
er geðveikt mikið vesen,“ og
systkinin hlæja öll. „Maður
ætlar kannski að sofa út en
þá heyrir maður bara í dúf-
unum í næsta herbergi,“ segir
hún. Dúfurnar fara að sofa á
svipuðum tíma og mennskur
hluti fjölskyldunnar en þó
breitt sé yfir búrið þeirra á
nóttunni vakna þær hressar
eldsnemma á morgnana.
„Þær vakna alltaf klukkan
sjö núll sjö. Þetta er bara
rútína hjá þeim. Þær skynja
allt og eru mjög næmar.
Þær eru mjög góðar
vekjaraklukkur en
það er samt ekki
hægt að „snooza“ þær,“ segir
Lovísa.
Heillaður af Einari Mikael
Áhugi Hermanns á töfra-
brögðum kviknaði fyrir
alvöru fyrir þremur árum
þegar hann sá Einar Mikael
sýna listir sínar á sýningu.
„Ég varð bara alveg heillaður.
Mér fannst það sem hann var
að gera ótrúlega flott, mig
langaði til að læra þetta líka
og ég bara hef ekki stoppað
síðan. Það er svo gaman að
koma fólki á óvart og gleðja
það,“ segir Hermann. Hann
og vinur hans settu sig fljótt
í samband við Einar Mikael
sem tók vel í að leiðbeina
þeim með töfrabrögðin, en
hann hefur haldið galdranám-
skeið fyrir þúsundir barna,
og hafa þeir verið í góðu sam-
bandi síðan. Þegar byrjað var
að auglýsa eftir þátttakendum
í keppnina Ísland Got
Talent var Her-
mann stað-
ráðinn í
að taka
þátt
en 10
millj-
ónir
eru í
boði
fyrir
sig-
uratriði keppninnar. „Ég vildi
taka þátt til að hjálpa systur
minni,“ segir Hermann en
kostnaður vegna aðgerðar
sem hún þarf að fara í vegna
hryggskekkju nemur allt að
níu milljónum króna.
Karen var greind fyrir
fjórum árum, þá þrettán
ára gömul. „Læknirinn sem
greindi mig sagði að þetta
ætti ekki eftir að versna því
ég ætti ekki eftir að stækka
neitt. Ég er hins vegar búin
að stækka um 10 sentimetra
síðan,“ segir hún. Þegar
ljóst var að grípa þurfti inn í
fékk hún sérsmíðaða spelku
um búkinn sem hún þurfti
að vera með nótt sem dag.
„Ég var með hana 22 tíma á
sólarhring, svaf með hana
og var í henni í skólanum.
Þetta var mjög erfitt en ég var
ekkert að segja neinum frá
þessu fyrr en nýlega,“ segir
Skemmtilegast að saga fólk í sundur
Hermann
Helenuson hefur
vakið athygli
fyrir stórkostleg
töfrabrögð í hæfi-
leikakeppninni
Ísland Got Talent
en hann ákvað
upphaflega að
taka þátt til að
safna peningum
fyrir systur sína
sem er með
hryggskekkju.
Helstu fyrirmyndir
hans í lífinu eru
mamma hans og
töframaðurinn
Einar Mikael
sem hefur kennt
honum margt.
Hermann á tvær
litlar töfradúfur
sem hann þjálfar
daglega en
markmið hans er
að safna fyrir
aðgerð systur
sinnar með
því að sýna
töfrabrögð.
Framhald á næstu opnu
28 viðtal Helgin 17.-21. apríl 2014