Fréttatíminn - 17.04.2014, Blaðsíða 40
40 páskamatur Helgin 17.-21. apríl 2014
K Y N N I N G
120 g smjör
400 g sykur
4 egg
2 tsk vanilludropar
80 g dökkt kakó
120 g hveiti
½ tsk salt
½ tsk lyftiduft
2 msk Tabasco sósa
200 g Ültje salthnetur
og meira til skrauts
Aðferð
Bræðið smjörið í potti,
blandið sykri, eggjum
og vanilludropum
saman við og hrærið
vel. Blandið hveiti,
kakói, salti og lyftidufti
saman í skál og bland-
ið saman við með sleif.
Setjið því næst 2 msk
Tabascosósu og 200
g saxaðar salthnetur
saman við og hrærið
vel. Setjið bökunar-
pappír í meðalstórt
bökunarmót og bakið
við 180 gráðu hita í
25 mínútur eða þar til
tannstöngull kemur
nokkuð hreinn upp
úr miðju kökunnar.
Mikilvægt er þó að
baka kökuna ekki of
mikið því hún á að vera
örlítið blaut í sér.
Súkkulaði-
glaSSúr
200 g súkkulaði
2 msk síróp
2 msk rjómi
1 tsk vanilludropar
Aðferð
Setjið súkkulaði, síróp,
rjóma og vanilludropa
saman í pott yfir með-
alháan hita og hrærið
þar til súkkulaðið hefur
náð að bráðna alveg.
Hellið súkkulaðiglass-
úrinu yfir kökuna og
skreytið með söxuðum
salthnetum.
Marengskakan er alger bomba
Thelma Þorbergsdóttir hef-
ur síðustu tvö árin haldið
úti bloggsíðunni Freistingar
Thelmu þar sem finna má
girnilegar kökuuppskriftir
og sitthvað fleira matar-
kyns. Thelma leggur hér til
nokkrar nokkrar gómsætar
uppskriftir sem tilvalið er
að prófa í veislunum um
páskana.
É g hef alltaf verið að baka en það hefur auk-ist eftir að ég eignaðist krakkana mína og fór
að halda barnaafmæli. Það þarf
að vera metnaður í þessu!“ segir
Thelma Þorbergsdóttir. Hún
bloggar um kökubakstur og mat
á freistingarthelmu.blogspot.
com og hefur gert í bráðum tvö
ár.
Færðu mikil viðbrögð við skrifum
þínum?
„Já. Það er ótrúlega fyndið
hversu mikil breyting hefur
orðið á. Fólk hefur svo mikinn
áhuga á matarbloggum, að finna
matseðla og prófa eitthvað nýtt.“
Thelma bloggar bæði um mat og
kökugerð en segist þó aðallega
„vera í sætindunum“, eins og hún
orðar það. Auk skrifanna hefur
hún haldið námskeið í bollaköku-
gerð og köku skreytingum. „Ég
hef til dæmis fengið gæsahópa til
mín. Ég hef mjög gaman af nám-
25-30 stk.
150 g smjör
330 g hveiti
½ tsk maldon salt
2 tsk lyftiduft
200 g sykur
200 g dökkur
púðursykur
4 egg við stofuhita
2 tsk vanilludropar
3,5 ml mjólk
Aðferð
Bræðið smjörið í potti
við meðalháan hita
þar til smjörið hefur
bráðnað alveg, hækkið
hitann örlítið og hrærið
þar til smjörið verður
dökkbrúnt að lit. látið
smjörið kólna. Blandið
hveiti, salti, lyftidufti,
sykri og púðursykri
saman við og hrærið
saman. Setjið því næst
eggin, mjólkina og
vanilludropana í skál
og hrærið vel, bætið
smjörinu saman og
hellið blöndunni varlega
saman við hveitiblönd-
una. Hrærið vel þar til
deigið er orðið slétt og
fínt. raðið bollaköku-
formum í bökunarform
og sprautið deiginu
í þau. Passið að fylla
þau ekki meira en 2/3
eða rúmlega 2 msk í
hvert form. Bakið við
180 gráðu hita í 15-18
mínútur eða þar til tann-
stöngull kemur hreinn
upp úr miðju kök-
unnar. kælið kökurnar
alveg áður en þið setjið
kremið á þær.
DrauMkennT
DuMle kara-
MellukreM
150 g Dumle kara-
mellur
4 msk rjómi
2 msk síróp
250 g smjör við
stofuhita
500 g f lórsykur
2 msk vanilludropar
Aðferð
Setjið Dumle karamell-
urnar í pott ásamt rjóm-
anum og sírópinu og
bræðið yfir meðalháum
hita. Hrærið stanslaust
þar til karamellurnar
hafa náð að bráðna
alveg og kælið. Hrærið
smjörið þar til það er
orðið ljóst og létt, bætið
flórsykrinum saman við
smá og smá í einu og
hrærið vel á milli. Setjið
vanilludropa saman
við ásamt mjólkinni og
hrærið vel. Blandið því
næst bræddu karamell-
unni saman við kremið
og hrærið þar til allt
hefur blandast vel
saman. Setjið kremið
í sprautupoka með
sprautustút að eigin
vali, (ég nota 1M frá
wilton) og sprautið
kreminu á hverja köku
fyrir sig. Setjið kökurnar
inn í ísskáp á meðan
þið undirbúið Dumle
karamellugljáann.
DuMle kara-
Mellugljái
90 g Dumle karamellur
4 msk rjómi
2 msk síróp
Aðferð
Setjið allt saman í
pott og bræðið saman
yfir meðalháum hita,
hrærið stanslaust þar
til karamellurnar hafa
náð að bráðna alveg.
kælið karamellugljáann
þar til hann hefur náð
stofuhita. Setjið 1 msk á
hverja köku. gott er að
geyma kökurnar í kæli
og taka þær út rúmlega
20 mínútum áður en
þær eru bornar fram.
MarengS
6 egg
350 g sykur
200 g Ültje salthnetur
Aðferð
Hrærið eggjahvítur
og sykur saman þar
til blandan verður stíf
og stendur. Blandið
salthnetum saman
við og hrærið varlega
með sleif þar til
þær hafa blandast
vel saman. Setjið
bökunarpappír á
bökunarplötur og
myndið þrjá jafna
hringi. Skiptið
marengsinum í þrjá
jafna hluta og dreifið
úr honum í fallega
hringi. Bakið við 150
gráður í 1 klst eða
þar til marengsinn er
þurr viðkomu.
Tabasco brownie með salt-
hnetum og súkkulaðiglassúr
Brown butter púðursykursbollakökur með
draumkenndu Dumle karamellukremi
Salthnetu-
marengs
með rjóma
og Dumle
karamellu-
kremi
DuMle karaMellu-
kreM
4 eggjarauður
130 g f lórsykur
120 g Dumle karamellur
4 msk Ültje salthnetur
½ lítri þeyttur rjómi
Aðferð
Setjið Dumle karamellur
í pott yfir meðalháan
hita ásamt rjómanum og
hrærið þar til karamell-
urnar hafa bráðnað alveg.
Þeytið eggjarauður og
flórsykur saman þar til
blandan verður ljós og létt.
látið karamellublönduna
ná stofuhita og blandið
henni saman við með sleif
og hrærið þar til allt hefur
blandast vel saman. Setjið
karamellukremið á milli
botnanna og ofan á efsta
botninn ásamt þeytta
rjómanum. Skreytið með
söxuðum salthnetum.
karamellukremið á það til
að leka aðeins niður og út
fyrir en það er bara þannig
eins og það á að vera og
gerir hana enn betri.
skeiðunum, ég er náttúrlega félags-
ráðgjafi svo ég hef mjög gaman af
mannlegum samskiptum.“
Hvað geturðu sagt um þessar upp-
skriftir?
„Marengskakan er alger bomba,
það eru ófáar kalóríur í henni!
Marengsið er alltaf vinsælt um
stórhátíðir. Bollakökurnar þróaði
ég alveg frá grunni og þær eru
ógeðslega djúsí og góðar. Brow-
nie-kökurnar eru mjög spes en
þessi blanda er ótrúlega góð. Það
er eitthvað skrítið við þær en samt
svo gott.“
Thelma segist að lokum njóta
góðrar aðstoðar eiginmanns síns
við kökugerðina og hann hafi
blessað þessar uppskriftir. „Hann
er yfirsmakkari og smakkar allt,
það fer ekkert frá mér án hans
samþykkis. Og hann er kröfu-
harður!“