Fréttatíminn - 17.04.2014, Page 34
34 ferðalög Helgin 17.-21. apríl 2014
Ferjusigling risaFerjur sem nánast má kalla skemmtiFerðaskip
Þ au eru á mörkum þess að geta kall-ast skemmtiferðaskip, fleyin sem sigla daglega út úr höfnunum í
miðborgum Helsinki og Stokkhólms
á leið í nætursiglingu yfir Helsingbotn.
Seinnipartinn eru festar losaðar og kom-
ið til hafnar hinum megin klukkan tíu að
morgni. Áður en farþegarnir leggjast til
hvílu í káetunum geta þeir gefið sér góðan
tíma í að fá sér að borða, kíkt í fríhöfnina
og fylgst með skemmtiatriðum. Einnig er
hægt að taka því sérstaklega rólega og
liggja í heitum potti á útstíminu eða dást
að skerjagarði Stokkhólms milli sauna-
ferða. Þetta vita heimamenn og Svíar og
Finnar eru því í miklum meirihluta um
borð og aldursbilið er breitt. Afþreyingin
um borð er nokkuð fjölbreytt og matseðlar
veitingastaðanna eiga að ná til allra.
Fljótandi fríhöfn
Það eru margir sem fara þessa leið og
skipin stór. Til dæmis er Silja Serenade,
stærsta skip Tallink Silja Line, tólf hæða
hátt og þar er pláss fyrir nærri þrjú þúsund
farþega. Það eru því nokkrir veitingastaðir
um borð, barir, kaffihús, krakkaklúbbur
heilsurækt, skemmtistaðir og spilavíti. En
mest fer þó fyrir fríhöfninni enda kemur
helmingur tekna skipafyrirtækjanna frá
sölu á tollfrjálsum varningi. Úrvalið af
snyrtivörum, víni, sælgæti og alls kyns
varningi gríðarlegt og margir sem ganga
frá borði með mun meiri farangur en kom-
ið var með daginn áður.
Ódýrara en flug og hótel
Þeir sem vilja gera höfuðborgum Finn-
lands og Svíþjóðar skil í einni utanlands-
ferð borga að lágmarki tæpar tíu þúsund
krónur fyrir flugmiða á milli. Tveggja
manna káeta með baði hjá Tallink Silja
Line kostar til að mynda álíka mikið og
rúmar allt að fjóra farþega. Verðsaman-
burðurinn er því skipunum í vil þó munur-
inn minnki ef bókuð er káeta með útsýni út
á haf eða meiri munaði. Maturinn um borð
kostar hins vegar meira en greiða þarf á
sambærilegum stöðum á landi. Á móti
kemur að þeir sem fara sjóleiðina spara
sér eina nótt á hóteli.
Það er flogið daglega frá Keflavík til
Stokkhólms og álíka oft til Helsinki. Það er
því lítið mál fyrir íslenska túrista að fljúga
til annarrar borgarinnar og heim frá hinni
og það er næsta víst að sigling á milli höf-
uðborganna tveggja er eftirminnilegri en
klukkutíma flugferð.
Þægilegt að fara lengri leiðina
milli Stokkhólms og Helsinki
Silja Serenade siglir daglega milli höfuðborga Svíþjóðar og Finnlands með viðkomu í Maríuhöfn á Álandseyjum. Um borð er
pláss fyrir nærri þrjú þúsund farþega.
Það tekur innan við klukkutíma að fljúga milli höfuðborga Finnlands og Svíþjóðar en nærri
tuttugu tíma að sigla. Seinni kosturinn getur þó verið betri og um leið skemmtileg tilbreyting frá
amstrinu sem oft fylgir fluginu.
Kristján heldur úti ferðavefnum Túristi.is
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Veitingastaðurinn Tavolata er
nýjasti veitingastaðurinn um
borð í Silja Seranade.
Það er ekki oft sem
gefst tækifæri til að
ferðast um, sitjandi í
heitum potti. En það
er hægt ef farið er sjó-
leiðina milli Helsinki
og Stokkhólms. Ljós-
myndir/Tallink Silja Line
LAGERSALAN | KAUPTÚNI 3 - GARÐABÆ (GEGNT IKEA) | SÍMI 861 7541
NÝJAR VÖRUR
Á FRÁBÆRU VERÐI
OPIÐ Á SKÍRdAG KL. 13-18
OG LAUGARdAG KL. 11-18
LOKAÐ AÐRA dAGA yFIR PÁSKANA
SKRIFBORÐ
29.900 KR.
TUNGUSÓFI VERÐ
59.900 KR.
BÓKAHILLA VERÐ
24.900 KR.
SKRIFBORÐSSTÓLL VERÐ
7.900 KR.
BORÐ OG 4 STÓLAR
29.900 KR.
BORÐSTOFUSTÓLL VERÐ
8.900 KR.
STANdLAMPI VERÐ
29.900 KR.
SVEFNSÓFI VERÐ
19.900 KR.
Markaðstorg á netinu
Vertu með, við erum að búa
til ööugt markaðstorg
á netinu
Notað og nýtt