Fréttatíminn - 17.04.2014, Side 66
Víkingur kristjánsson sá sýninguna ungur með þessum sama leikhópi
Hringurinn lokast með Jörundi
Litli leikklúbburinn á Ísafirði frum-
sýndi í vikunni hið margfræga leikrit
Jónasar Árnasonar „Þið munið hann
Jörund.“ Verkið fjallar um Danann
Jörund hundadagakonung sem gerði
byltingu á Íslandi 1809 og gerðist í
kjölfarið konungur á Íslandi í nokkrar
vikur, og var sungið um hann svo eftir-
minnilega: „Sem kóngur ríkti hann
meður sóma og sann eitt sumar á
landinu bláa.“
Víkingur Kristjánsson leikstýrir
verkinu en með honum er 15 manna
hópur sem leikur, syngur, dansar og
spilar. „Ég er búinn að búa á Suðureyri
í vetur og það voru því hæg heimatökin
hjá stjórn Litla leikklúbbsins að tékka
á mér. Ég ólst sjálfur upp á Ísafirði og
sá á sínum tíma sýningu á þessu sama
verki hjá þessum sama leikklúbbi
þannig að það má segja að nú sé hring-
urinn að lokast,“ segir Víkingur.
Verkið hefur gjarnan verið sett upp
sem söngleikur en í þetta skiptið eru
lögin aðeins fjögur og því meira lagt
upp úr húmornum. „Víkingur lagði
áherslu á að við værum fyndin en lögin
sem við erum með eru alveg frábær,“
segir Sveinbjörn Hjálmarsson, einnig
þekktur sem Simbi í Hafnarbúðinni,
sem fer með hlutverk Jörundar. Vík-
ingur játar því og segir að þó húmor-
inn sé klassískur hafi hann ákveðið á
völdum stöðum að hressa aðeins upp
á hann.
„Þið munið hann Jörund“ er sýnt í
Edinborgarhúsinu, fjórða sýning er
í kvöld, skírdag, en auk þess verða
fjórar sýningar eftir páska.
„Þetta er fjörug uppsetning og við
leyfum okkur alveg að detta aðeins út
úr handritinu,“ segir Víkingur.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Kómíkin er í fyrirrúmi í sýningunni og fer Sveinbjörn Hjálmarsson,
betur þekktur sem Simbi í Hafnarbúðinni, með hlutverk Jörundar.
Saga Garðarsdóttir og Ingólfur
Geir Gissurarson: „Hér má sjá
tvo þreytta fjallagarpa eftir
að hafa villst, klifið upp bratt
skarð, gengið jökul, ratað í bæ í
mjög lélegu skyggni en fyrst og
fremst ekki orðið úti í tíu tíma,“
útskýrir
Saga.
Ferðalög saga garðarsdóttir leikkona stakk aF til að læra meira
Ævintýra-Saga á Everest
Saga Garðarsdóttir segir erfiðara að ganga upp tíu þrep í tehúsi í smábæ Himalaja en að hlaupa
upp að Steini á Esjunni. Hún átti frí í leikhúsinu og ákvað að nýta það og stinga af til að læra
meira um heiminn og sjálfa sig.
s aga Garðarsdóttir leikkona er í hlíðum Everestfjalls eftir að hafa gengið með Ingólfi Geir
Gissurarsyni Everestfara í grunnbúðir
þar sem þau hittu fyrir Vilborgu Örnu
Gissurardóttur pólfara, sem er á leið
á toppinn á hæsta fjalli heims, ásamt
Ingólfi.
Fréttatíminn náði sambandi við
Sögu í gegnum tölvupóst og svaraði
hún spurningum blaðsins með sama
hætti á göngu sinni niður úr grunn-
búðunum.
Hvað ertu að gera þarna?
Það kemur sá dagur í lífi hverrar 26
ára leitandi konu að hún gerir sér grein
fyrir því að þekking hennar á heim-
inum og sjálfri sér getur orðið miklu
betri. Þannig kom það til að ég ákvað
að nýta frí frá leikhúsinu og öðrum
störfum til að stinga af og læra meira.
Ég hafði nýlega kynnst Everestfar-
anum Ingólfi í gegnum sameiginlegan
vin okkar, gleðigjafann Sigurð Egg-
ertsson. Þegar Ingólfur var búinn að
segja þrjá brandara, hafði leyst eina
gestaþraut, sýnt fram á hreint sakavott-
orð og ágætis einkunn úr samræmdu
prófunum ákvað ég að óhætt væri að
fylgja honum í grunnbúðir Everest.
Hefurðu stundað fjallgöngur?
Ég hef gengið mikið heima á Íslandi og
yfirleitt í fylgd móður minnar sem
hefur kennt mér að bera bak-
poka, elska landið mitt og líta
í kringum mig eftir skemmti-
legum gönguleiðum. Síðasta
sumar gengum við til dæmis
saman hluta af Jakobsveginum
á Spáni. Og núna leitum við
annarra framandi göngu-
leiða sem eru mögulega
mjög heilagar.
Hvernig upplifun var
þetta?
Að ganga í Himalajafjöllunum er
stórfenglegt og allt öðruvísi en
allt annað sem ég hef reynt. Þar kemur
hæðaraðlögun mikið inn í en sökum
hæðarinnar verður súrefnisupptaka
minni og því er jafn erfitt að ganga tíu
tröppur upp á aðra hæðina í tehúsi í
smábæ Himalaja og að hlaupa upp að
Steini á Esjunni. (Þetta er samt ekki
byggt á neinni vísindalegri rannsókn –
bara sterkri tilfinningu).
Ég og Ingó Everestfari höfum lent í
ýmsum ótrúlegum ævintýrum; flogið
með farangursþyrlu, týnst í afdölum,
runnið á jökli, lært að baka tíbeskt
brauð, talað við jakuxa, hlegið með
Þjóðverjum, villst, fundið okkur og
gleymt að teygja. Við klifum tindana
Goykio Ri, sem er 5357 metrar og
Kala Patthar, sem er 5550 metra hár,
áður en við heilsuðum upp á Vil-
borgu Örnu í grunnbúðum Everest. Í
grunnbúðunum átti ég svo köldustu,
ómannúðlegustu en stjörnunbjörtustu
nótt lífs míns. Mér reiknast til að mér
hafi tekist að sofa í heila tvo tíma með
einni frábærri tunglupplýstri pissuferð
út fyrir tjaldið. Í þessum krefjandi
aðstæðum munu Ingólfur og Vilborg
eyða næstu fimm vikum í æfingar og
göngur áður en þau sigra hæsta fjall
heims en ég held á vit meira súrefnis
og sólar í lægra landslagi.
Nepal býr yfir ótrúlegu fallegu lands-
lagi og fólki og ég get fullyrt að ég er
ögn betur að mér um eitt land í Asíu og
sjálfa mig í mikilli hæð yfir sjávarmáli
eftir þessa ferð. En ég kem ekki heim
alveg strax, nú ætla ég í jógasetur í
Katmandú. Þar verð ég alein í þrúgandi
þögn. Ég vona að þær aðstæður verði
mér innblástur að betri bröndurum og
snilldarhugmyndum sem ég er enn of
óþroskuð til að geta útlistað betur. Svo
ætla ég að taka nokkur ódauðleg viðtöl
um ást og húsakost við munka fyrir
alvarpsþáttinn; Ástin og leigumarkað-
urinn. Þangað til seinna. Friður út!
Ævintýrasaga
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Saga Garð-
arsdóttir
eftir kalda
krefjandi nótt
í grunnbúðum.
„Linsurnar
mínar frusu!“
Jakuxi að kúka. Saga vildi
endilega að þessi mynd færi
með í blaðið.
„Hugmyndin að tónlist-
arhátíðinni Heima kemur
frá Færeyjum, en Færey-
ingar segjast reyndar
hafa fengið hugmyndina
frá Íslendingum,“ segir
Kristinn Sæmundsson
tónleikahaldari.
Tónlistarhátíðin Heima
verður haldin í Hafnar-
firði að kvöldi síðasta
vetrardags, 23. apríl.
Þá munu tónlistarmenn
halda stutta tónleika í
þrettán heimahúsum í
bænum. Dagskráin stend-
ur frá klukkan
20-23 og
geta áhorfendur rölt á
milli tónleika að vild.
Eftirtaldir listamenn
og hljómsveitir koma
fram á Heima: Steindór
Andersen & Hilmar Örn
Hilmarsson, Bjartmar
Guðlaugsson, Ylja, Hallur
Joensen (FO), Vök, Mono
Town, Elíza Newman og
Anna Magga úr Kolrössu,
Jónas Sigurðsson, Fjalla-
bræður, DossBaraDjamm
(Skólahljómsveit þeirra
Davíðs Þórs Jónssonar
og Steins Ármanns í
Flensborg), Hot
Eskimos, Snorri
Helgason og Silla.
Þegar dagskránni lýkur
tekur við ball með öllu
tilheyrandi á Fjörukránni
og í Gaflaraleikhúsinu
sameinuðu eitthvað fram
á nótt. Í Fjörukránni mun
hin goðsagnakennda
hljómsveit Kátir piltar
snúa aftur eftir langt hlé.
Miðasala á Heima er á
Súfistanum í Hafnarfirði.
Miðaverð á Heima er
2.500 krónur en 4.500
krónur vilji fólk líka kíkja
á Káta pilta og
gleðina á eftir.
Spennandi hátíð í Hafnarfirði
Ylja treður upp á Heima í Hafnarfirði í næstu viku.
66 dægurmál Helgin 17.-21. apríl 2014