Fréttatíminn - 17.04.2014, Side 48
Helgin 17.-21. apríl 201448 tíska
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Akureyri Sími 533 2220 www.lindesign.is
7.990 kr 8.990 kr 9.990 kr
3 verð á rúmfötum
Sendum frítt
úr vefverslun
www.lindesign.is
Fermingartilboð
F atahönnuðurinn Jet Corrine rak í nokkur ár verslun í litlum kjallara við Skólavörðu-stíg þar sem hún byrjaði að selja sitt eigið
merki, J E T KORINE. Þar gerði hún allt sjálf,
litaði efnin, sneið þau, skar, saumaði og seldi en í
dag hefur hún fleira fólk í vinnu. Flíkurnar segir
Jet gerðar til að standast tímans tönn en auk þess
eru þær allar úr 100% lífrænu efni. „Merkið mitt er
í raun andstæðan við fjöldaframleiðslu. Mín ósk er
sú að konur kaupi sér vel valda gæðaflík sem kost-
ar kannski það sama og nokkrar fjöldaframleiddar
flíkur en endist mun lengur. Flík sem verður betri
með tímanum í stað þess að skemmast,“ segir Jet.
Línan var í upphafi framleidd í litlu magni en við
Hinn fullkomni fataskápur er lítill
miklar undirtektir og því kom að því að hana langaði til
að stækka en þó án þess að skipta út hugmyndafræðinni
á bak við fötin.
Evrópsk merki í bland við J E T KORINE
„Mig bara langaði til að bæta við úrvalið og fékk umboð
fyrir nokkrum merkjum sem mér fannst passa við mína
fílósofíu. Þá flutti ég á Laugarveg og opnaði G L O R I U,“
segir Jet sem hefur nú rekið verslunina við Laugarveg í
rúmt ár. Ég var mjög glöð að fá umboð fyrir Humanoid,
sem er hollenskt merki sem ég hef lengi verið mjög
hrifin af. Svo er ég með Forte Forte, sem er ítalskt mjög
tímalaust og klassískt merki sem leggur mikla áherslu á
góð efni og snið. Svo bíð ég núna mjög spennt eftir fyrstu
skartgripasendingunni frá Wouters&Hendrix sem er
ótrúlega fallegt merki frá Belgíu með fínum skartgripum
úr ekta gulli og silfri, svona ekta fyrir kærastann til að
gefa við hátíðleg tækifæri,“ segir Jet en bæti því við að
hennar eigið merki sé stór hluti búðarinnar. „Það stend-
ur dáldið fyrir andrúmsloftið í búðinni og tekur alveg sitt
eigið pláss hér. Við erum fljót að sauma inn í línuna ef
eitthvað vantar því hún er framleidd í Reykjavík og í litlu
magni hverju sinni. Svo ég get fengið hugmynd og hún er
komin í búðina kannski í sömu viku.“
Gæði frekar en magn
Jet segir G L O R I U ekki vera þessa týpísku tískuversl-
un sem elti tískustrauma og hún hvetur fólk til að versla
minna, en betur. „Það er mjög mikilvægt fyrir mig að
verslunin bjóði upp á heildarupplifun. Allar vörurnar
eiga að geta gengið saman og það má eiginlega segja að
G L O R I A standi fyrir það sem mér finnst vera hinn full-
komni fataskápur. Fyrir mér er hinn fullkomni fataskáp-
ur lítill en allar flíkurnar endast vel og ganga saman. Mín
fílósófía er að kaupa minna og kaupa betur. Þetta er bara
ákveðinn lífsstíll og einskorðast ekkert bara við flíkur.
Það er auðveldlega hægt að segja það sama um mat, við
eigum að borða minna en miklu betur. Ég hef alltaf haft
áhuga á lífrænum og náttúruvænum lausnum en það
allra besta sem fólk getur gert er að kaupa minna. Þess
vegna er gott að kaupa betur, það er að segja flíkur sem
endast og verða bara fallegri með tímanum.“
Halla Harðardóttir.
halla@frettatiminn.is
Fatahönnuðurinn Jet Corrine
hvetur fólk til að hugsa í nátt-
úruvænum lausnum þegar
kemur að fatavali.
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
borgArApótek, Borgartúni 28 - gArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499
Troðfull búð af
nýjum vörum
Frábært verð
Opið laugardag
11.00-16.00
Gleðilega Páska
Tunika
kr. 5.900
Stærðir 34-56
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur