Fréttatíminn - 17.04.2014, Síða 30
Oft eru það litlir
krakkar sem þekkja
mig og vinka. Það
er skemmtilegt
hvað maður hefur
glatt marga.
TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA
MEÐ MBA-NÁMI HÁSKÓLA ÍSLANDS
MBA
KATRÍN M. GUÐJÓNSDÓTTIR
MARKAÐSSTJÓRI INNNES
MBA 2015
MARGRÉT HAUKSDÓTTIR
FORSTJÓRI ÞJÓÐSKRÁR ÍSLANDS
MBA 2010
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
41
11
5
Kynningarfundur um námið fer fram miðvikudaginn
23. apríl kl. 16:30–17:30 á Háskólatorgi.
Sæktu um á www.mba.is
JÓN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI OLÍS
MBA 2012
Karen en spelkan studdi við
hrygginn og var hún falin
undir fötunum. Hún gekk
með spelkuna í heilt ár en
það hafði engin áhrif til
batnaðar.
Karen er með stöðuga
verki og þegar ég spyr hana
hvort hún sé með verki á
meðan á viðtalinu stendur
kinkar hún kolli. „Ég er
alltaf með verki. Það skiptir
ekki máli hvað ég er að
gera. En ég læt það samt
ekki stoppa mig. Ef ég sit of
lengi fæ ég verki, ef ég ligg
of lengi fæ ég verki. Verkja-
lyf duga ekki til. Þegar
verstu verkirnir koma reyni
ég að leggja mig. Það getur
verið erfitt að sitja lengi í
skólanum því stólarnir þar
eru heldur ekki mjög þægi-
legir, Við sitjum oft samfellt
í 80 mínútur en ég reyni þá
bara að færa mig mikið til í
stólnum,“ segir hún.
Karen var um tíma fjór-
um sinnum í viku í sjúkra-
þjálfun en núna fer hún
aðeins einu sinni í viku, auk
þess sem hún er að athuga
hvort höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferð hefur áhrif.
Hún á sína vini og reynir
að taka þátt í tómstundum
en það er takmörkum háð.
„Vinir mínir skilja alveg ef
við kannski höfum verið
lengi í bíl og mér finnst það
óþægilegt. Stundum vil ég
líka bara fara heim því mér
er illt í bakinu en þeir skilja
það alveg. Ég reyni samt að
kvarta sem minnst,“ segir
hún.
Til stóð að hún færi
í aðgerð hér á landi en
þegar það gekk ekki upp
var gengið í að finna lækni
erlendis og er nú læknir í
Svíþjóð sem er tilbúin að
gera aðgerðina á Karen
en fjölskyldan þarf sjálf að
borga. „Aðgerðin sjálf er
ekki það dýrasta heldur
er það endurhæfingin og
tíminn sem ég þarf að vera
á sjúkrahúsinu eftir aðgerð,
og svo auðvitað ferðakostn-
aðurinn,“ segir hún.
Horfir einbeittur á
markmiðin
Eftir að Hermann fékk þá
hugmynd að taka þátt í
hæfileikakeppninni til að
reyna að vinna milljónirnar
tíu hafði hann samband við
Einar Mikael og bað hann
að hjálpa sér að útfæra flott
töfrabrögð. „Við lögðum
upp með að það væri engin
endalok þó við myndum
ekki vinna heldur skipti
málið að taka þátt, leggja
mitt af mörkum og vekja
athygli á stöðu Karenar,“
segir Hermann.
Hann hefur síðustu
mánuði fengið gríðarlega
þjálfun hjá Einari Mikael
sem hefur deilt með honum
mörgum af sínum dýpstu
leyndarmálum töfranna,
auk þess sem hann kenndi
honum að sjá fyrir sér
markmið sín. Þess vegna
er Hermann líka með
markmið sín og hugsjónir
skrifaðar fyrir ofan rúmið,
við hlið myndanna af
fyrirmyndum sínum. „Einar
Mikael er með svona lista
yfir sín markmið og hann
spurði hvort ég vildi aðstoð
við að gera svona sjálfur,“
segir Hermann.
Á listanum eru einnig
jákvæðar staðhæfingar á
borð við: Ég er fæddur til
að gera ótrúlega hluti. Ég
er framúrskarandi. Ég ætla
að vera góður við mömmu
mína og hjálpa henni. Ég
mun gera allt sem ég get
til að hjálpa Karen. „Ég les
þetta á hverjum einasta
morgni þegar ég vakna,
áður en ég fer á fætur. Þetta
hjálpar mér að sjá fyrir mér
markmið mín. Þegar ég
hugsa sífellt um að ég ætli
að standa mig betur þá sé
ég það fyrir mér og nálgast
þannig takmarkið. Þetta
gerir draumana raunveru-
legri,“ segir Hermann.
Listann setti hann upp
þegar hann byrjaði að æfa
sig fyrir Ísland Got Talent
og er eitt atriðið á listanum:
„Vera með ógleymanlegt
atriði í Ísland Got Talent,“
sem sannarlega tókst, auk
þess sem þarna eru verald-
legri markmið á borð við að
borða minna nammi.
Á æfingatímabilinu hefur
Hermann sýnt við fjölda
tilefna og hefur hann lagt
allan ágóða af sýningunum
inn á söfnunarreikning
fyrir Karen. „Ég er búinn
að koma fram á árshátíðum
í skólum og barnaafmæl-
um. Svo var ég að sýna á
bekkjarkvöldi í Hörðuvalla-
skóla og eftir sýninguna
kom í ljós að allir höfðu lagt
fram aukalega 500 krónur
í söfnunina þannig að ég
fékk þar 33 þúsund krónur,“
segir Hermann sem einn og
óstuddur hefur safnað um
200 þúsund krónum með
því að sýna töfrabrögð.
Söfnunarsýning í
Salnum
Sýnileiki söfnunarinnar
hefur orðið til þess að fólk
Á veggnum fyrir ofan rúmið hans Her-
manns blasa við myndir af fyrirmyndum
hans auk jákvæðra staðhæfinga og
markmiða sem hann les upp á hverjum
morgni.
Karen var með spelkuna í 22 tíma á dag í eitt ár án þess að það bæri árangur.
Systkinin Lovísa, Karen og Hermann.
Ljósmynd/Hari
30 viðtal Helgin 17.-21. apríl 2014